Fréttablaðið - 17.02.2006, Side 38

Fréttablaðið - 17.02.2006, Side 38
4 Ein af þeim leiðum sem mér finnst hvað skemmtilegast að aka sumar sem vetur er leið sem kallast Klakksleið. Sögulega séð er hún kannski ekkert merkileg. Leiðin er engu að síður ein af fjórum leiðum sem félagar í Ferðaklúbbnum 4x4 nota til þess að komast í fjallaskál- ann sinn Setrið, sem stendur undir Hofsjökli. Þegar leiðin er ekin er fyrst farið um Hrunamannaafrétt, upp hjá kirkjustaðnum Tungufelli. Á Hruna- mannaafrétti er margt að skoða og mætti fyrst benda á fallegan foss í Búðará neðan við slóðina. Búðará er lítil dragá en á það til að vaxa og gerðist það við Búðará að þar staldr- aði Umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4x4 við lengur en til stóð. Það var í asahláku og stórrigningu í mars 2004. Lokaðist stór hópur breyttra jeppa af fyrir innan ána í foráttu- vexti og var þessi annars saklausa á sem stórfljót á að horfa. Nokkrir jeppanna komust yfir við illan leik en aðrir urðu að bíða í sólahring eftir að aðeins minnkaði í ánni svo fært væri yfir. Næsti áfangi er Svínárnes en fyrst er komið að Svíná og hand- an hennar er Svínárnesskáli. Þar er skemmtilegt að stoppa og fá sér nestisbita og skoða gamlan upp- gerðan gangnamannaskála sem þar stendur. Frá Svínárnesi er haldið áfram yfir nokkrar litlar ár og fer þá slóð- in hratt hækkandi og fer hæst í rúmlega 800 metra yfir sjávarmáli. Þegar komið er þar sem leiðin liggur hvað hæst sést slóð til vinstri og liggur hún inn með Draugakvísl að fjallinu Klakki. Undir því stend- ur samnefndur skáli og er leiðin þangað greið. Áfram er haldið og ekið um sand og mela inn að Kisubotnum. Þar er komið að miklum brekkum ofan við Kisubotna. Ofan brekkunnar er fagurt útsýni inn yfir Þjórsárver og Hofsjökul. Þegar komið er niður á eyrarnar fyrir neðan brekkurnar er hægt að taka á sig smá krók og aka skemmtilega leið inn Kisugljúfur. Það er um 800 metra leið. Frá Kisugljúfri er ekið um eyrar og að vaði á jökulánni Kisu. Mörg- um þykir nafn árinnar sérkennilegt en Kisa hefur einnig gengið undir nafninu Kísá og Kjálkaversá. Þarna á eyrunum er ekið yfir ána í þrígang á nokkuð góðum vöðum. Að öllu jöfnu er áin vel fær breyttum jeppum að sumarlagi. Hún á þó til að bólgna aðeins upp og getur þá verið óárennileg þeim sem ekki þekkja til hennar. Sérstak- lega á það við um austasta vaðið á henni en þar grefur hún sig meira niður og geta bakkarnir verið nokk- uð brattir. Því má segja að leiðin sé ekki fær minnstu jeppunum, en vel fær meðalstórum jeppum og er þá betra að vera ekki einn á ferð. Að vetrarlagi getur leiðin verið mjög krefjandi og ekki ráðlegt að leggja inn á leiðina ef spáin er slæm. Fyrir nokkrum misserum komst Klakksleið í sviðsljósið meðal jepp- amanna. Það var þegar félagar í Ferðaklúbbnum 4x4 fóru Klakksleið á leið á Þorrablót í Setrið árið 2003. Þeir lögðu af stað frá Reykjavík seinnipart föstudags. Hrepptu þeir aftakaveður og erfið snjóalög og voru því ekki komnir á áfangastað fyrr en klukkan fjögur aðfaranótt sunnudagsins. Þeir voru því rúma 38 tíma á leiðinni. Frá Kisu er stutt inn að gatna- mótum neðan Setursins. Þar er hægt að velja um tvær leiðir til byggða. Til vinstri er Illahraunsleið sem liggur norðan Kerlingafjalla og á Kjalveg. Leiðin til hægri liggur um Fjórðungssand og Gljúfurleit og þaðan á Sprengisandsleið við Sultartanga. Hrunamannaafréttur og Klakksleið Ferðalangar í Kisugljúfri. Ferðalangar við Svínárnesskála. Á leið yfir Búðará. JÓN G. SNÆLAND Ritari Ferðaklúbbsins 4x4 Bíll: Mikið breyttur Toyota 4Runner á 44“ dekkjum { leiðin mín } ■■■■ { á fjöllum } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Aukaeldsneytistankur gegnir hlutverki bensínstöðvar í löng- um ferðum. Flestir jeppar eyða meira eldsneyti en fólksbílar við venjulegar aðstæður. Við erfiða ferðamennsku eykst eyðslan til muna, reyndar svo mikið að talað er um eyðslu á klukkustund, ekki á hverja hundrað kílómetra. Það er sjaldgæft, en ekki óþekkt, að eyðslan fari upp í einn lítra á hvern kílómetra við allra erfiðustu aðstæður. Það er nauð- synlegt að vera með varabirgðir af eldsneyti með sér því aðeins er ein bensínstöð á öllu hálendi Íslands. Aukatankarnir eru yfirleitt tengdir aðaltönkum bíla með röri eða slöngu og lítil dæla sér um að dæla á milli tanka þegar lækka fer í aðaltankinum. Helsti gallinn við að bera með sér aukaeldsneyti er aukin þyngd en flestir reyna að hafa bíla sína sem léttasta í vetrarferðum. Hvert aukakíló getur komið niður á drifgetu. til hvers er... Aukatankur? HOFSJÖKULL LANGJÖKULL Þjórsárdalur Setrið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.