Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 2
2 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR LÖGREGLUMÁL Tæplega 24 kíló af fíkniefnum hafa verið gerð upp- tæk á þeim níu vikum sem liðnar eru af þessu ári. Á sama tíma í fyrra voru samtals 6,3 kíló gerð upptæk. Þau efni sem um ræðir hafa einkum verið tekin af fólki sem hefur reynt að smygla þeim til landsins en verið stöðvað. Inni í þeim tölum sem Fréttablaðið birtir nú eru ekki tvær áfengis- flöskur með fljótandi amfetamíni, sem teknar voru af litháískum karlmanni fyrir skömmu. Áætlað er að amfetamínbasinn sem í þeim var geti gefið nokkur kíló af amfetamíni. „Það vekur vissulega athygli hve mikið magn af fíkniefnum hefur verið tekið á svo skömmum tíma,“ segir Ásgeir Karlsson, yfir- maður fíkniefnadeildar lögregl- unnar í Reykjavík, um magnið það sem af er þessu ári. Hann kveður enga einhlíta skýringu á þeim mikla mun á magni fíkni- efna sem tekin voru á fyrstu níu vikum síðasta árs og sama tíma á þessu ári. „Maður getur aldrei sagt til um það með neinni vissu hvað þarna er að gerast,“ segir hann. „Í þessum tilvik- um eru nokkrar stórar haldlagn- ingar, allt upp í rúmlega þrjú kíló af amfetam- íni í einni send- ingu. Þá kann skýringin að hluta að vera sú að fleiri tilraunir til fíkniefnasmygls séu gerðar nú en áður.“ Ásgeir segir enn fremur að lögregla og tollgæsla séu með svipaðan viðbúnað nú og í fyrra og menn þar séu mjög meðvitaðir um allt eftirlit. Þekkingin og vinnubrögðin hafi þróast með árunum en spurningin geti einnig snúist um heppni. Spurður hvort menn séu ef til vill að taka með sér meira magn fíkniefna nú heldur en áður segir Ásgeir svo ekki þurfa að vera. Fólk hafi í gegnum tíðina verið tekið með mikið magn í einstök- um tilvikum. Hann bendir jafn- framt á að á síðasta ári hafi verið haldlögð samtals 72 kíló í fíkni- efnum erlendis, sem ætluð hafi verið á markað hér á landi. Í sumum tilvikum hafi ábendingar lögreglu hér leitt til töku efnanna úti. Varðandi lítið hlutfall fíkni- efnisins LSD í smygltilraunum nú segir Ásgeir að þær tölur segi ekki allt um neyslumynstrið. Kókaín og amfetamín séu þó sýnilegir vímugjafar í hefð- bundnu eftirliti lögreglu með fíkniefnaneyslu í borginni. Þau efni sem séu á markaði hér séu aðallega amfetamín, kókaín, kannabis og E-töflur. jss@frettabladid.is Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 ����������������������������� ������������������� Búið að taka 24 kíló fíkniefna á þessu ári Vel á þriðja tug fíkniefna hefur verið gert upptækt af lögreglu það sem af er þessu ári. Rúm sex kíló höfðu verið gerð upptæk á sama tíma í fyrra. Yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar segir enga einhlíta skýringu á þessu magni. 0 1.000 2.500 5.000 10 100 8. 12 5 4. 20 3 4. 42 5 1. 80 4 7. 68 5 53 1. 86 3 5 44 1 35 89 3 18 0 7.500 Amfetamín Hass Kannabis- lauf Kannabis- stönglar Kókaín Maríjúana HALDLÖGÐ EFNI Í GRÖMMUM FRÁ 1. JANÚAR TIL 06. MARS 2005 OG 2006 EFTIR TEGUND EFNIS (BRÁÐABIRGÐATÖLUR) 2005 2006 ORKUMÁL Stofnfundur um sameig- inlegt smásölufyrirtæki RARIK, Orkubús Vestfjarða og Landsvirkj- unar á raforkumarkaði verður á morgun, föstudag. Landsvirkjun leggur Laxárvirkjun ekki inn í sam- eiginlega fyrirtæk- ið við það tækifæri heldur síðar. Tryggvi Þór Haraldsson, for- stjóri RARIK, segir að stofnað verði undirbúningsfélag með tíu milljón króna hlutafé. Alls 36 prósent verði í eigu RARIK, sami stærðarhlutur í eigu Orkubúsins og eignarhlutur Lands- virkjunar verði 28 prósent. Eignar- hlutföllin geti breyst lítillega þegar Landsvirkjun leggi Laxárvirkjun inn í fyrirtækið. „Starfsmönnum undirbúningsfé- lagsins er ætlað að ganga frá samn- ingum um þjónustu og undirbúa annars vegar yfirtöku innkaupa- samninga og hins vegar eigna. Þeir eiga að gera fyrirtækið að því sem við ætlum því að verða,“ segir Tryggvi. Forsvarsmenn eigenda Lands- virkjunar, Steinunn Valdís Óskars- dóttir borgarstjóri, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, funduðu í gær vegna óánægju borgarinnar með að Lands- virkjun greiði hlut sinn í nýja sölu- fyrirtækinu með því að leggja Lax- árvirkjun til þess. Borgin á 45 prósenta hluti í Landsvirkjun, Akur- eyri fimm og ríkið helming. Ríkið á bæði Orkubúið og RARIK. Ekki náðist í borgarstjóra eða iðnaðarráðherra og Kristján vildi ekki tjá sig um efni fundarins. Hann sagði bæinn styðja stjórn Lands- virkjunar í að stofna smásölufyrir- tækið. „Við teljum hagsmuni Lands- virkjunar best tryggða með þessari ákvörðun stjórnarinnar.“ - gag RARIK, Orkubú Vestfjarða og Landsvirkjun halda stofnfund: Ríkið í smásölu á rafmagni TRYGGVI ÞÓR HARALDSSON Forstjóri RARIK. LAXÁRVIRKJUN Virkjunin er bitbein borgar og ríkis. Landsvirkjun, í meirihluta- eigu ríkisins, vill hefja smá- sölu á orku með virkjuninni og fara í samkeppni við Orkuveita Reykjavíkur í eigu borgarinnar. SPURNING DAGSINS Eru karlmenn nokkurn tím- ann til friðs? „Nei, þeir eru aldrei til friðs.“ Guðlaug Þóra Marinósdóttir var fundarstýra á fundi Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna fyrir friði og jafnrétti í gær, á alþjóð- legum baráttudegi kvenna. KJARAMÁL Unglæknar á Landspít- ala - háskólasjúkrahúsi hafa sent sviðsstjórum bréf, þar sem þeir óska eftir því að fá að taka út hvíldarrétt föstudaginn 31. mars næstkomandi. Þetta er liður í ára- langri baráttu þeirra fyrir því að fá lögboðinn hvíldartíma eða hvíld síðar, komi til skerðingar á honum. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er sterkur vilji hjá mörgum unglæknum fyrir því að grípa til aðgerða þennan dag ef þeim verður neitað um umbeðinn hvíldartíma. „Í þessu bréfi bendum við á að LSH hefur að okkar mati ekki farið að lögum með að veita ung- læknum fullan rétt á hvíldar- tíma,“ segir Bjarni Þór Eyvinds- son, formaður Félags ungra lækna, sem segir unglækna eiga inni uppsafnaðan hvíldartíma. „Yfirmenn á Landspítala hafa viðurkennt að við eigum rétt á hvíldartíma en ef til skerðingar kemur telja þeir sig ekki skylduga til þess að veita okkur hvíld seinna eins og kveðið er á í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Það hljómar auðvitað mjög furðulega að játa í einu orðinu að ætla sér að fara eftir lögum og veita ung- læknum hvíldartíma en svo í næsta orði segja að ef hvíldartími skerðist sé það ekki á ábyrgð LSH að bæta okkur upp þetta tap á hvíld.“ - jss UNGLÆKNAR Á Landspítalanum starfa nú um 150 unglæknar. Þessir tveir hafa starfað á slysa- og bráðamóttöku. Unglæknar óska eftir að fá að taka út hvíldartíma síðasta dag þessa mánaðar: Unglæknar mæta ekki í vinnu VERSLUN Samtök verslunar og þjón- ustu munu leggja fram kæru til ESA, Eftirlitsstofnunnar EFTA, vegna starfsemi komuverslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Samtökin telja að sala ríkisins á algengum neysluvörum eins og snyrtivörum og rafmagnstækjum í samkeppni við einkarekna verslun brjóti í bága við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningn- um, að því er fram kemur í frétta- pósti þeirra. SVÞ hafa óskað eftir því að sú reglugerð sem heimilt er að setja samkvæmt tollalögunum og er ætlað að takmarka vöruúrval í komuversl- uninni verði sett án tafar. ■ Komuverslun í Leifsstöð: SVÞ kæra starfsemina PARÍS, AP Kafarar hafa uppgötvað nýtt krabbadýr í Suður-Kyrrahafi og er skepnan í hæsta máta óvenju- leg. Hún líkist helst humri, nema að hún er þakin silkimjúkum ljósum feldi. Dýrið er hvítt á lit, um 15 senti- metra langt fullvaxið og er blint því það vantar í það augu, en kafar- arnir fundu það á 2.300 metra dýpi um 1.500 kilómetra suður af Páska- eyju. Það er svo ólíkt öðrum krabba- dýrum að vísindamennirnir þurftu að búa til nýja ættkvísl fyrir dýrið, sem þeir nefndu Kiwa, eftir gyðju krabbadýra samkvæmt pólýnes- ískri goðafræði. - smk Nýtt krabbadýr finnst: Blindur humar með silkifeld NÝTT KRABBADÝR Skepnan fannst í Suður- Kyrrahafi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FARFUGLAR Fuglaáhugamenn telja víst að fyrstu grágæsirnar séu komnar til landsins eftir vetursetu á Bretlandseyjum, en fuglaflensan hefur enn ekki greinst þar. Fyrstu álftirnar komu til landsins 21. febrúar en Brynjúlfur Brynjólfs- son, starfsmaður Fuglaathugunar- stöðvar Suðausturlands á Höfn, segir að sést hafi til grágæsa á Hornafirði og sjómaður tilkynnt um gæsahóp á flugi út Eyjafjörð. „Það er mjög ólíklegt að þær hafi haft vet- ursetu hér á landi. Undanfarin þrjú ár hafa þær komið til Íslands í byrj- un mars og má segja að þær séu nú á réttu róli,“ segir Brynjúlfur. - kk Farfuglum fjölgar: Grágæsirnar eru komnar GRÁGÆSIR Á AKUREYRI Fuglaáhugamenn hafa orðið varir við grágæsir í Eyjafirði og á Hornafirði. UTANRÍKISMÁL Geir H. Haarde utan- ríkisráðherra hélt síðdegis í gær erindi um framboð Íslands til örygg- isráðs Sameinuðu þjóð- anna. Geir telur að áhugi almennings sé ekki mikill á málinu og margir setji fyrir sig kostnaðinn sem veru í ráðinu fylgi. Hann segir það þægilegt að láta aðra leysa vandamálin og Íslendingar hafi verið á þeirri línu nema þegar um sé að ræða hagsmunamál þeirra sjálfra. Geir sér fyrir sér að Ísland beiti sér á vettvangi ráðsins með því að halda á lofti friði, réttlæti og auknu lýð- ræði. - shá Ræða utanríkisráðherra: Höfum forðast að taka ábyrgð GEIR H. HAARDE SKÁK Þröstur Þórhallsson stórmeist- ari sigraði Mamedyarov, stigahæsta mann mótsins, í 2. umferð Alþjóð- lega Reykjavíkurskákmótsins í gærkvöldi. Skákmeistarinn er kallaður „arftaki Kasparovs“ og er á meðal fimmtán sterkustu skákmeistara í heimi. Mamedyarov er eini skák- meistari sögunnar sem hefur unnið heimsmeistaratitil ungmenna tvisv- ar. Hann er sterklega orðaður við heimsmeistaratitilinn á næstu árum. Hinn ungi og efnilegi Atli Freyr Kristjánsson vann sænsku skákk- onuna Viktoríu Johansson. -shá Reykjavíkurskákmótið: Sterkasti kepp- andinn lagður ÁSGEIR KARLSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.