Fréttablaðið - 17.02.2006, Qupperneq 4
4 17. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR
á morgun !
FUGLAFLENSA Engin ástæða er
fyrir Íslendinga að hræðast hraða
útbreiðslu fuglaflensunnar eins og
mál standa nú.
Þetta segir Jarle Reiersen, sér-
fræðingur í sjúkdómum alifugla
hjá Landbúnaðarstofnun. Hann
telur þó að úrbóta sé þörf á aðstæð-
um alifugla á ýmsum bóndabæjum.
„Það eru rúmlega fimm hundruð
býli hér á landi sem eru með hænur,
endur og jafnvel gæsir í sameigin-
legri vist. Stóru alifuglabúin eru
almennt í góðu
á s i g k o mu l a g i
og smitvarnir
þar eru til fyr-
irmyndar. Það
þarf því ekki
að hafa miklar
áhyggjur af því
að fuglaflensan
skjóti sér niður
í stóru alifugla-
býlunum hér á
landi, ef aðstæð-
ur þar haldast í
sama horfi. Það
eru litlu býlin,
þar sem farfugl-
ar eiga auðvelt
með að blandast
hópum annarra
alifugla, sem
þurfa að bæta
s m i t v a r n i r n -
ar til að koma
í veg fyrir að
f u g l a f l e n s a n
blossi upp þar.“
Svo virðist
sem Íslend-
ingar séu ekki farnir að hræðast
fuglaflensuna mikið. Almenningur
hefur ekkert minnkað kaup á ali-
fuglakjöti og þá hafa skipuleggj-
endur sumarleyfisferða til landa
þar sem fuglaflensa hefur komið
upp, ekki orðið varir við hræðslu
hjá fólki.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir greini-
legt á fólki hér á landi að umræða
um útbreiðslu fuglaflensunnar í
Evrópu sé ekki farin að vekja upp
ótta. „Við höfum ekki strangari
reglur en yfirdýralæknir setur. Við
erum auðvitað meðvitaðir um þá
hættu sem er á ferðum. Settur hefur
verið á starfshópur á vegum Haga,
yfirfyrirtækis Bónuss, til þess að
fara vandlega yfir þessi mál. En
við finnum ekki fyrir því að neyslu-
venjur fólks séu að breytast vegna
umræðu um fuglaflensuna.“
Helgi Marteinsson, markaðs-
stjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals
Útsýnar, segir ekkert benda til
þess að fuglaflensan sé farin að
hafa áhrif á staðarval fólks þegar
kemur að sumarleyfum. Úrval-
Útsýn býður meðal annars upp á
ferðir til Tyrklands en þar í landi
greip um sig mikil hræðsla þegar
fuglaflensutilfelli komu þar upp.
„Við höfum ekki þurft að fella niður
ferðir vegna fuglaflensunnar.
Þvert á móti hefur sala á ferðum
gengið vel. Svo virðist sem hræðsla
hafi ekki gripið um sig enda engin
ástæða til eins og mál standa nú. Það
er vel fylgst með þessum málum hér
á landi og við getum gripið fljótt til
aðgerða ef yfirvöld í þeim löndum
þar sem flensan greinist, og hér á
landi, óska þess.“
Rannsóknum á dauðu álftunum,
sem fundust í fyrradag á eyjum
í Eystrasalti sem tilheyra Dan-
mörku, lýkur í dag en fastlega er
búist við því að H5N1-veiran, sem
veldur fuglaflensu, hafi valdið
dauða þeirra. magnush@frettabladid.is
Engin merki um að Íslend-
ingar óttist fuglaflensuna
Ástæðulaust er að hræðast fuglaflensuna þó hún sé farin að breiðast út í nágrannalöndum okkar. Bændur
úti um allt land verða þó að huga betur að alifuglum sínum, segir sérfræðingur í sjúkdómum alifugla.
SVANIR Í KAUPMANNAHÖFN Nýjasta fuglaflensutilfellið fannst í Danmörku en niðurstöður
úr rannsókn á dauðum álftum sem fundust á eyju í Eystrasaltinu verða gerðar opinberar í
dag. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁNHELGI EYSTEINSSON
Markaðs- og sölu-
stjóri Úrvals-Útsýnar.
GUÐMUNDUR
MARTEINSSON
Framkvæmdastjóri
Bónuss.
Mikilvæg atriði er tengjast fuglaflensu og Íslandi
Líklegast er að fuglaflensa berist hingað til lands með álftum eða gæsum.
Mikill meirihluti farfugla sem koma hingað til lands, kemur frá Bretlandseyjum.
Fuglaflensan hefur ekki enn borist til Bretlands en líklegt má telja að hún greinist
þar í næstu framtíð.
Áhættumat yfirvalda hér á landi miðast við farfugla sem koma frá Bretlandi.
Um leið og fuglaflensan greinist þar munu stjórnvöld hér á landi bregðast við.
Alifuglabýli hér á landi eru vel útbúin og uppfylla öll þau öryggisskilyrði sem
nauðsynlegt er fyrir þau að uppfylla. Það eru því litlar líkur á að fuglaflensan komist
í alifuglabýli hér á landi, af því að fuglarnir eru hafðir innandyra allan ársins hring
og eru undir ströngu eftirliti.
Lítill hluti íslenska álfta- og gæsastofnsins hefur vetursetu í Suður- og Vestur-
Noregi. Líklegast er að smit berist þaðan, á meðan flensan kemur ekki upp í
Bretlandi. Nýjustu fuglaflensutilfellin, í Þýskalandi og Danmörku, benda til þess að
flensan breiðist út yfir norðanverða Evrópu með nokkrum hraða.
ÍRAN, AP Það mun skaða Banda-
ríkjamenn mun meira en Íran ef
þeir gera hernaðarárás á landið.
Þetta segir varnarmálaráðherra
Írans og heitir auknu hatri í garð
Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra láti þeir verða af
árásum til að stöðva kjarnorkuá-
ætlun Írana.
Varnarmálaráðherra Írans
sagði Bandaríkjamenn aðeins
vera að reyna að hræða íranskan
almenning með hótunum sínum
um árásir á landið. Hann ítrekaði
þó að Íranar vildu ekki eignast
kjarnavopn, eini tilgangurinn
með kjarnorkuáætluninni væri
að framleiða rafmagn. ■
Íranar vara við árásum:
Heita auknu
hatri á vestrinu
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 16.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 63,68 63,98
Sterlingspund 110,95 110,95
Evra 75,76 75,98
Dönsk króna 10,118 10,178
Norsk króna 9,29 9,344
Sænsk króna 8,04 8,088
Japanskt jen 0,5392 0,5424
SDR 91,28 91,82
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
106,2094
LÖGREGLUMÁL Mikael Már Pálsson,
sem grunaður er um stórfellt smygl
á amfetamíni, losnar úr gæsluvarð-
haldi í dag.
Mikael og kærasta hans, Hall-
dóra Gunnlaugsdóttir, voru stöðv-
uð á Keflavíkurflugvelli þegar þau
voru að koma frá París en í fórum
þeirra fundust fjögur kíló af sterku
amfetamíni.
Halldóru hefur verið sleppt úr
haldi en hún hefur haldið fram sak-
leysi sínu síðan málið kom upp.
Mikael Már er einnig í haldi
vegna heimabankaránsins svokall-
aða. Þá voru peningar millifærðir.
-mh
Tekinn með amfetamín:
Verður látinn
laus í dag
OFSAVEÐUR Flutningabíll með
tengivagn fauk út af veginum
við Lómagnúp í fyrrakvöld. Öku-
manninn, sem er ungverskur,
sakaði ekki en bíllinn er mikið
skemmdur.
Vegfarendur á austurleið
sáu bílinn utan vegar og höfðu
samband við Neyðarlínuna frá
Freysnesi. Lögreglan á Kirkju-
bæjarklaustri fór á staðinn og
fann manninn sem þá hafði hafst
við í bílnum í þrjár klukkustund-
ir. Vindur á þessu svæði fór í 49
metra á sekúndtu þegar hvassast
var. Fjöldi fólks þurfti að gista í
Vík í Mýrdal og Freysnesi vegna
veðurhamsins. -shá
Óveður á Suðausturlandi
Beið hjálpar í
þrjár stundir
GLÍMT VIÐ ÞJÓÐVEGINN Það getur verið
varhugavert að ferðast um landið þegar
veður er vont. MYND/BJÖRGUNARSVEITIN KÁ
FÍKNIEFNAMÁL Lögreglan í Kefla-
vík fann 22 e-töflur, rúmlega þrjú
grömm af kannabisefnum og rúm-
lega hundrað töflur af anabólísk-
um sterum við húsleit hjá manni á
tvítugsaldri í Keflavík.
Lögreglan hafði fylgst með
manninum um nokkurt skeið og
ákvað að láta til skarar skríða um
miðnætti í fyrrakvöld.
Yfirmaður fíkniefnadeildar
lögreglunnar í Keflavík, sem ekki
vildi láta nafns síns getið, segir
fíkniefnamálum hafa fjölgað mikið
í umdæmi lögreglunnar. Á síðasta
ári komu upp óvenju mörg fíkni-
efnamál hjá lögreglunni í Keflavík.
„Því miður er þessi málaflokkur
sífellt að verða umfangsmeiri. Síð-
asta ár var metár hjá okkur. Það
sem af er ári hafa komið upp miklu
fleiri mál en á sama tíma í fyrra.“
Maðurinn sem lögreglan gerði
húsleit hjá hefur játað að hafa átt
þau efni sem lögreglan gerði upp-
tæk. Hann hefur hins vegar ekki
játað að hafa ætlað sér að selja
efnin. Grunur leikur þó á því að
maðurinn hafi ætlað sér það þar
sem um umtalsvert magn var að
ræða.
Maðurinn sem tekinn var með
fíkniefnin og sterana hefur marg-
sinnis komið við sögu lögreglu og
þá aðallega fyrir fíkniefnabrot.
-mh
Lögreglan fann umtalsvert magn fíkniefna hjá manni á tvítugsaldri í Keflavík:
Fundu stera, e-pillur og hass
HASS OG AMFETAMÍN Lögreglan fann
lítilræði af hassi og töluvert magn e-tafla
hjá manninum, en þær eru gerðar úr
amfetamíni.