Fréttablaðið - 17.02.2006, Síða 80

Fréttablaðið - 17.02.2006, Síða 80
44 17. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FEBRÚAR 14 15 16 17 18 19 20 Föstudagur ■ ■ LEIKIR  19.00 Þór og Afturelding mætast í DHL-deild karla í handbolta.  19.15 Fylkir og Fram mætast í DHL-deild karla í handbolta.  19.15 Valur og FH mætast í DHL- deild karla í handbolta.  19.15 KA og Vík./Fjölnir mætast í DHL-deild karla í handbolta.  20.00 Selfoss og ÍR mætast í DHL- deild karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  12.55 ÓL í Tórínó á Rúv. Snjóbretti.  16.00 ÓL í Tórínó á Rúv. Undanúrslit í íshokký kvenna.  18.20 ÓL í Tórínó á Rúv. Fyrri sam- antekt dagsins.  23.00 Stjörnuleikur NBA á Sýn. Bein útsending. Mörgum stuðningsmönnum handbolta- liðs Stjörnunnar yljaði um hjartaræturn- ar sl. miðvikudagskvöld þegar þeir sáu hinn gamalkunna hornamann Konráð Olavsson klæðast bláu treyjunni á ný. Konráð lék þá nokkrar mínútur í jafntefli Stjörnunnar gegn ÍR og segir hann að stuðningsmennirnir megi búast við því að sjá meira af honum í vor. „Ég var eitt- hvað að sniglast þarna,“ sagði Konráð hlæjandi þegar Fréttablaðið spurði hann um endurkomu hans í handboltann, en í Konráð býr margreyndur landsliðsmað- ur sem kemur með mikla reynslu inn í lið Stjörnunnar. „Ég bý í Garðabænum og hef í nokkurn tíma verið að þjálfa yngri flokka hjá Stjörnunni. Í liðinu núna eru strákar sem ég þjálfaði áður í yngri flokkunum og einnig leikmenn sem ég spilaði með á árum áður,“ segir Konráð og viðurkennir að hann hafi verið undir nokkurri pressu frá viðkomandi leikmönnum að snúa aftur. Í dag er Konráð 38 ára gamall og kveðst í ágætis formi. „Liðið hefur yfir frábærum mannskap að ráða en það vantar kannski örlitla útsjónarsemi á köflum. Ég vonast til að geta aðstoð- að aðeins við það.“ Konráð segist alltaf hafa vitað að hann væri meira en velkominn inn í þennan hóp en það hafi verið tímasetningin sem réð miklu um að hann lét slag standa. „Ég hef verið í skóla á kvöldin meðfram fullri vinnu síðustu ár en kláraði hann um jólin,“ segir Konráð sem þurfti því að finna sér eitthvað að gera eftir vinnu. „Ég hef verið að æfa á fullu síðan í desember. Þetta er ekkert nýtt fyrir mér. Ég er búinn að spila fyrir Stjörn- una samtals í næstum áratug og þekki alla þessa stráka í liðinu. Að mínu mati er tímabilið í ár algjört dauðafæri fyrir Stjörnuna, liðið er frábært en það vantar aðeins herslumuninn. Mér verður ekki skipt inn á fyrir Tite Kalandadze til að skora mörkin en ég vona að ég geti hjálpað eitthvað til,“ segir Konráð sem ætlar að klára núverandi tímabil og sjá svo til með framhaldið. HANDBOLTAMAÐURINN KONRÁÐ OLAVSSON: HEFUR DUSTAÐ RYKIÐ AF KEPPNISSKÓNUM Vona að ég geti hjálpað eitthvað til FÓTBOLTI Heiðar Helguson hefur slegið í gegn hjá Fulham í und- anförum leikjum eftir erfiða fæðingu hjá úrvalsdeildarliðinu. Heiðar, eða H, eins og hann er kallaður hjá klúbbnum, færði sig um set eftir dvöl hjá Watford og er nú kominn á hærri stall. Heiðar hefur skorað átta mörk fyrir sitt nýja félög og verður vinsælli með hverjum leiknum hjá stuðnings- mönnum félagsins. „Ég hef alltaf verið duglegur leikmaður og sýnt mínu félagi hollustu. Ég tel að það sé ein af aðalástæðunum að ég er hér. Hollusta og dugnaður hafa alltaf verið mínir tveir helstu kostir. Þeir hafa skilað mér þangað sem ég er í dag,“ sagði Heiðar í viðtali við opinbert vefsetur Fulham en eins og áður sagði tók það hann þónokkurn tíma að festa sig í sessi í liðinu. „Ég fékk fyrst bara að spila í bikarleikjum þegar ég kom til félagsins. Ég veit að Lincoln er neðrideildarlið en við mættum WBA líka. Kannski fékk fólk smjörþefinn af því hvað ég get í þessum leikjum. Það tók sinn tíma að komast í aðalliðið þar sem Brian McBride var duglegur að skora, og er enn, líkt og Coll- ins John,“ sagði Heiðar og viður- kenndi gremju sína. „Ég neita því ekki að ég var orðinn svolítið pirraður á ákveðn- um tímapunkti. En þegar ég lít til baka sé ég að það hefði kannski ekki verið betra að vera hent beint út í djúpu laugina. Það minnkar pressuna aðeins að byrja rólega, það gefur þér tíma til að venj- ast liðsfélögum þínum og þeim að kynnast þér og þínum leik, til dæmis hvar þú vilt fá boltann. Það hefði ekki hjálpað öllum leikmönn- um en það hentaði mér vel. Stuðn- ingsmennirnir hafa líka miklar væntingar til nýrra leikmanna og að koma sér fyrir þægilega getur hjálpað í þeim skilningi líka. Það verður engum meint af því að sitja á bekknum í smá tíma og sjá hvernig hlutirnir eru gerðir,“ sagði Heiðar sem er 28 ára gamall og hefur því orðið mikla reynslu en hann er þekktur fyrir að láta til sín taka á vellinum. „Því eldri sem þú verður, því meiri reynslu öðlast þú. Þú gerir þér grein fyrir því að þú getur ekki verið alveg á fullu á hverri æfingu. Ég fer því ekki í hverja tæklingu á æfingum eins og ég myndi gera í leikjum, ég held að það væri ekki sanngjarnt gagn- vart liðsfélögum mínum,“ sagði Heiðar en hann og Bandaríkja- maðurinn Brian McBride hafa náð vel saman. „Samstarfið okkar gengur vel, við erum að skora reglulega. Við erum tveir sívinnandi leikmenn og Brian er mjög góður leikmað- ur með mikla reynslu. Hann hefur meira að segja spilað á heims- meistaramóti og því er hægt að læra mikið af honum. Við erum líka nokkuð líkir í útliti, sumt fólk ruglast meira að segja á okkur og ég hef oft lent í því að fólk kemur upp að mér og kallar mig Brian,“ sagði Heiðar að lokum. hjalti@frettabladid.is Ég var orðinn svolítið pirraður Heiðar Helguson er búinn að slá í gegn hjá Fulham eftir langa bekkjarsetu í upphafi tímabilsins. Heiðar segir í samtali við heimasíðu Fulham að oft sé ruglast á honum og öðrum framherja félags- ins, Brian McBride, en Heiðar segir að þeir nái vel saman. FÖGNUÐUR Heiðar fagnar mér marki með Tomasz Radzinski á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FJÖRKÁLFUR Heiðar hefur beðið þolinmóð- ur á hliðarlínunni eftir tækifæri í aðalliðinu og nýtur sín greinilega vel á vellinum þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES ÓL Í TÓRÍNÓ Olga Pyleva, sem hafn- aði í 2. sæti í 15 km skíðaskotfimi á ÓL í Tórínó, varð í gær fyrsti keppandinn á leikunum til að falla á lyfjaprófi. A og B sýni sem tekin voru eftir 15 km gönguna reyndust jákvæð og sýndu að Pyleva hafði neytt Carphedon, sem er örvandi efni og á bannlista Alþjóða Ólympíu- nefndarinnar. Hin þrítuga Pyleva hefur þegar verið svipt silfrinu sem hún hlaut í 15 km göngunni og dró hún sig úr 7,5 km göngunni áður en keppni hófst í henni í gærmorgun. Pyleva þótti þar afar sigur- strangleg en hún hefur um ára- bil verið einn öflugasti kvenkyns keppandinn í skíðagöngu og skíða- skotfomi og hefur unnið til fjölda heimsmeistaratitla. - vig Rússneskur silfurverðlaunahafi: Féll á lyfjaprófi FÓTBOLTI Anton Ferdinand, leik- maður West Ham, hefur ekki gefið upp alla von að komast á heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. Hann vonast til að feta í fótspor Rio bróður síns sem verð- ur að öllu óbreyttu í liði Englend- inga á mótinu. „Ég yrði ótrúlega glaður ef ég yrði valinn í liðið. Ef ekki, þá er ég enn auðvitað bara tvítugur og á mörg ár fyrir höndum sem atvinnumaður. Ég ætla bara að láta fótboltann um að tala fyrir mig og það sem menn sjá kveður úr um hvort ég komist á mótið,“ sagði Ferdinand sem hefur aldrei verið valinn í aðallandslið Eng- lands. Bróðir hans Rio verður án efa í liðinu auk Johns Terry og þá eru Jamie Carragher, Sol Campbell, Jonathan Woodgate og Ledley King allir á undan Anton Ferdin- and í goggunarröðinni. Það þyrfti því margt að ganga upp til að þessi ungi miðvörður komist með en hann hefur þó spilað feikilega vel fyrir Hamrana á tímabilinu. - hþh Anton Ferdinand, leikmaður West Ham, er fullur af metnaði þessa dagana: Vonast til að komast á HM ANTON FERDINAND Á sér draum um að spila við hlið bróður síns á HM í sumar.. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES > Birkir Ívar á leið til Þýska- lands Langþráður draumur landsliðsmar- kvarðarins Birkis Ívars Guðmundssonar rætist í sumar þegar hann gengur í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Tus N Lubbecke. Birkir Ívar hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið en með því leikur fyrrum félagi hans hjá Haukum, Þórir Ólafsson. Hafþór Ægir meiddur Hinn ungi og stórefnilegi leikmaður ÍA, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, mun ekki leika með liðinu næstu misserin vegna meiðsla. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru en Hafþór fór í skoðun í gær og hann fær niðurstöðu úr skoðun- inni í dag. Hefur sé› DV í dag? flú SÆVAR ÓLI HELGASON RÉðst á sýslumann í héraðsdómi é 2x10--lesin 16.2.2006 20:46 Page 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.