Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 82

Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 82
FÖSTUDAGUR 18. nóvember 2005 57 FÓTBOLTI Þýski knattspyrnudóm- arinn Robert Hoyzer var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að dæma meðvitað gegn öðru liðinu í nokkrum knatt- spyrnuleikjum til þess að freista þess að græða á veðmálum. Hoyzer játaði brot sitt og sagðist hafa verið að starfa með króatíska glæpamanninum Ante Sapina, sem borgaði Hoyzer og Dominik Marks hátt í tvær milljónir evra fyrir að hagræða úrslitunum. Dómurinn sem Hoyzer fékk þótti þungur, en Marks fékk aðeins eins og hálfs árs bann fyrir sinn þátt í málinu, sem þótti smá- vægilegur. Þetta hneyksli þykir það versta sem knattspyrnuhreyfingin í Þýskalandi hefur orðið fyrir í meira en þrjátíu ár en rannsókn þessa máls kostaði þýska ríkið meira 500 milljónir króna þar sem það var mun viðameira en talið var í fyrstu. - mh Dómari dæmdur fyrir svindl: Hoyzer í tveggja ára fangelsi ROBERT HOYZER Hoyzer var dæmdur fyrir mútuþægni. FÓTBOLTI Þýski landsliðsfyrirliðinn Michael Ballack hefur hug á því að reyna sig hjá stóru félagi utan Þýskalands en segir þó fá félög koma til greina. „Mér líður afskaplega vel í München og Bayern er stórkost- legt félag. Það er langt síðan þýskur leikmaður lék síðast stórt hlutverk með liði í fremstu röð. Auðvitað hefði ég áhuga á því, en það eru í raun bara tvö til þrjú félög sem eru sambærileg við Bayern München,“ sagði Ballack. Talið er að valið hjá Ballack standi nú fyrst og fremst á milli spænsku félaganna Barcelona og Real Madrid. Ballack hefur þó ekki enn útilokað að hann leiki áfram með Bayern þrátt fyrir að samningaviðræðum við hann hefi verið slitið. „Ég ætla mér bara að skoða mína möguleika. Bayern kemur til greina eins og önnur stór og metnaðarfull félög.“ - mh Ballack vill reyna sig erlendis: Stóru félögin eini kosturinn MICHAEL BALLACK Ballack hefur verið besti leikmaður Þýskalands undanfarin ár. FÓTBOLTI „Það er alltaf gaman að vinna og kannski ekki aðalatriðið að síðustu tveir sigrar hafi verið gegn mínum gömlu félögum,“ sagði Heimir Ríkarðsson eftir tvo sigurleiki Vals á Fram, annar í meistaraflokki og hinn í þriðja flokki, en Heimir er aðalþjálfari 3. flokks og er Óskari Bjarna Ósk- arssyni til aðstoðar í meistara- flokknum. Heimir telur marga unga leik- menn í Valsliðinu eiga möguleika á því að ná góðum árangri í fram- tíðinni en liðið er að stórum hluta skipað leikmönnum sem urðu Íslandsmeistarar með 2. flokki Vals í fyrra. „Ég er bjartsýnn á að ungu strákarnir muni náð góðum árangri í framtíðinni og við ætlum okkur að búa til lið sem getur keppt um titlana sem í boði eru á næstu árum.“ Heimir var sérstaklega ánægð- ur með framgöngu Fannars Frið- geirssonar og Pálmars Pétusson- ar, markvarðar Vals, í leiknum gegn Fram og sagði þá vera mikil efni. „Fannar átti frábæran leik og einnig Pálmar, sem mér finnst vera að stimpla sig inn sem einn allra besti markvörður landsins. Hann hefur átt jafna leiki og góða í vetur og hefur bætt sig mikið. Svo eru strákar eins og Ingvar Guðmundsson, Elvar Friðriksson og Kristján Karlsson líka bráð- efnilegir og eiga eflaust eftir að láta mikið að sér kveða í fram- tíðinni. Ég bind miklar vonir við efniviðinn sem nú er hjá Val og er viss um að góður árangur geti náðst ef allir sem að handboltan- um koma eru tilbúnir að leggja hart að sér.“ Heimir þjálfaði hjá Fram í mörg ár áður en hann fór til Vals og hann segir ágæta frammistöðu Fram ekki hafa komið sér sér- staklega á óvart. „Hópur Fram er góður. Það eru reynslumiklir leik- menn í bland við tvo af efnileg- ustu leikmönnum landsins, Sigfús Sigfússon og Jóhann Gunnar Ein- arsson. Gengi Fram hefur verið ágætt og það hefur ekki komið mér neitt á óvart.“ - mh Heimir Ríkarðsson var sínu gamla félagi óþægur ljár í þúfu í fyrradag: Tveir sigrar gegn Fram sama kvöldið HEIMIR RÍKARÐSSON Fór frá Fram til Vals fyrir núverandi tímabil.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.