Fréttablaðið - 17.02.2006, Side 86
17. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR50
SÚR HVALUR
30% afsláttur af
harðfiski og hákarli
Opið alla laugardaga 10-14
HRÓSIÐ
...fær Ástrós Lilja Einarsdóttir
fyrir að halda úti aðdáendasíð-
um fyrir Silvíu Nótt og Birgittu
Haukdal.
Í kvöld verður Idol-keppni Stöðv-
ar 2 en hún er að venju haldin
í Vetrargarðinum í Smáralind-
inni. Eftir að tólf manna úrslitin
hófust hafa verið sérstök þemu
sem keppendur hafa glímt við og
kvöldið í kvöld verður engin und-
antekning en þá mun diskóið taka
öll völd. Þeir níu keppendur sem
eftir eru hafa valið sér sín lög og
það er eins gott að velja þau af
kostgæfni. Dómnefndin í kvöld
er nefnilega skipuð diskókóngi og
diskóbana Íslands. Páll Óskar er
fyrir löngu orðinn landskunnur
fyrir ást sína á þessari tónlistar-
stefnu en það sama verður ekki
sagt um Bubba Morthens en hann
telur diskóið vera „mesta harm
sem hefur skollið á tónlistarheim-
innn,“ svo notuð séu hans eigin
orð.
Bubbi sagðist glaður vilja láta
hafa þetta eftir sér. „Það var eitt-
hvað aumkunarvert við diskóið,“
útskýrir Bubbi og viðurkennir að
hann hafi þurft að hlusta núna á
diskó í þrjá daga til að undirbúa
sig. „Dóttir mín kann vel að meta
þetta og ég verð náttúrlega að gera
þetta enda ráðinn í verkið,“ segir
hann en það má heyra á tónlist-
manninum að hann verður feginn
þegar þessi þolraun er yfirstaðin.
„Þessi tónlist strípaði rokkið sinni
karlmennsku,“ bætir hann við.
Þótt níu diskó-lög af bestu gerð
muni nú dynja á kónginum segist
Bubbi ekki ætla að láta persónu-
lega andúð sína á tónlistinni ráða
mati sínu á frammistöðu kepp-
enda sem ættu því að geta stigið á
sviðið „óhræddir“. „Þetta byggist
auðvitað allt á því hvað krakkarn-
ir gera með röddina sína og þetta
mun ekki hafa nein áhrif á dóma
mína,“ segir Bubbi. „Ég horfi bara
fram hjá diskóinu.“ - fgg
Mesti harmur tónlistarinnar
KLOFIN DÓMNEFND? Hvort dómnefndin muni klofna í kvöld á milli diskókóngsins Páls
Óskars og diskóbanans Bubba skal ósagt látið. Það verður í það minnsta forvitnilegt að sjá
hvað úr verður.
Morgunmatur:
Taktu ástina með
þér í danska bakar-
íið Konditori á Suð-
urlandsbraut. Þar
fást bestu hornin í
bænum og svo eru
kökurnar heldur
ekki svo slæmar.
Skemmtunin: Haltu alvöru Eurovision-
teiti á laugardagskvöldið þar sem
skilyrðið verður að mæta í búningum í
anda keppninnar. Sem gestgjafi er þó
sérlega mikilvægt að vera örugglega í
flottasta búningnum. Því er mælt með
rauðum kjól í anda Siggu Beinteins eða
leðurgalla a la Páll Óskar.
Hreyfingin: Klæddu þig í gamla
skíðagallann og farðu í alvöru vetrar-
göngutúr í Heiðmörk. Ekki gleyma kakói
á hitabrúsa.
Geisladiskurinn: Komdu ástinni á
óvart með 100 vinsælum ástarlögum
sem raða sér á fimm geislaplötur.
Afþreyingin: Blaðaljósmyndarafélga
Íslands verður með sína árlegu ljós-
myndasýningu en hún opnar í Gerðar-
safni á laugardaginn. Þetta er eitthvað
sem enginn má missa af.
Maturinn: Fáðu þér humar á veitinga-
staðnum Rauða húsinu á Eyrar-
bakka. Hann bragðast alltaf jafn
vel. Gættu þess þó að hafa
nægan tíma því þjónustan
er ekki sú hraðskreiðasta í
bænum.
Kvikmyndin: Farðu í Laug-
arásbíó og sjáðu kvikmynd-
ina Good night, and good
luck en hún er tilnefnd
til 6 óskarsverðlauna og
ætti ekki að svíkja neinn.
Helgin...
[ VEISTU SVARIÐ ]
svarið við spurningu á síðu 8
1 183.
2 23. sæti.
3 Sergei Ivanov.
Leikstjórinn Hilmar Oddsson er um þessar mundir að vinna að heimild-
armynd í fullri lengd um svissnesk-þýska
listamanninn Dieter Roth. Verk eftir
hinn virta Roth voru sýnd á Listahátíð í
Reykjavík á síðasta ári en hann bjó að
hluta til hér á landi frá sjötta
áratug síðustu aldar þar
til hann lést. Ekki er
víst hvort heimildar-
myndin verður tilbú-
in á þessu ári. Hilmar
leikstýrði síðast
gamanþáttun-
um Kallakaffi
við ágætar
undirtektir.
-fb/þþ
Grínistinn og rithöfundurinn Þor-
steinn Guðmundsson hefur vakið
mikla athygli að undanförnu fyrir
leik sinn í auglýsingum fyrir KB
banka auk þess sem hann er einn
af mönnunum á bak við Síma-aug-
lýsingarnar með Strákunum og
Lottó-auglýsingaherferðina með
Jóni Gnarr í hlutverki Lýðs Odds-
sonar sem hefur hitt rækilega í
mark.
Var hún í gær tilnefnd til
fernra ÍMARK-markaðsverð-
launa af fimm mögulegum fyrir
auglýsingar í sjónvarpi, sem er að
sjálfsögðu mjög góður árangur.
Þorsteinn fékk hugmyndina að
auglýsingunni ásamt Degi Hilm-
arsyni sem starfar með honum
á auglýsingastofunni Ennemm,
sem áður hét Nonni og Manni.
„Við skrifuðum handritið saman
og prófuðum hugmyndina. Við
fengum Jón til liðs við okkur og
höfðum síðan samband við fram-
leiðandann Pegasus,“ segir Þor-
steinn. „Hún hefur fengið mjög
góð viðbrögð og þetta er mjög
ánægjulegt í alla staði og ég veit
að það er mikil gleði yfir þessu
hjá Lottóinu,“ segir hann.
Þrátt fyrir að léttleikinn hafi
hingað til verið í fyrirrúmi í aug-
lýsingum úr smiðju Þorsteins
segir hann að það sé ekkert skil-
yrði fyrir góðri auglýsingu. „Það
hentar alls ekkert öllum fyrir-
tækjum og vörum að vera á fyndn-
um nótum. Stundum hentar það
og þá er eins og það grípi um sig
hrifning og fólk fer að líta á þær
sem skemmtiefni. Ég held að fyr-
irtæki vilji annaðhvort hafa aug-
lýsingar fyndnar eða bara flottar
á einhvern hátt,“ segir hann.
Þorsteinn vill ekki meina að
meiri áhersla sé lögð á fyndni
í auglýsingum hér á landi núna
en áður. „Það eru einhver sjö ár
síðan ég lék í auglýsingu fyrir
Tal sem voru fyndnar og náðu í
gegn. Mér finnst þetta ekki hafa
breyst mikið. Fólk hefur alltaf
þörf fyrir að hlæja og það er alltaf
gott að hlæja á þessu skeri okkar
í skammdeginu. Ég held samt að
það sé meira atriði að auglýsingar
fari svolítið út fyrir rammann og
að þær séu hugsaðar út fyrir þetta
hefðbundna svið. Það situr eftir í
fólki,“ segir hann.
Þorsteinn hefur verið nokkuð
áberandi í auglýsingum sínum,
bæði í sjónvarpi og á auglýsinga-
skiltum út um allan bæ, og gerir
sér alveg grein fyrir því. „Ég
passa mig á því að vinna við her-
ferð á tveggja ára fresti. Ég lék í
KB banka auglýsingu tvö ár í röð
en ég vona að það fyrirgefist,“
segir hann í léttum dúr.
Aðspurður segist Þorsteinn
ætla að einbeita sér að uppistandi
á næstunni. Þar séu áherslurnar
allt öðruvísi en í auglýsingabrans-
anum. „Það er mjög skemmtilegt
og það er gaman að vera í beinu
sambandi við áhorfendur,“ segir
hann. „Ég mun halda því áfram
á meðan síminn hringir. Hérna í
vinnunni horfir maður á tölur og
kannanir en í uppistandinu fær
maður að vita á sekúndubroti
hvort maður er að gera góða hluti
eða ekki.“ freyr@frettabladid.is
ÞORSTEINN GUNNARSSON: SLÆR Í GEGN Í AUGLÝSINGABRANSANUM
Grínið er ekkert skilyrði
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON Þorsteinn er annar af höfundum Lottó-auglýsingaherferðar-
innar með Jóni Gnarr sem hefur notið mikilla vinsælda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Íslenskir fjölmiðlungar eignuðust sín „edduverðlaun“ fyrir tveimur árum
þegar Blaðamannafélag Íslands fór að
verðlauna þá sem þykja fremstir meðal
jafningja sinna þegar það kemur að
rannsóknarblaðamennsku og vandaðri
umfjöllun. Verðlaunin verða afhent
annað kvöld en tilnefningar til verðlaun-
anna sem og lokaniðurstaða dómnefnd-
ar hafa verið umdeildar frá upphafi
enda ef til vill ekki við öðru að búast
þegar ein sjálfhverfasta stétt landsins
berst innbyrðis um upphafningu og
viðurkenningu. Tilnefningarnar í ár hafa
vakið athygli og umræður á spjallrás
Blaðamannafélagsins. Þar fer mest fyrir
hártogunum um viðmið dómnefndar og
það að Gerður Kristný skuli tilnefnd til
verðlaunanna fyrir bók sína Myndin af
pabba - Saga Thelmu. Bitrir blaðamenn
hafa þó séð sér leik á borði og telja
þessa nýlundu, að
bók sé tilnefnd
til blaðamanna-
verðlauna, til
þess fallna
að þeir geti
freistast til þess
að fá texta-
hlemma sína og
blaðagreinar
tilnefndar til
Íslensku bók-
menntaverð-
launanna
árið 2006.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT: 2 íþrótt 6 kös 8 hjartnæm 9
mælieining 11 hætta 12 eggjarauða 14
korr 16 2 eins 17 kúgun 18 farfa 20 stöðug
hreyfing 21 truflun.
LÓÐRÉTT
1 magi 3 klafi 4 fugl 5 af 7 sólarblik 10
hylur 13 með öðrum orðum 15 skipta 16
nögl 19 á fæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 golf, 6 ös, 8 kær, 9 mól, 11 vá,
12 blómi, 14 snörl, 16 kk, 17 oki, 18 lit, 20
ið, 21 ónáð.
LÓÐRÉTT: 1 vömb, 3 ok, 4 lævirki, 5 frá, 7
sólskin, 10 lón, 13 möo, 15 liða, 16 kló, 19
tá.