Fréttablaðið - 17.02.2006, Side 45
11
Lóló (low-low) er gælunafn á auka
lágu drifi. Það er sett í bíla til að
auka niðurgírun. Því lægri sem
gírunin er, því hægar snúast hjólin
í hlutfalli við snúningshraða vélar-
innar. Með því minnka líkur á að
bíllinn spóli og því er lóló aðallega
notað við mjög þungt færi þar sem
ómögulegt er að komast áfram með
öðru móti. Niðurgírunin getur verið
slík að það taki dekkin nokkrar
mínútur að fara einn hring.
Sumir hafa líkt lóló við það að
vanda sig við að þræða nál. Það
gengur betur rólega en ef nálin
kemur fljúgandi á 50 km hraða.
Til hvers er...
Lóló?
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { á fjöllum } ■■■■
Skófludekk og
aukabúnaður
Jeppar eru stöðutákn í augum
margra. Í sumum jeppum felast
óneitanlega yfirlýsingar um lífsstíl
þeirra sem aka þeim.
Í augum margra er jeppi ekki
það sama og jeppi. Sumir láta sér
ekki nægja hefðbundinn götujeppa
eða jafnvel hóflega breyttan jeppa.
Sumir kjósa að breyta jeppunum
sínum meira en brýnasta nauðsyn
krefur. Eins og sjá má á þessum
myndum hafa sumir jeppar farið í
gegnum hressilega yfirhalningu.
Eitt sinn var þessi bíll vafalaust með hefð-
bundnu sniði. Núna prýða hann risastór
skófludekk og æpandi litir. Þar sem bíllinn
er frekar áberandi hefur eigandanum ekki
fundist úr vegi að tileinka frelsaranum
sjálfum bílinn eins og sjá má. ,,Jesús er
vegurinn“, stendur á framrúðu hans. Þessi
bíll þarf þó tæpast vegi til að keyra á.
Wrangler-jeppar eru glæsilegir. Þetta eintak
hefur verið hækkað upp með 44 tommu
dekkjum.
Þessi glæsilegi Willys-jeppi fæst ekki
ókeypis. Bíllinn er með miklum aukabún-
aði og kemur fullbúinn til fjallaferða.
Þessi sportlegi blæjujeppi frá Jeep er
þeim eiginleikum búinn að hann beygir á
öllum hjólum sem gerir hann mjög lipran í
erfiðum aðstæðum.
Dekkjahreinsir er nauðsynlegur
fyrir þá sem keyra á ís og snjó,
hvort sem er á fjöllum eða í byggð.
Tjara og óhreinindi mynda húð
á dekkjum, sérstaklega á bílum
á suðvesturhorni landsins, og
minnkar grip þeirra á snjó og ís
til muna. Með dekkjahreinsi eru
óhreinindin þvegin af og dekkin
ná fyrra viðnámi.
Ekki gleyma...
Dekkjahreinsi
MICKEY THOMPSON 38“
Mickey Thompson er
nú kominn með nýja
línu í 38“ radial jeppa-
dekkjum. Þau eru 38“
á hæð og að minnsta
kosti einni tommu
breiðari en gömlu 38“
dekkin, þó þau eigi
að heita það sama eða
38x15,5R15.
Boðið er upp á þrjár
mynsturgerðir. ATZ sem
eru frekar fínmynstruð,
MTZ sem eru milligróf og
henta við flestar aðstæður, og loks
Baja Claw sem eru mjög
grófmynstruð fyrir þá
sem vilja taka vel á.
Öll þessi mynstur
eru einnig fáanleg
fyrir 16“ og 18“ felg-
ur og eru dekkin þá
einnig með 6 striga-
laga hliðum, sem
tryggir það að þau eru
mjúk í akstri og leggj-
ast vel við úrhleypingu.
Einnig er á dekkjunum
hliðarmynstur, svo kall-
að „side bides“ sem gefur
aukið grip við úrhleypingu og ver
einnig hliðarnar ef ekið
er á grjót. Dekkin fást
hjá Fjallasporti og
hjá umboðsmönn-
um um allt land.
AT405 RADIAL
Arctic Trucks hefur
hafið sölu á AT405
dekkjum sem eru
sérstaklega hönnuð
fyrir snjó og bleytu,
sem eru séríslenskar
aðstæður. Hönnun hófst
á dekkinu árið 2000 og
byggir á reynslu íslenskra jeppa-
manna, en dekkið er hann-
að frá grunni af Íslend-
ingum.
Dekkið er sérhann-
að sem vetrardekk
og kemur flipaskor-
ið. Það stendur 38,1
og er með jafnbreitt
mynstur og á gamla
Cepek-dekkinu. Hann-
að fyrir 12“-14“ breiðar
felgur og er 6 strigalaga,
1.365 kr. pr. dekk. Gúmmíið
í dekkinu heldur vel eig-
inleikum sínum þrátt fyrir
hitasveiflur.
Ný jeppadekk á markaði
Mickey Thompson 38“ dekk og AT405 Radial.
Mickey Thompson
38“ dekk.
AT405 Radial dekk
frá Arctic Trucks.