Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 85

Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 85
Heildsölu lagersala Listaverð Utsöluverð frá Utivistarjakki 29,990 11,900 Hlaupajakki 8,990 3,900 Flíspeysa 12,990 5,900 HiTec Golfskór 12,990 5,900 Fótboltaskór 13,990 5,900 Einnig mikið úrval af: Skíðafatnaði, Utivistarfatnaði, Golffatnaði, Iþróttafatnaði, Brettafatnaði Barna-, unglinga- og fullorðinsstærðir 50-90% afsláttur!! Við rýmum til á lagernum vegna sumarlínu okkar sem kemur fljótlega til landsins. Við seljum því eldri lager og sýnishorn á ótrúlegu verði! www.zo-on.com ZO-ON Iceland Nýbýlavegur 18 (gengið inn Dalbrekku megin) Opnunartími Fimmtud. 14-20 Föstud. 14-20 Laugard. 10-18 Sunnud. 11-17 Mánud. 14-20 9-13 mars 2006 Fyrstur kemur, fyrstur fær! Komið tímanlega því takmarkað magn er til af öllum vörum [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Skoski dúettinn Arab Strap er ekki mikið fyrir að pakka hlutum í fal- legan pappír. Þeir eru þekktir fyrir að færa hlustandanum mjög óslíp- aðar plötur með djörfu, en alltaf ótrúlega heiðarlegum textum. Kannski ekki svo mikil furða í ljósi þess að sveitin heitir Arab Strap, sem er ensku heiti fyrir plastdildó er stelpur festa á sig með beltisól- um til að geta elskast með öðrum stelpum. Ég ætla að leyfa ímyndun- arafli ykkar að sjá um afganginn. Stundum er textar söngvarans Aidan Moffett í það miklu aðalatriði að lögin hljóma nánast eins og ljóð- lestur yfir indírokk. Hreimur hans er svo ótrúlega skoskur að það er eins og maður sé að hlusta á senu úr Trainspotting. Maður fær það á til- finninguna að Aidan noti texta sína sem eins konar sáluhjálp, leið til þess að tappa af innri pirring. Fyrir vikið er stundum erfitt að átta sig á því um hvað hann er að tala, en það skiptir litlu. Ég veit ekki alveg hvort það sé svo góð hugmynd að nota textagerð sína sem sáluhjálp. Þannig dreifir textahöfundurinn bara sínum eigin skít yfir á hlustandann, sem er kannski ekki alltaf reiðubúinn til þess að hlusta. Til allrar lukku er það oftast unaður að fá að kíkja inn í sjúkan haus herra Moffett. Það er erfitt að segja hvort Arab Strap séu að þróast eitthvað með þessari nýju plötu sinni eða ekki. Tónlistin er kannski örlítið fjörugri en áður, en samt hljóma þeir eins og þeir séu lokaðir inn í sínum eigin heim. Það er ekkert lag hérna sem grípur mann einhverjum heljartök- um og það eru aðallega textarnir og flutningur þeirra sem gerir þetta áhugavert. Það er alveg óhætt að segja að þetta sé ekkert sérlega skemmtilegt. Það er heldur ekki hægt að segja að þessi stöðnun komi mikið á óvart. Að mínu mati hefur Arab Strap ekki gert neitt sérstak- lega áhugavert tónlistarlega síðan Philophobia kom út árið 1998. Síðan þá hafa þeir verið fastir á svipuðum nótum, en þó alltaf boðið upp á góða textagerð og hlutir vera matreiddir nægilega hrátt svo það sé enn safi í þeim. Arab Strap er orðin ein af þess- um sveitum sem gagnrýnendur hlusta á nánast af virðingu einni saman. Nánast af kurteisi, vegna þess hversu sjálfstæðir og einstakir þeir voru þegar þeir birtust okkur upphaflega fyrir tæpum 10 árum síðan. Núna eru þeir orðnir eins og Jói frændi sem maður hittir árlega í jólaboðinu og maður á sama samtal- ið við ár eftir ár. Það gerist bara vegna þess að menn eru einfaldlega of ólíkir til þess að geta tengst á djúpstæðari hátt andlega. „Gaman að sjá þig Arab, hvernig hefurðu það? Ennþá að blæða úr hjarta þínu á plastdiska fyrir þá sem nenna að hlusta? Flott hjá þér... jæja, hvernig lýst þér á kalkúninn í ár?“. Birgir Örn Steinarsson Sama samtalið, aftur, aftur og aftur ARAB STRAP: THE LAST ROMANCE Niðurstaða: Sjötta breiðskífa Arab Strap er ekki slæm en heldur ekki góð. Sama tegund af kaffi og síðast, á sama kaffihúsi og menn eru í sömu sætunum að segja sömu brandarana. Öllum líður samt sæmilega. Fyrsta sólóplata söngkonunnar Cor- inne Bailey Rae, sem er nýkomin út hér á landi, fór beint á topp breska breiðskífulistans. Bailey Rae gaf út EP-plötuna Like a Star í nóvember í fyrra og síðan þá hefur hún notið mikillar hylli í Bret- landi. Miklar vonir eru bundnar við Rae í framtíðinni enda þykir rödd hennar með eindæmum góð auk þess sem lögin og textarnir á nýju plöt- unni eru sagðir standa vel fyrir sínu. Hefur henni þegar verið líkt við stór nöfn á borð við Billie Holiday, Erikah Badu, Lauren Hill og Macy Gray. Platan, sem er samnefnd söng- konunni, hefur fengið mjög góðar viðtökur víðast hvar og fékk meðal annars fjórar stjörnur í hinu virta tónlistartímariti Q. Fyrsta smáskífulag plötunnar, Put Your Records on, kom út 20. febrúar. ■ Rae beint á toppinn C0RRINE BAILEY RAE Breska söngkonan hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu. Miðasala er hafin á tónleika Ians Anderson í Laugardalshöll þann 23. maí. Þar mun hann koma fram ásamt hljómsveit sinni og meðlim- um úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ian Anderson á að baki langan og farsælan feril með hljómsveit- inni Jethro Tull. Sveitin hefur selt yfir 60 milljónir platna á þeim tæpu fjórum áratugum sem hún hefur starfað. Miðasalan á tónleikana fer fram í verslunum Skífunnar, BT á Akureyri og Selfossi á á midi.is. Miðaverð er á bilinu 5.500 til 8.900 auk miðagjalds. Miðasala hafin IAN ANDERSON Flautuleikarinn og söngvar- inn knái er á leiðinni til Íslands. Grínistarnir Steinn Ármann Magnússon, Bjarni töframaður, Rökkvi Vésteinsson og Þórhallur Þórhallsson koma fram á sérstöku góðgerðaruppistandi á Gauki á Stöng í kvöld til styrktar flogaveik- um. Kynnir verður Oddur Boxser. Síðasta góðgerðaruppi- stand var haldið fyrir mánuði síðan þegar 52.000 krónur söfnuðust handa krabbameinsjúkum börn- um. Aðgangseyrir í kvöld er 500 krónur og opnar húsið klukkan 21.30. Uppistand á Gauknum STEINN ÁRMANN MAGNÚSSON Fjórir grínistar láta gamminn geysa á Gauki á Stöng í kvöld. Staðfest hefur verið að Nick Mason, fyrrum trommuleikari Pink Floyd, muni spila meistaraverkið Dark Side of the Moon með Roger Waters á tónleikum hans í Frakklandi. Eins hefur Waters boðið Rick Wright, fyrrum hljómborðsleikara Pink Floyd, að spila með sér á tón- leikunum. Svo gæti því farið að Mason og Wright muni spila með Waters á tón- leikum hans í Egilshöllinni þann 12. júní. Þeir þrír komu saman í London síðasta sumar ásamt fjórða meðlimi Pink Floyd, David Gilmore, á Live 8 við frábærar undirtektir. Mason með Waters ROGER WATERS Fyrrum forsprakki Pink Floyd heldur tónleika hér á landi 12. júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.