Fréttablaðið - 17.02.2006, Page 82
17. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR46
�������������������������������
�������������������������������������
���������������������������������������������������������
�������������������������������������������������� ���
�����������������������
����������������������������� �������������������������
����������������������������������� �������������������
��������������������������������������������������������
���������������������������������������������������������
��������������������� ���������������������������������
���������������������� ����������������������������������
������������������������������������ ����������������������
�����������������������������������������������������
��������������������������
����������������������������
HANDBOLTI Atli Hilmarsson, þjálf-
ari FH, verður fjarri góðu gamni
næstu fjórar vikurnar þar sem
hann er nýbúinn að gangast undir
aðgerð vegna brjóskloss í baki.
Arnar Geirsson, sem hefur verið
hægri hönd Atla í vetur, mun
leysa hann af hólmi á meðan en
Arnar byrjaði aldeilis vel í fyrsta
leik er FH lagði Fylki með einu
marki, 28-27.
„Ég má hreyfa mig aðeins en
er ekki líklegur til neinna stóraf-
reka,“ sagði Atli við Fréttablaðið í
gær en hann lagðist undir hnífinn
á þriðjudag. „Það var ekki hægt
að fresta þessari aðgerð lengur
enda var ég farinn að verða dof-
inn í öðrum fætinum og það er
ekki góðs viti,“ sagði Atli sem ótt-
ast ekki um starf sitt þótt Arnar
hafi byrjað vel í fyrsta leik. „Nei,
alls ekki. Arnar er ekki týpan sem
grefur undan manni og ég vona að
strákarnir taki öll þau stig sem
eru í boði á meðan ég er meidd-
ur.“
Arnar Geirsson, sonur Geirs
Hallsteinssonar og eldri bróðir
Loga Geirssonar, mun stýra FH-
liðinu í fjarveru Atla en Arnar,
sem er 34 ára, kom heim til Íslands
fyrir ári síðan eftir tólf ára útlegð
í Austurríki og Þýskalandi.
„Ég fór upphaflega út til Aust-
urríkis og sameinaði þá nám í
margmiðlun og handboltaiðkun
en ég lék með Bregenz í þrjú ár en
það er einmitt lið Dags Sigurðs-
sonar. Síðan fór ég til Þýskalands
þar sem ég lék með liðum í þýsku
2. og 3. deildinni,“ sagði Arnar en
þriðji bróðirinn, Brynjar, hefur
einnig leikið í Þýskalandi sem og
faðir drengjanna, Geir Hallsteins-
son.
Arnar þjálfar einnig annan og
þriðja flokk FH þannig að það er
nóg að gera hjá honum og hann
segist ekki hafa neinn sérstak-
an áhuga á að velta Atla úr sessi.
Hann ber Atla vel söguna og segir
gott að vinna með honum.
„Menn vildu vinna leikinn
gegn Fylki fyrir Atla og sem
betur tókst það,“ sagði Arnar
kátur. „Það hefur verið gaman
að vinna með Atla og við munum
sakna hans þann tíma sem hann
verður fjarverandi en vonandi
náum við að hala inn fleiri stig
áður en hann kemur aftur,“ sagði
Arnar Geirsson sem vinnur á dag-
inn hjá Golfsambandi Íslands sem
kerfisstjóri.
- hbg
Arnar Geirsson leysir Atla Hilmarsson af hólmi sem þjálfari FH:
Óttast ekki að hann muni
stela af mér starfinu
ATLI HILMARSSON Fór í aðgerð á þriðjudag
og stýrir FH ekki næstu fjórar vikurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ÍÞRÓTTIR Bandarískt íþróttalíf fór
á annan endann þegar skíðakapp-
inn Bode Miller greindi frá því
að hann hefði skíðað drukkinn og
oft verið í vafasömu ástandi efst
í skíðabrekkunni. Margir telja
hann sér á báti en þegar rýnt er
betur í söguna kemur í ljós að svo
er alls ekki og að áfengisdrykkja
og önnur vímuefnanotkun hefur
komið við sögu hjá mörgum
bandarískum afreksíþróttamönn-
um á úrslitastundu.
Frumherji drukkinna banda-
rískra íþróttakappa er ruðning-
skappinn Max McGee sem lagði
jarðveginn í fyrsta Super Bowl-
leiknum. Hann fór á svakalegt
fyllerí kvöldið fyrir leikinn enda
var hann varamaður og treysti
á að maðurinn í byrjunarliðinu
myndi ekki meiðast. Að sjálfsögðu
meiddist byrjunarliðsmaðurinn
og McGee, draugþunnur og í raun
enn drukkinn, varð að spila leik-
inn. Félagar hans sögðu hann hafa
verið svo glórulausan að hann
hefði varla getað sett á sig hjálm-
inn án aðstoðar. Það sem er ótrú-
legast við þessa sögu er sú stað-
reynd að McGee átti mjög fínan
leik og skoraði meðal annars tvö
snertimörk. Geri aðrir betur.
David Wells, fyrrverandi leik-
maður NY Yankees, er einn besti
kastari sem komið hefur fram í
bandaríska hafnaboltanum. Árið
1998 lék hann „fullkominn leik“
en það ótrúlega við frammistöðu
Wells var að kvöldið áður var hann
að djamma með fólkinu úr sjón-
varpsþættinum „Saturday Night
Live“ og hann játaði í ævisögu
sinni að hafa orðið haugfullur og
svo gott sem ónýtur daginn eftir
skrallið. Hann komst í gegnum
leikinn með því að drekka mikið
kaffi og raða í sig alls kyns verkja-
töflum. Skömmu eftir leikinn var
hann aftur kominn á djammið.
Bandarískir íþróttamenn nota
ekki bara áfengi í óhóflegu magni
að því er körfuboltamaðurinn
Charles Oakley greindi frá árið
2001. „Það eru strákar á vellinum
sem eru að spila í vímu eftir að
hafa verið að reykja marijúana. 60
prósent leikmanna deildarinnar
reykja kannabis,“ sagði Oakley.
Afrek David Wells var stór-
kostlegt en Dock Ellis, sem kast-
aði fyrir Pittsburgh árið 1970, lék
líka fullkominn leik en ekki eins
glæsilegan og Wells. Hann kast-
aði nefnilega aldrei nálægt and-
stæðingunum og þeir gengu því
allir í fyrstu höfn.
Ástæðan fyrir þessu athæfi
Ellis var sú að hann hafði tekið
LSD um morguninn og sýran
sá til þess að hann var vart með
meðvitund. Ellis játaði síðar að
boltinn hefði stækkað og minnkað
í höndunum á honum og á stund-
um sá hann ekki gríparann sinn
vegna vímunnar. Þessar kúnstir
urðu aftur á móti þess valdandi
að andstæðingnum tókst ekki að
skora.
Annars eru hafnaboltamenn
mestu fyllibytturnar í bandarískri
íþróttasögu og til eru endalaus-
ar og ótrúlegar sögur um afrek
þeirra undir áhrifum vímuefna.
henry@frettabladid.is
Miller er ekki fyrsti
drukkni íþróttamaðurinn
Umdeildasti íþróttamaður heims, Bode Miller, er ekki sá eini í bandarískri
íþróttasögu sem hefur keppt undir áhrifum áfengis.
STUÐBOLTI Hafnaboltamaðurinn David
Wells spilaði „fullkominn leik“ þótt hann
hefði verið mjög drukkinn kvöldið áður.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
UMDEILDUR KAPPI Bode Miller gerði allt brjálað á dögunum þegar hann játaði að hafa
skíðað undir áhrifum áfengis. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Lið Brighton Bears
í ensku úrvalsdeildinni í körfu-
bolta hefur verið refsað harðlega
fyrir að hafa notað Dennis Rod-
man í einum leik þrátt fyrir að
hann hafi ekki verið kominn með
atvinnuleyfi. Brighton var dæmt
til að tapa leiknum gegn Guildford
20-0 eftir að hafa unnið leikinn
upprunalega 91-88, með Rodman
í liðinu. Þá fékk Brighton einnig
nokkuð háa fjársekt.
Rodman, sem spilaði aðeins tvo
leiki í það heila fyrir Brighton,
hefur nú lýst því yfir að hann vilji
snúa aftur í NBA-deildina og segir
hann að tvö lið þar hafi þegar
boðið honum að koma til æfinga
og sýna hvað enn búi í honum.
- vig
Brighton Bears:
Refsað fyrir að
nota Rodman
DENNIS RODMAN Langar að snúa aftur í
NBA-deildina.NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Gylfi Sigurðsson kom
inná í varaliði Reading sem tapaði
3-1 fyrir sterku varaliði Arsenal á
glæsilegu æfingasvæði Skyttanna
í London. Gylfi mætti stórstjörn-
um á borð við Alexander Hleb og
Theo Walcott en auk þeirra voru
Manuel Almunia og Johan Djo-
urou í Arsenalliðinu sem sigraði
leikinn 3-1.
Simon Church kom Reading
yfir en tvö mörk frá Arturo Lupoli
og Fabrice Muamba tryggðu Ars-
enal sigurinn.
Gylfi fór til Reading árið 2002
en hann lék með Breiðablik á
Íslandi. Gylfi hefur vakið mikla
athygli hjá Reading en hann hefur
verið færður upp í 19 ára liðið hjá
Reading þrátt fyrir að vera aðeins
17 ára gamall. - hþh
Gylfi Sigurðsson hjá Reading:
Spilaði með
gegn Arsenal
FÓTBOLTI Chris Hutchings, aðstoð-
armaður Pauls Jewell hjá Wigan,
hefur greint frá því að Henri
Camara, sóknarmaður liðsins,
hafi beðist afsökunar á því að
koma ekki strax til baka frá Afr-
íkumótinu. Camara missti af flugi
sínu frá Senegal til Frakklands
og gat því ekki verið með liðinu
í leiknum gegn Liverpool um síð-
ustu helgi sem Wigan tapaði 1-0.
„Það er mjög gott að fá hann
aftur. Málið hefur verið leyst
innan klúbbsins og hann verður til
taks fyrir leikinn gegn Tottenham
á sunnudaginn. Við vorum alls
ekki ánægðir með þetta en það er
alltaf gott að fá góða leikmenn til
baka,“ sagði Hutchings í gær.
Camara kom til Wigan frá Wol-
ves fyrir þrjár milljónir punda
en hefur ekki spilað með liðinu
síðan gegn Birmingham þann 2.
janúar. Wigan hefur verið í fram-
herjavandræðum undanfarið þar
sem David Connolly er meiddur
auk þess sem Jason Roberts á enn
eftir að afplána einn leik af þrem-
ur í leikbanni sem hann hlaut í
janúar.
- hþh
Wigan leysir sóknarvandann:
Henri Camara
kominn aftur
HANDBOLTI Handknattleiksdeild
ÍBV hefur samið við sautján ára
gamlan pilt frá Argentínu um að
leika með yngri flokkum félags-
ins, með það fyrir augum að hann
gangi upp í meistaraflokkinn
fljótlega. Juan Pablo Fernandez
verður með yngri flokkum ÍBV
í vetur en ÍBV komst í kynni við
hann í gegnum landsliðsþjálfara
Argentínu.
„Þetta er duglegur strákur
sem hefur burði til að ná langt ef
rétt er haldið á spöðunum. Hann
verður hér í vetur og svo sjáum
við til hvað gerist en mín skoðun
er sú að hann geti hjálpað töluvert
til í meistaraflokknum án þess að
verða kannski lykilmaður,“ sagði
Hlynur Sigmarsson, formaður
handknattleiksdeildar ÍBV, við
Fréttablaðið í gær.
Fernandez er rétthentur og
getur spilað hvort sem er á miðj-
unni eða í skyttustöðunni. „Hann
getur orðið framtíðarhandbolta-
maður ef hann leggur hart að sér
og vel er hlúð að honum,“ bætti
Sigmar við að lokum um þennan
nýja liðsmann Eyjaliðsins.
- hþh
Handknattleiksdeild ÍBV:
Semur við strák
frá Argentínu