Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 77
FIMMTUDAGUR 8. desember 2005 57
Frá J.P. Chenet í Frakklandi koma þessar
fallegu gjafaumbúðir sem verða til sölu
í flestum Vínbúðum á höfuðborgarsvæð-
inu nú í desember. Gjafaumbúðirnar eru
skemmtileg viðbót í hillur Vínbúðanna og
tilvalin jóla- eða tækifærisgjöf. Um er að
ræða fjórar tegundir af gjafaumbúðum
freyðivín hvítvín og rauðvín með tveimur
glösum og svo rauðvín og hvítvín saman í
öskju með vínupptakara. Glösin sem fylga
með eru einkar lagleg og hallar stilkurinn á
þeim likt og háls J.P. Chenet flöskunnar.
J.P. Chenet Merlot/Cabernet Premier de
Cuvée
Bragðmikið með keim af sólbökuðum ávöxt-
um og karamellu. Silkimjúk tannín og góð
ending. Kjörið með flestum kjötréttum eins
og lambakjöti og nautakjöti.
Verð í gjafaumbúðum 2.000 kr.
J.P. Chenet Sparkling Medium dry
Þetta ljúfa freyðivín er ljóst á lit með
smá gylltum tón. Vín sem freyðir vel
og lengi. Kjörið sem fordrykkur og i
margs konar veislur, einnig tilvalið
með mat.
Verð í gjafaumbúðum 1.800 kr.
JP Chenet Chardonnay Premier de
Cuvée
Hefur fallega gylltan blæ. Það er
þurrt, feitt og með góða endingu.
Kjörið með feitum fisk og ljósu
kjöti t.d. kjúklingi og svínakjöti.
Verð í gjafaumbúðum 2.000 kr.
J.P. CHENET: Fallegar gjafaumbúðir
VEITINGASTAÐURINN
MÚLAKAFFI
Veitingastaður-
inn Múlakaffi
Hvernig er stemn-
ingin?
Þegar maður gengur
inn á staðinn tekur á
móti manni heimilisleg stemning
og vingjarnlegt andrúmsloft. Eig-
endurnir leggja sig í líma við að
gera staðinn sem þægilegastan
fyrir kúnnann. Það kemur því ekki
á óvart að í hádeginu er nánast
ávallt brjálað að gera. Nokkrir við-
skiptavinir staðarins hafa marga
fjöruna sopið og eru að koma
aftur ár eftir ár en einnig má sjá
fólk af yngri kynslóðinni sem hefur
þá vafalaust fengið að heyra af
gæðum staðarins hjá þeim eldri.
Matseðillinn:
Hann er nokkuð breytilegur eftir
dögum en þegar horft er yfir vik-
una er ljóst að þar má fá flest sem
hugurinn girnist. Meðal þess sem
boðið er upp á eru lambalæris-
sneiðar með steiktum kartöflum
og rjómasósu ásamt pönnusteiktri
ýsu með lauksmjöri. Lögð er
áhersla á að maturinn sé einfald-
ur en jafnframt bragðgóður. Það
má því segja að um sé að ræða
heimilislegan hversdagsmat.
Vinsælast:
Pönnusteikta ýsan er líklega vin-
sælasti réttur hússins. Þá er gam-
aldags glóðarsteikt lambalæri
með bernaise-sósu einnig í mikl-
um metum hjá fastakúnnum
staðarins sem eru nokkuð margir.
Réttur hússins:
Súpa dagsins er mismunandi
eftir dögum. Blómkálssúpa,
sveppasúpa og grænmetissúpa
eru nokkrar af þeim sem eru á
boðstólnum í viku hverri. Einnig
er alltaf hægt að fá fiskrétti alla
daga vikunnar. Þá er sérstaklega
mælt með súrsæta grísapottrétt-
inum með hrísgrjónum og brauði,
sem og sænska bixímatnum með
bernaise-sósu og rauðrófum.
VEITINGASTAÐURINN MÚLAKAFFI
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI