Fréttablaðið - 17.02.2006, Page 71

Fréttablaðið - 17.02.2006, Page 71
Færeyski kammerkórinn Tarira heldur tónleika í Kristskirkju við Landakot á sunnudaginn. Ein- leikari á tónleikunum verður hinn efnilegi íslenski hornleikari Stef- án Jón Bernharðsson Wilkinson. Kórinn hefur starfað í tæp fjög- ur ár og sérhæfir sig í endurreisn- artónlist og nútímatónlist. Hann hefur sungið verk eftir færeyska rithöfundinn William Heinesen, sem og önnur færeysk og norræn ljóðskáld, en í þetta sinn eru tón- leikarnir helgaðir harmaljóðum upp úr heilagri ritningu. Kórinn flytur De Lamentatione Jeremi- ae, eða Harmatölur Jeremíasar, í þremur mismunandi útgáfum. Tvö verkanna, sem kórinn flyt- ur við þennan texta, eru eftir enska sextándu aldar tónskáldið Thomas Tallis, en hið þriðja er eftir Robert White, sem eins og Tallis var uppi á endurreisnartímanum. Auk þess flytur kórinn nútíma- verk eftir skoska tónskáldið James MacMillan, A Child‘s Prayer, sem tónskáldið hefur tileinkað fórnar- lömbum harmleiksins í Dunblane árið 1996. Þetta sorgarverk er skrifað fyrir tvo einsöngvara og blandaðan kór. Kórinn myndar örlagaþrungið, suðandi baktjald yfir bænum barnanna, er berast frá angurværum sópranröddum einsöngvaranna. Síðast á efnisskránni er verk Benjamins Brittens, Prayer II, sem er hið fyrsta í röð fimm verka, er Britten samdi við ljóð Gerards Manleys Hopkins. Stjórnandi kórsins er Sunleif Rasmussen, en hann er fyrst og fremst þekktur utan Færeyja fyrir tónverk sín. Árið 2003 fékk hann tónlistarverðlaun Norður- landaráðs fyrir fyrstu færeysku symfóníuna: Symfoni nr 1 „Ocean- ic Days“. Tónleikar kórsins í Kristskirkju hefjast klukkan 16 á sunnudag- inn. Færeyskur kór flytur harmaljóð FÆREYSKI KÓRINN TARÍRA Nafnið er fengið úr smiðju Williams Heinesen, þar sem kven- lega draumadísin Tarira er tákn leiks, fegurðar og lista.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.