Fréttablaðið - 17.02.2006, Qupperneq 18
17. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
> Úrslit sveitarstjórnarkosninga á Akureyri 2002
Heimild: Hagstofa Íslands
Svona erum við
24,1%
13,9%
8,7%
Sj
ál
fs
tæ
ði
sf
lo
kk
ur
Li
st
i f
ól
ks
in
s
Sa
m
fy
lk
in
g
Fr
an
só
kn
ar
fl
ok
ku
r
Vi
ns
tr
i g
ræ
ni
r
35,6%
17,8%
B D L S U
Frambjóðendur í próf-
kjöri Framsóknarflokks-
ins á Akureyri
REGLUR
PRÓFKJÖRSINS
Allir flokksbundnir framsóknarmenn á
Akureyri og í Hrísey, með kosningarétt
í sveitarstjórnarkosningunum þann 27.
maí næstkomandi, hafa rétt til að kjósa
í prófkjörinu. Þeim sem ekki eru skráðir í
Framsóknarflokkinn nægir að skrifa undir
stuðningsyfirlýsingu við framboð flokks-
ins til að öðlast kosningarétt í prófkjörinu,
að því gefnu að þeir hafi verið skráðir til
heimilis á Akureyri 1. desember síðastlið-
inn og munu hafa náð 18 ára aldri á kjör-
dag í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Kosning á Akureyri fer fram á Hólabraut
13 á milli klukkan 10.00 og 20.00 en
kosning í Hrísey fer fram í Brekku á milli
klukkan 14.00 og 16.30. Kjósendur skulu
merkja við sex frambjóðendur og skipa
þeim í sæti með tölustöfunum 1 til 6.
Jakob Björnsson hefur átt sæti í bæjarstjórn Akureyrar undanfarin sextán
ár en hefur nú ákveðið að draga sig í hlé frá bæjarmálunum. Hann hefur
verið oddviti framsóknarmanna í þrennum undangengnum sveitarstjórn-
arkosningum og er formaður bæjarráðs á yfirstandandi kjörtíma-
bili. Frá 1994 til 1998 var hann bæjarstjóri á Akureyri en þá
átti Framsóknarflokkurinn í meirihlutasamstarfi við Alþýðu-
flokk. Framsóknarflokkurinn hlaut fimm bæjarfulltrúa
kjörna í kosningunum 1994 en Alþýðuflokkurinn einn.
Framsóknarflokkurinn er nú með þrjá bæjarfulltrúa en
Jakob bindur vonir við að þeim fjölgi í kosningunum
í vor. „Flokkurinn er í vörn á landsvísu en framsóknar-
menn á Akureyri hafa unnið gott starf. Ég trúi ekki öðru
en að við verðum metin að verðleikum og náum góðri
kosningu.“
Jakob telur að kosningabarátta þeirra sem þátt taka í
prófkjörinu hafi verið drengileg og komi ekki til með að
skilja eftir nein sár. „Það er mikið af góðu fólki í framboði
og ég vona að flokkurinn beri gæfu til að stilla upp
sigurstranglegum lista,“ segir Jakob.
Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn mynda nú meirihluta í bæjar-
stjórn Akureyrar og er Jakob mjög ánægður með samstarfið. „Við gerðum
ítarlegan málefnasamning í upphafi kjörtímabilsins og hann hefur haldið
mjög vel. Samstarfið hefur byggst á gagnkvæmu trausti og ég hef
ekkert undan því að kvarta,“ segir Jakob.
Atvinnumálin munu brenna heitast á bæjarstjórn Akureyr-
ar á næsta kjörtímabili, að mati Jakobs. „Bæjarstjórnin og
fyrirtækin verða að koma sameiginlega að eflingu atvinnu-
lífsins en mikilvægt er að auka fjölbreytni á vinnumarkaðn-
um. Atvinnulífið og bæjarstjórn verða í samvinnu að stuðla
að bættri afkomu bæjarbúa með öllum tiltækum ráðum.“
Framsóknarflokkurinn á Akureyri hefur ekki haldið opið
prófkjör svo lengi sem elstu framsóknarmenn að norðan
ber minni til. „Ég hef rætt þetta að undanförnu við þá sem
vel til þekkja og það man enginn eftir opnu prófkjöri hjá
flokknum. Okkur hefur hins vegar komið saman um að
vísir að prófkjöri hafi verið haldinn fyrir 20 árum en
í undanförnum kosningum hefur verið stillt upp á
listann með öðrum hætti,“ segir Jakob.
FORINGINN: JAKOB BJÖRNSSON
Fer sáttur frá borði
Nítján frambjóðendur,
þrettán karlar og sex konur,
gefa kost á sér í opnu próf-
kjöri Framsóknarflokksins
á Akureyri. Prófkjörið fer
fram á morgun og verður
kosið um sex efstu sæti
framboðslistans. Leiðtogi
framsóknarmanna á Ak-
ureyri til tólf ára, Jakob
Björnsson, tekur ekki þátt
í prófkjörinu og sækjast
fimm einstaklingar eftir að
taka við forystuhlutverk-
inu. Þar á meðal eru tveir
sitjandi bæjarfulltrúar
flokksins.
Ljóst er að mikil endurnýjun verð-
ur á framboðslista Framsóknar-
flokksins á Akureyri en sextán af
þeim nítján sem þátt taka í próf-
kjörinu voru ekki á framboðslista
flokksins í síðustu sveitarstjórn-
arkosningum. Gerður Jónsdóttir
skipaði annað sæti listans í kosn-
ingunum 2002 og Jóhannes Gunn-
ar Bjarnason þriðja sæti. Gerður
og Jóhannes vilja bæði taka við
oddvitastöðunni af Jakobi Björns-
syni og hafa þau sett stefnuna
á fyrsta eða annað sæti í próf-
kjörinu. Ingimar Eydal aðstoð-
arslökkviliðsstjóri var í sjöunda
sæti en hann býður sig nú fram í
fimmta til sjötta sæti. Aðrir þátt-
takendur í prófkjörinu áttu ekki
sæti á framboðslistanum í síðustu
kosningum.
Elvar Árni Lund, sveitarstjóri
Öxarfjarðarhrepps, býður sig
eingöngu fram í fyrsta sæti. Erla
Þrándardóttir, kennari og verk-
efnastjóri við Háskólann á Akur-
eyri, og Sigfús Ólafur Helgason
sölufulltrúi bjóða sig bæði fram í
fyrsta til þriðja sæti.
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur eru í meirihluta í
bæjarstjórn Akureyrar. Í sveitar-
stjórnarkosningunum 2002 hlaut
Framsóknarflokkurinn 24,1 pró-
sent greiddra atkvæða og þrjá
menn kjörna í bæjarstjórn en
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 35,6
prósent og fjóra bæjarfulltrúa.
kk@frettabladid.is
Að megni til nýtt fólk
Helstu baráttumál Erlu eru tengd þekk-
ingariðnaði, skipulagsmálum og einfaldari
stjórnsýslu.
„Forsenda þess að þekkingariðnað-
urinn nái að dafna er öflug samvinna
atvinnulífs og menntastofnana. Blómstri
þekkingariðnaðurinn mun áhugaverðum
störfum fjölga sem aftur mun laða fólk til
bæjarins,“ segir Erla.
Hún segir samgöngu- og skipulagsmál
eiga ríkan þátt í lífsgæðum almennings.
„Ég er fylgjandi auknu samráði við bæj-
arbúa þegar kemur að ákvörðunartökum
er lúta að skipulagi byggðar og nýtingu lands. Bæta þarf
göngu- og hjólreiðastíga, bæði innan bæjarins og í nágrenni
hans, og auka lóðaframboð undir einbýlishús.“
Erla segir þróun stjórnsýslunnar þurfa að fela í sér innbyggð-
an sveigjanleika sem nýti bestu tæknilausnir hverju sinni og
mæti þar með betur kröfum samfélagsins.
Erla Þrándardóttir sækist eftir 1.-3. sæti:
Samvinna atvinnu og skóla
ERLA
ÞRÁNDARDÓTTIR
Gerður Jónsdóttir er einn þriggja bæjarfull-
trúa Framsóknarflokksins. „Bæjarfulltrúa-
starfið er mjög mikilvægt í mínum huga
og ég kaus að líta á það sem fullt starf.
Ég hef aflað mér mikilvægrar reynslu á
kjörtímabilinu sem ég tel að geti nýst mér
vel til að leiða flokkinn til farsælla verka,“
segir Gerður.
Efst á blaði hjá Gerði eru atvinnu- og
fjölskyldumálin. „Við þurfum að fá stóriðju
á Norðurland en eigum einnig að byggja
undir atvinnulífið almennt. Ég vil efla
Háskólann á Akureyri og auka straum ferðamanna til bæjarins
en ferðaþjónustan getur orðið stóriðja á Akureyri.“ Gerður
hefur setið í mörgum nefndum á vegum bæjarins, einkum
er lúta að málefnum fjölskyldnanna. „Ég hef unnið mikið
fyrir börn sem ekki falla að hefðbundnu skólakerfi. Ég vil að
bærinn bjóði upp á gjaldfrían leikskóla í náinni framtíð og vil
koma á fjölmenningarhátíð og virkja þann auð sem býr í fólki
af erlendum uppruna,“ segir Gerður.
Gerður Jónsdóttir sækist eftir 1.-2. sæti:
Fjölskyldan í brennidepli
GERÐUR
JÓNSDÓTTIR
Jóhannes Gunnar Bjarnason var kjörinn
bæjarfulltrúi í síðustu kosningum og hefur
síðan komið að öllum málaflokkum er
snerta stjórn bæjarins. Hann telur að sú
reynsla verði honum dýrmætt veganesti
komi hann til með að leiða lista framsókn-
armanna næstu fjögur árin.
„Við höfum á undanförnum árum unnið
að bættum hag þeirra sem eldri eru. Ég
vil ljúka því verki á næsta kjörtímabili og
um leið bæta búsetuskilyrði fatlaðra,“ segir
Jóhannes.
Hann segir spennandi tíma framundan á Akureyri og mörg
stór verkefni sem bíði úrlausna. „Ég vil efla þjónustu bæjarins
enn frekar þannig að hún verði öðrum sveitarfélögum til eftir-
breytni.“ Jóhannes hefur áratuga reynslu sem knattspyrnu- og
handknattleiksþjálfari hjá KA og sem bæjarfulltrúi hefur hann
beitt sér í forvörnum af ýmsum toga. „Æskan er okkar framtíð
og ef við hlúum ekki að henni þá er framtíð okkar foreldranna
ekki björt,“ segir Jóhannes.
Jóhannes Bjarnason sækist eftir 1.-2. sæti:
Æskan er okkar framtíð
JÓHANNES GUNN-
AR BJARNASON
Sigfús Ólafur Helgason segir stöðu
atvinnumála á Akureyri óviðunandi og
brýnt að leysa þann vanda til frambúðar.
„Það eru allt of margir Akureyringar án
atvinnu. Við eigum að taka höndum
saman við ríkisvaldið til að sporna gegn
atvinnuleysinu og bæjaryfirvöld eiga að
byggja undir ferðaþjónustuna í bænum.
Ríki og bær eiga í sameiningu að stuðla
að eflingu Háskólans á Akureyri.“
Sigfús segir mikilvægt að halda áfram
því góða starfi sem unnið hefur verið í
málefnum aldraðra og vill að sorpmálin í Eyjafirði verði leyst
í eitt skipti fyrir öll. „Núverandi ástand er ekki sæmandi jafn
fallegu héraði og Eyjafjörður er og ég mun beita mér fyrir
úrbótum.“ Íþróttir og forvarnir eru ofarlega í huga Sigfúsar
og hann vill að bæjaryfirvöld stuðli að aukinni hreyfingu
og útivist. „ Íþróttir og forvarnir eru óaðskiljanleg í mínum
huga,“ segir Sigfús.
Sigfús Helgason sækist eftir 1.-3. sæti:
Tekið verði á atvinnuleysi
SIGFÚS ÓLAFUR
HELGASON
1. sæti: Elvar Árni Lund
1.-2. sæti: Gerður Jónsdóttir
Jóhannes Gunnar Bjarnason
1.-3. sæti: Erla Þrándardóttir
Sigfús Ólafur Helgason
2.-3. sæti: Stefán Jónsson
2.-4. sæti: Guðlaug Kristinsdóttir
3.-5. sæti: Geir Hólmarsson
Þorsteinn Pétursson
3.-6. sæti: Örlygur Þór Helgason
4.-6. sæti: Erlingur Kristjánsson
Jón Vigfús Guðjónsson
María Ingadóttir
Páll Gauti Pálsson
5.-6. sæti: Eiður Stefánsson
Ingimar Eydal
Sóley Magnúsdóttir
6. sæti: Alex Björn Stefánsson
Petrea Ósk Sigurðardóttir
Elvar Árni Lund,
sveitarstjóri
Öxarfjarðar-
hrepps, er eini
frambjóðandinn
í prófkjörinu sem
ekki er búsettur
á Akureyri. Hann
hefur þó þar sitt
lögheimili. Hann
telur þó ekki að
það þurfi að setja
stein í götu hans
í prófkjörinu og
segist tilbúinn að kafa ofan í bæjar-
málin á Akureyri á skömmum tíma,
nái hann fyrsta sæti á lista Framsókn-
arflokksins.
Elvar segist búa að góðri reynslu og
þekkingu sem sveitarstjóri sem nýst
geti honum vel sem oddviti fram-
sóknarmanna á Akureyri.
Hann telur að mikilvægasta verkefni
næstu bæjarstjórnar á Akureyri verði
að efla atvinnulífið í bænum. „Það
þarf að fjölga störfum í bænum en til
að það nái fram að ganga er nauðsyn-
legt að bæta samgöngur og treysta
tengsl á milli ríkisins og sveitarfélags-
ins,” segir Elvar. Meðal nauðsynlegra
samgöngubóta segir Elvar að ráðast
þurfi í gerð Vaðlaheiðarganga til að
bæta samgöngur til austurs. Þá þurfi
að lengja flugbrautina til að auka
möguleika á millilandaflugi. Einnig
nefnir hann gerð hálendisvegar. „Bær-
inn þarf einnig að koma í auknum
mæli að málefnum Háskólans á Akur-
eyri Þá er framboð byggingarlóða á
Akureyri ekki nægjanlegt og þar er
þarft verk að vinna,“ segir Elvar Árni.
Elvar Árni Lund vill 1. sæti:
Mikilvægast að
efla atvinnulífið
ELVAR ÁRNI LUND
JÓN ÞÓR ÓLAFSSON OG BRENDA
HUGÐUST OPNA SAMAN VEITINGASTAÐ
„Þau geisluðu af hamingju,“
segir móðir unnustu Jóns Þórs
ÆTLUÐU AÐ GIFTA
SIG Í SUMAR
2x15- 16.2.2006 21:13 Page 1