Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 50
10 ■■■■ { stóri dagurinn } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Fallegt er að vera með einfalda blómvendi í veislusalnum. Hér má sjá ranuculus sem er vorblóm. FRÉTTABLAÐIÐ / E. ÓL. Brúðarvöndur með rósum frá Blómaverkstæði Binna. FRÉTTABLAÐIÐ/ HEIÐA Úr mörgu er að moða þegar brúð- arvöndurinn er valinn enda eru blómategundirnar óteljandi. Hlín Eyrún Sveinsdóttir, eigandi Hlín- ar blómahúss, segir allt leyfilegt í þessum efnum þó henni finnist ein- faldleikinn alltaf bestur. ,,Þá á ég við penar og einfaldar kúlur. Síðan er hægt að skreyta með vír og fal- legum glerprjónum,“ segir Hlín sem helst hefur aðeins eina blómateg- und í hverjum brúðarvendi. ,,Þetta á að vera eins einfalt og hægt er því brúðurin á að lýsast upp. Það á ekk- ert að taka frá henni.“ Ásta Kristjánsdóttir hjá Blóma- verkstæði Binna segir að mikið sé um hvíta og ljósa vendi. ,,Það eru líka alltaf einhverjir sem vilja rauð- an lit,“ segir Ásta og bætir því við að fölbleikur sé nokkuð vinsæll um þessar mundir en sterkir litir hins vegar á undanhaldi. Gerð vandanna fer eftir því hvernig brúðarkjóllinn er, hvernig brúðurin er í laginu og jafnframt eftir smekk blómaskreytingar- mannsins. Sumar brúðir vilja að vöndurinn nái niður í gólf á meðan aðrar vilja hafa hann lítinn og lát- lausan en grennandi er að hafa ein- hverja sídd í vendinum. Sem blómaskreytingar í veislum finnst Hlín fallegast að hafa flotta blómvendi. ,,Mér finnst vanta svo- lítið að blómin fái virkilega að njóta sín. Vera ekki að hlaða blómum út um allt heldur hafa nokkra góða punkta,“ segir Hlín. Sterkir litir á undanhaldi Fölbleikur er nokkuð vinsæll í brúðarvöndum um þessar mundir. Formið á vöndunum fer meðal annars eftir lögun brúðarinnar en sídd í vöndunum er grennandi. Brúðarvöndur frá Blómaverkstæði Binna. Í honum eru liljur, rósir, lysiant- us og gladíólur. FRÉTTABLAÐIÐ/ HEIÐA Brúðarvöndur frá Hlín blómahúsi. Hann er gerður úr nellikkum sem eru blóm þessarar árstíðar. FRÉTTABLAÐIÐ / E. ÓL. „Því fyrr því betra,“ svarar Finn- bogi Marínósson, ljósmyndari á ljósmyndastofunni Dagsljós á Akureyri, aðspurður hvenær best sé að panta myndatöku af brúðhjón- unum. „Fólk lætur þó þetta ótrú- lega oft sitja á hakanum og hugsar meira um kjólinn, skreytingarnar og slíkt. Ljósmyndin er ekki ofarlega í hugum fólks, fyrr en eftir á,“ segir Finnbogi. Hann leggur þó áherslu á að fólk taki sér tíma í að hugsa um myndatökuna, hvernig myndir fólk vill fá og hvað eigi að mynda. „Ég mynda aldrei fólk, nema hitta það fyrst. Ég vil að það sjái mig og ég vil sjá brúðhjónin og spjalla við þau um væntingar þeirra,“ segir Finn- bogi. Síðustu árin hefur það farið minnkandi að myndatökur fari fram í stúdíói, en mikið orðið um að fólk láti mynda sig utandyra. „Ef veðr- ið er gott þá förum við út,“ segir Finnbogi og bætir við að í raun sé ekkert sem hindri hvar myndatakan fari fram nema hugmyndaflugið. Fólk vill gjarnan hafa myndirnar frjálslegar, en þá taki það ábyrgð- ina á sig sjálft. „Fólk verður að vita hvernig það ætlar að vera á mynd- unum ef það vill vera frjálslegt og mjög mikilvægt að vera búin að hugsa það fyrirfram hvernig fólk sér þetta fyrir sér,“ segir Finnbogi. Aðspurður um hvað sé í tísku núna, segir hann að brúntónað- ar myndir séu að koma inn hægt og rólega, en svarthvítar myndir í bland við litaðar séu alltaf mjög vinsælar. „Staðreyndin er sú að svarthvít mynd eldist betur,“ segir Finnbogi. Hann segir það vera orðið algengt að fólk kalli til ljósmyndara í veisluna og við athöfnina. Sumir setji verðið ekki fyrir sig og ljós- myndarinn sé þá viðstaddur allan tímann. „Sumir vilja spara pening- inn og fá Jóa frænda í verkið, en útkoman verður þá ef til vill ekki eins góð,“ segir Finnbogi og hlær. Hann segir að mikilvægt sé að setja sér reglur þegar teknar eru myndir í brúðkaupi og mynda til dæmis ekki fólk þegar það er að borða. Brúntóna myndir eru að ná vinsældum Myndataka er eitt af þeim atriðum sem þarf að skipu- leggja í þaula, ef vel á að takast. Hér bregða brúðhjónin á leik. MYND/FINNBOGI MARÍNÓSSON Brúntónar gefa myndinni fallegt og tímalaust útlit. MYND/FINNBOGI MARÍNÓSSON Finnbogi segist oft vera beðinn um að lita hluta af svarthvítri mynd, til dæmis brúðar- vöndinn, eða glösin eins og sést á þessari mynd. MYND/FINNBOGI MARÍNÓSSON 1 árs Pappírsbrúðkaup 2 ára Bómullarbrúðkaup 3 ára Leðurbrúðkaup 4 ára Blóma- og ávaxtabrúðkaup 5 ára Trébrúðkaup 6 ára Sykurbrúðkaup 7 ára Ullarbrúðkaup 8 ára Bronsbrúðkaup 9 ára Leirbrúðkaup 10 ára Tinbrúðkaup 11 ára Stálbrúðkaup 12 ára Silkibrúðkaup 12½ ára Koparbrúðkaup 13 ára Knipplingabrúðkaup 14 ára Fílabeinsbrúðkaup 15 ára Kristalsbrúðkaup 20 ára Postulínsbrúðkaup 25 ára Silfurbrúðkaup 30 ára Perlubrúðkaup 35 ára Kóralbrúðkaup 40 ára Rúbínbrúðkaup 45 ára Safírbrúðkaup 50 ára Gullbrúðkaup 55 ára Smaragðsbrúðkaup 60 ára Demantsbrúðkaup 65 ára Króndemantsbrúðkaup 70 ára Platínubrúðkaup 75 ára Gimsteinabrúðkaup Brúðkaups- afmæli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.