Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Oft er sagt að tískan gangi
í hringi. Föt sem voru flott í
fyrra þykja ljót í ár en verða
líkast til orðin heit á ný eftir
nokkur ár. Fæsta klæðir að
hlaupa á eftir hverri einustu
tískubólu, flottara er að finna
sinn eigin stíl.
Tískudrottningar síðustu aldar
geta verið uppspretta hugmynda
þegar kemur að því að kaupa
föt, ekki síst þegar kemur að því að
velja föt í verslunum sem selja not-
aðar flíkur. Þar má oft gera góð
kaup. Ekki er þó mælt með að stíll
stjörnunnar sé stældur eins og
hann leggur sig, betra er að nota
hann til að fá góðar hugmyndir að
samsetningum. Ekki þarf heldur
alltaf að leita langt yfir skammt til
að finna flott gömul föt, aldrei er
að vita á hverju mamma eða amma
lumar, tékkaðu á því. En langi þig
til að fá hugmyndir frá kvikmynda-
stjörnum 20. aldar, skoðaðu þá stíl
þessara stjarna. Þær voru ókrýnd-
ar tískudrottningar heimsins um
áratuga skeið. Á netinu er að finna
mikið af myndum af þessum
glæsikonum en einnig er hægt að
verða sér úti um klassískar kvik-
myndir þar sem þær eru í aðalhlut-
verki skoða fatastíl söguhetjunnar,
og næla sér í góðar hugmyndir til
að lífga upp á fatastílinn.
Hnébuxur hafa verið mjög vinsælar í vetur og verða það víst
áfram í sumar. Hnébuxur er hægt að nota í nánast hvaða veðri sem
er en mikilvægt er að velja sér sokkabuxur í samræmi við hitastig.
Leitað fanga hjá fögrum
kvikmyndastjörnum
Grace Kelly var dæmigerð Hollywood-glæsipía. Glæsilegir
kjólar og óaðfinnanlegt útlit einkenndu hana að minnsta
kosti meðan hún var kvikmyndastjarna. Mynd til að skoða:
High Society frá árinu 1956.
Faye Dunaway. Setti
nýjar línur í því sem
var svalt. Myndin til
að skoða: Bonnie
and Clyde frá
1967.
Audrey Hepburn.
Hollywood-stjarna sem var
mikil tískudrottning á sjötta og sjöunda áratugn-
um. Mynd til að skoða: Breakfast at Tiffany’s frá árinu 1961.
Marilyn Monroe. Kvik-
myndastjarnan íturvaxna
aflitaði á sér hárið og var oft í
hressilegum kjólum. Madonna
hefur sótt mikið í smiðju henn-
ar. Mynd til að skoða: Gentle men
Prefer Blondes frá árinu 1953.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
16
93
0
3/
20
06
hönnuði
í Debenhams
Uppgötvaðu
yfir
Debenhams hefur
fengið til liðs við
sig heimsþekkta
hönnuði til að sér-
hanna línur einungis fyrir
allar deildir Debenhams.
Antony & Alison
BDL eftir Ben De Lisi
Butterfly eftir Matthew Williamson (4)
EB eftir Erickson Beamon
J eftir Jasper Conran (2)
Pearce Il Fionda
Reger eftir Janet Reger
Rocha eftir John Rocha (1)
Star eftir Julien Macdonald (3)
St George eftir Duffer
Gríptu tækifærið og tryggðu þér
einstaka hönnun á einstaklega
góðu verði, -aðeins í Debenhams.
4
1
3
2
Ursula Andr-
ess í bíkíniinu
fræga sem hún
skartaði í fyrstu
Bond-myndinni,
Dr. No. Ursula var
kannski ekki mikil
leikkona en hún var
kyntákn og flott týpa.
Mynd til að skoða:
Dr. No.
Katharine Hepburn. Glæsi-
leiki Hepburn var annál-
aður en hún var líka mikill
töffari. Víðar síðbuxur voru
hennar aðalsmerki.Mynd
til að skoða: Women of
the Year frá árinu 1942.