Fréttablaðið - 17.02.2006, Qupperneq 81
FÖSTUDAGUR 17. febrúar 2006 45
Carlsberg býður þér og vini þínum
á Highbury að sjá
Arsenal vs Real Madrid 8. mars!
Sendu SMS skeytið JA MEF
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
Við sendum þér
2 spurningar.
Þú svarar með því
að senda
SMS skeytið JA A, B eða
C á númerið 1900.
EIKUR SMS LEIKUR SMS LEIKUR SMS L
EIKUR SMS LEIK
Meistaradeildin í 100% beinni!
Henry vs. Beckham
Arsenal vs. Real Madrid
9. hver vinnur! Ferð þú á leikinn?
Léttöl
Vinningar verða afhentir í Skífunni Smáralind/Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Þú gætir unnið:
• Ferð fyrir 2 á leikinn*
• PS2 tölvu
• PSP tölvu
• Fótbolta tölvuleiki
• Fullt af DVD og
tölvuleikjum og fleira!
*Ferðin á leikinn erdreginn úr ölluminnsendum skeytumþann 6. mars.Vinningshafi verðurbirtur á www.gras.is
Opið laugardaga 10-14
HUMARTILBOÐ
30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HUMRI
Í DAG FÖSTUDAG OG LAUGARDAG.
strákar verið nú góðir við konuna
og gefið henni gott að borða.
Hún á það skilið!!!
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson,
fyrirliði íslenska landsliðsins,
segist ekki trúa því að Serbar
hafi tapað viljandi fyrir Króöt-
um í leik liðanna á EM í Sviss
fyrir skemmstu, en sem kunnugt
er greindu fjölmiðlar á Spáni og
í Serbíu frá því fyrr í vikunni
að leikmenn Serba hefðu fengið
skipanir frá þjálfara og forráða-
mönnum liðsins að tapa leiknum
¿ til þess að eiga greiða inni hjá
Króötum í framtíðinni.
Sagt var að Arpad Sterbik,
markvörður Serba og samherji
Ólafs hjá Ciudad Real á Spáni,
hefði sagt liðsfélögum sínum frá
þessu skömmu eftir að EM lauk
en Ólafur sagði við Fréttablaðið
í gær að hann hefði að minnsta
kosti ekki verið viðstaddur þær
umræður á æfingu liðsins.
„Ég hlýt að hafa verið ein-
hverstaðar annars staðar, að lyfta
eða eitthvað þvíumlíkt. Konan
mín sagði mér fyrst frá þessu í
fyrradag svo að ég kem alveg af
fjöllum,“ sagði Ólafur og hló létt
að öllu saman.
„En mín persónulega skoðun
er að þetta sé ekki rétt. Ég þekki
Serba og ég þekki Króata og trúi
því bara ekki að þeir myndu taka
þátt í svona ráðabruggi. Ég sá
líka þennan leik og það var allt
á suðupunkti. Þetta væri svipað
eins og við myndum tapa viljandi
fyrir Noregi, Svíþjóð eða Dan-
mörku. Það myndum við aldrei
gera,“ segir Ólafur og bætir við
að tengslin milli Króatíu og Ser-
bíu séu enn sterkari og heitari ef
eitthvað er. „Í þessum löndum er
það nánast heilög skylda að vinna
erkifjendurna og því þykir mér
afar ólíklegt að þetta sé rétt.“
Ólafur kveðst annars vera á
hægum batavegi eftir að hafa
fengið þungt högg á síðuna ein-
mitt í leiknum gegn Serbum á EM
og hefur hann ekkert spilað með
Ciudad eftir að hann sneri aftur
þangað. „Ég er að tjaslast saman
og spila kannski um helgina.
Annars stefni ég á að vera klár í
næsta leik okkar í Meistaradeild-
inni eftir 10 daga.“ - vig
Ólafur Stefánsson trúir því ekki að Serbar hafi tapað viljandi fyrir Króötum á EM
Sterbik ekkert sagt við mig
ÓLAFUR STEFÁNSSON Sést hér taka við sendingu frá Alexander Petersson í leiknum við Serba á EM í Sviss. Í baksýn sést Veselin Vujovic,
þjálfari Serba, sem sagður er hafa skipað lærisveinum sínum að tapa fyhrir Króatíu síðar í keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/BÖDDI
FÓTBOLTI Sænski framherjinn
Henrik Larsson hefur ákveðið að
ganga til liðs við sænska félag-
ið Helsingborg í sumar eftir að
samningur hans við Barcelona
rennur út. Þessi 34 ára gamli
markahrókur hefur ekki náð að
festa sig almennilega í sessi hjá
Barcelona en hann hefur verið
mikið meiddur.
„Ég hef alltaf verið stuðnings-
maður Helsingborg og fyrir mér
var aldrei spurning um hvar ég
myndi ljúka ferlinum,“ sagði Lars-
son við sænska fjölmiðla í gær
en hann er hættur við að leggja
landsliðsskóna á hilluna og spilar
því með Svíum á HM í sumar.
Larsson gekk til liðs við Bar-
celona árið 2004 frá Celtic í Skot-
landi þar sem hann spilaði lengst
af á ferli sínum. - hþh
Henrik Larsson farinn að undirbúa lok ferils síns:
Lýkur ferlinum
í Helsingborg
HENRIK LARSSON Fer til Helsingborgar í sumar. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Gary Megson er hættur
sem knattspyrnustjóri Notting-
ham Forest eftir aðeins þrettán
mánuði í starfi. Enska 1. deildar-
liðið var undir mikilli pressu með
að losa sig við Megson. Stuðn-
ingsmenn liðsins hafa mótmælt
stjóranum lengi en hann tók við
starfinu af Joe Kinnear í janúar á
síðasta ári.
Stuðningsmenn liðsins hafa
þurft að horfa upp á þessa fyrrum
Evrópumeistara hríðfalla niður
deildina og eftir 3-0 tap gegn Old-
ham á miðvikudaginn var mæl-
irinn loksins fullur en liðið hefur
aðeins unnið einn leik af síðustu
tíu en liðið er einungis fjórum
stigum fyrir ofan fallsæti.
Stjórn klúbbsins komst að sam-
komulagi við Megson um að rifta
samningnum en ekkert hefur
heyrst af eftirmanni Megsons.
Notthingham Forest leitar að knattspyrnustjóra:
Megson farinn frá Forest
GARY MEGSON Leitar að nýju starfi.
NORDICPHOTOS/AFP