Fréttablaðið - 17.02.2006, Qupperneq 74
17. february 2006 FRIDAY38
tonlist@frettabladid.is
1. SYSTEM OF A DOWNLONELY DAY
2. DIKTABREAKING THE WAVES
3. SHINEDOWNSAVE ME
4. MATISYAHUKING WITHOUT A CROWN
5. NINE INCH NAILSEVERY DAY IS EXACTLY THE SAME
6. DR. MISTER & MR. HANDSOMEKOKALOCA
7. FRÆFREÐINN FÁVITI
8. RICHARD ASHCROFTBREAK THE NIGHT WITH COLOUR
9. DEAD SEA APPLEBEARER OF BAD NEWS
10. CHILDREN OF BODOMOOPS, I DID IT AGAIN
X-LISTINN
TOPP TÍU LISTI X-INS 977
SYSTEM OF A DOWN Rokkararnir
ógurlegu eru komnir í toppsætið með
lagið Lonely Day.
> Plata vikunnar
Test-Icicles: For Screen-
ing Purposes Only
„Breska sveitin Test-Icicles
hefur vakið mikla eftirtekt
síðustu mánuðina í heima-
landi sínu. Ekkert undarlegt
þegar nær skotheldri frumraun þeirra er rennt
í gegn. Svona hljómar gott rokk og ról!“- bös
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Úlpa: Attemted Flight By
Winged Men, The Stooges:
The Stooges, Pavement:
Brighten the Corners, Bonnie
„Prince“ Billy: Ease Down
the Road og Tom Waits: Blood
Money.
Cat Power: The Greatest
„Á sjöundu breiðskífu sinni er Cat Power
studd af undirleikssveit Als Green. Sem fyrr
gefur söngkonan hlustandanum örlítinn hluta
af sálu sinni og skilar af sér afbragðs plötu.“
BÖS
Richard Ashcroft: Keys to
the World
„Þriðja breiðskífa Richards Ashcroft er eins og
hinar tvær. Frekar flöt og óspennandi. Hljómar
eins og plata frá listamanni í tilvistarkreppu.“
BÖS
Siggi Ármann: Music for the
Addicted
„Þessi önnur plata Sigga Ármanns er bæði
lágstemmd og tilfinningarík og í raun fyrirtaks
plástur á brothætt sálarlíf. Munið bara: innri
fegurðin skiptir mestu máli.“ FB
Stórsveit Nix Noltes: Orkíed-
ur Hawaii
„Stórsveit Nix Noltes á mikla athygli og ennþá
meiri tónleikaaðsókn skilda fyrir þessa hressandi
tónlist sem hefur þann þó neikvæða fylgikvilla að
henta ótrúlega illa til hlustunar í heyrnartólum.“
BG
The Decemberists:
Picaresque
„Það er ótrúlega upplífgandi að heyra að það
séu enn til menn í heiminum sem eru virki-
lega að reyna að koma laga- og textasmíðum
á æðra plan. Í þeim efnum fáið þið varla betra
framlag en þriðju plötu The Decemberists.“
BÖS
Stevie Wonder:
A Time To Love
„Stevie Wonder rýfur tíu ára útgáfuþögn með
plötu sem er því miður alltof væmin og löng til
þess að hægt sé að njóta hennar almennilega.
Sýnir þó að hann er ekki búinn að missa
náðargáfu sína endanlega.“ BÖS
Konono N1: Congotronics
„Konono N1 er ólíkt öllu öðru sem þú hefur
heyrt um ævina. Þetta er eldgömul sveit frá
höfuðborg Kongó þar sem helsta undirstaðan
eru þumlapíanó og ásækinn taktur.“
BÖS
SMS UM NÝJUSTU
PLÖTURNAR
Tónlistarmaðurinn
Mugison, sem var nýverið
kjörinn besti flytjandinn
á Íslensku tónlistarverð-
laununum, heldur tónleika
með kammersveit Salarins
í Kópavogi, KaSa, í kvöld.
Freyr Bjarnason fræddist
nánar um þetta óvenjulega
samstarf.
Með Mugison í kvöld spila þau
Áshildur Haraldsdóttir á flautu,
Elfa Rún Kristinsdóttir á fiðlu,
Helga Þórarinsdóttir á víólu, Sig-
urgeir Agnarsson sellóleikari og
Nína Margrét Grímsdóttir píanó-
leikari. Slagverksleikur er í hönd-
um Péturs Grétarssonar.
Meirháttar tónlistarmaður
Nína Margrét, sem jafnframt er
listrænn stjórnandi KaSa ásamt
Áshildi, segir að aðdragandinn að
tónleikunum hafi staðið yfir í rúmt
ár. „Okkur langar alltaf að sækja á
ný mið varðandi samstarf, bæði
með klassískum listamönnum og
úr öðrum tónlistargreinum. Það er
mikilvægt líka til að fá fjölbreytt-
ari áhorfendahóp. Okkur fannst
mjög tilvalið að hafa samband við
hann. Hann hafði verið að gera
mjög góða hluti og við höfum kom-
ist að því að hann er meiriháttar
tónlistarmaður, alveg frábær,“
segir Nína Margrét um Mugison.
„Það er svolítið sérstakt að
vinna með manni sem er ekki bara
söngvari og spilari heldur líka höf-
undur. Það gefur nýja vídd fyrir
okkur sem erum flytjendur að fá
smá innsýn inn í lagahöfundinn, í
þessu tilfelli Mugison,“ segir hún.
Áður hefur KaSa meðal annars
starfað með Eivöru Pálsdóttur og
rokksveitinni Búdrýgindum með
góðum árangri.
Nýtt efni frumflutt
Nína segir að tónlist Mugison sé
fjölbreytt og bæði sé ryþminn og
hljómagangurinn mjög flókinn og
krefjandi að spila. Engu að síður
sé gaman að takst á við þetta verk-
efni. Tónleikarnir í kvöld munu
spanna allan feril Mugisons auk
þess sem hann mun frumflytja
nýtt efni.
„Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt og lærdómsríkt.
Hann er fyrsta flokks tónskáld á
nútíma mælikvarða og hann hefur
greinilega gott næmi til að semja
fallegar melódíur,“ segir Nína.
„Hann fléttar þeim inn í mikinn
polryþma sem kemur rosalega
flott út þegar það blandast saman.
Einfaldur ryþmi er mjög algeng-
ur í popptónlist en Mugison fer
lengra en það og gerir kröfur til
sjálfs sín. Laglínurnar hans geta
alveg staðið sjálfar en hann fer
lengra og það sýnir bara metnað-
inn í honum.“
Færa út kvíarnar
KaSa-hópurinn var stofnaður árið
2001 og er því á fimmta starfsári.
Hann hefur spilað víða í Reykjavík
auk þess sem hann hefur farið til
Japans og Færeyja. Einnig stend-
ur til að spila í Kaupmannahöfn í
haust. „Við erum smátt og smátt
að færa út kvíarnar hvað þetta
varðar. Það er mikilvægt fyrir
tónlistarfólk að ferðast út fyrir
landið og þá koma styrkirnir sem
við höfum fengið að mjög góðum
notum,“ segir Nína.
Uppselt er á tónleikana í kvöld
sem hefjast klukkan 20.00.
freyr@frettabladid.is
Fyrsta flokks tónskáld
MUGISON Nína Margrét segir tónlist Mugisons bæði
fjölbreytta og margslungna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
1
.
tb
l.
2
9
.
á
rg
.
2
0
0
6
V
e
rð
8
9
9
k
r.
m
/v
s
k
10
HEIMILI - MATUR - TÍSKA - STJÖRNUSPÁ
LEIÐTOGINN
Ásdís Halla Bragadóttir
Hvernig er góður
stjórnandi?
Átta vikna afeitrunarkúr
TAKTU ÞIG
Í GEGN!
ALDREI OF SEINT
að skipta um vinnu
EINHLEYPAR
OG ENGUM
HÁÐAR
Trend & tíska
best klæddu
konurnar
2006
UPPSELT HJÁ ÚTGEFANDA!
> Popptextinn
„If there‘s one thing
you can say about
mankind
There‘s nothing kind
about man
You can drive out nature with a
pitch fork
But it always comes roaring back
again“
TOM WAITS HEFUR LITLA TRÚ Á MANN-
KYNINU Í MISERY IS THE RIVER OF THE
WORLD AF PLÖTUNNI BLOOD MONEY.
Tónlistarmaðurinn Hjörtur Geirsson hefur gefið út
plötuna Searching for a Hit með fimm kántrílögum
eftir sjálfan sig.
Þrjú þeirra hafa fengið verðlaun í alþjóðlegum
lagasmíðakeppnum í Paramount í Bandaríkjunum.
Hlaut hann m.a. viðurkenninguna „exellence in
songwriting“.
Þrjú þeirra hafa jafnframt verið gefin út á safn-
plötu í Paramount í Nashville.
Hjörtur gaf út sína fyrstu og einu
plötu, The Ballads of the Undefined, árið
2001. „Ég er búinn að vera í tónlist
frá því ég var unglingur en hætti
í ein fimmtán ár þangað til
um aldamótin, þá byrjaði
ég aftur,“ segir Hjörtur, sem
hefur m.a. spilað á bassa með
hinum ýmsu trúbadorum.
„Ég hef verið að semja og
senda lög bæði til Nashville og
New Jersey og síðan fékk ég þess-
ar viðurkenningar í þessum keppnum,“ segir hann.
Þrátt fyrir að Hjörtur sé mikill kántríbolti segist
hann ekki hafa haft neinn sérstakan áhuga á kántrí
í æsku. „Ég hlustaði aðallega á kántrírokk en ekki
endilega þetta „púra“ kántrí. Ég á engan sérstakan
uppáhalds kántrítónlistarmann, nema kannski
Johnny Cash og Elvis Presley sem átti rætur í
kántríinu.“
Hjörtur, sem starfar á líkamsræktarstöð, ætlar
að halda áfram að semja lög og æfa sig á hljóð-
færi. Hefur hann sent lög í nokkrar lagasmíða-
keppnir til viðbótar og er að bíða eftir úrslitum úr
þeim. Einnig er hann með-
limur í lagasmíðafélagi í
Nashville og tekur þátt í
starfsemi á þess vegum.
Hjörtur segir það vel inni
í myndinni að flytja til Nashville eða Las
Vegas til að einbeita sér að tónlistarferlinum.
Hvað varðar spilamennsku hér heima segir hann
að ekkert sé ákveðið í þeim efnum.
Fékk viðurkenningu í Nashville