Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 52
12 ■■■■ { stóri dagurinn } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Ólafía og Ólafur giftu sig þann 16. maí 2002 en þau kynntust í ágúst 2001. „Við ákváðum það strax þegar við kynntumst að við ætluð- um að gifta okkur,“ segir Ólafía. Það er ekki lengur mjög algengt að ungt fólk gifti sig eftir svona stutt samband en Ólafía segir að þau hafi ekki viljað bíða með þetta. „Okkur fannst þetta skemmtilegra heldur en að bíða þangað til við værum búin að vera saman í mörg ár og komin með fullt af börnum.“ Ólafía og Ólafur bjuggu úti í Kaupmannahöfn þegar þau giftu sig. „Við giftum okkur í ráðhúsinu í Kaupmannahöfn og athöfnin var frekar látlaus.“ Þau létu engan vita af fyrirætlunum sínum fyrr en viku fyrir giftinguna. „Engir af ættingj- um okkar voru viðstaddir en tvær vinkonur mínar komu frá Íslandi. Svo komu vinkona mín og vinur sem bjuggu í Þýskalandi, en annars voru bara vinir okkar sem bjuggu í Danmörku við athöfnina. Eftir gift- inguna fórum við heim til okkar og héldum partí en við vorum í raun og veru ekkert búin að skipuleggja þetta mikið.“ Ólafía segir að mamma hennar sé ekki ennþá búin að fyrirgefa henni að hafa gift sig með svo stuttum fyrirvara. „Við vorum bara að gera þetta fyrir okkur og ég hugsaði ekki út í það á þessum tíma að þetta væri fjölskyldunni svona mikilvægt.“ Ólafía segir að ef að hún væri að gifta sig núna myndi hún hugsan- lega gera þetta aðeins öðruvísi. „Ég myndi kannski leyfa fjölskyldunni að taka meiri þátt í skipulagning- unni en okkur sjálfum finnst brúð- kaupsdagurinn hafa verið fullkom- inn eins og hann var.“ Ákváðu strax að gifta sig Ólafía Erla Svansdóttir og Ólafur Jónsson giftu sig í ráðhúsinu í Kaupmannahöfn fyrir fjórum árum. Ólafía Erla Svansdóttir er ánægð með að hafa haldið látlaust brúðkaup. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Ólafía Erla Svansdóttir og Ólafur Jónsson giftu sig í ráðhúsinu í Kaupmannahöfn. ✤ Gömul hjátrú segir að það brúðhjónanna sem er fyrri til að festa kaup á einhverjum hlut eftir vígsluna muni verða ráðandi aðil- inn í sambandinu. Til að tryggja sér ráðin má kaupa smáhlut af brúðar- meyjunum fyrir slikk strax að lok- inni athöfn. ✤ Til að tryggja að búið verði aldrei matarlaust skal hafa brauðmat við höndina þar sem brúðarhjónin eyða brúðkaupsnóttinni. ✤ Að fara með heitin þegar stóri vísirinn á klukkunni er á uppleið er tákn um að hjónin munu vinna saman í hjónabandinu. Sé hann á niðurleið getur það boðað ógæfu. ✤ Það er hollenskur siður að gróð- ursetja furutré í garði nýgiftu hjón- anna, sem tákn fyrir frjósemi og heppni í hjónabandinu. Þetta er einnig gert í Bermúda en þá er trénu plantað meðan á veislunni stendur. ✤ Ástæðan fyrir því að svo margir giftast í júní á rætur sínar að rekja til 15. og 16. aldar. Þá var maí sá mán- uður sem fólk fór í sitt árlega bað og var það eina almennilega baðið sem fólk fór í á árinu. Þess vegna lyktaði fólk þolanlega í júnímánuði. Það lyktaði vel til giftinga. ✤ Það er talin mikil gæfa fyrir brúði ef hún mætir sótara, svörtum ketti, lambi eða dúfu á giftingardaginn. Enn betra er ef hún finnur könguló í brúðarkjólnum sínum. ✤ Í Egyptalandi er sá siðurinn að foreldrar brúðhjónanna færa þeim mat í heila viku eftir brúðkaupið svo hjónakornin geti sinnt „öðrum málum“. ✤ Í Egyptalandi er einnig sá siður að klípa brúðina á giftingardaginn til að færa henni lukku. ✤ Sérstök gæfa á að fylgja því að giftast á afmælisdegi brúðgumans. Hvort gæfan sé þá sú að eiginmað- urinn man eftir brúðkaupsafmælum skal látið liggja á milli hluta. ✤ Það boðar ógæfu ef brúðurin æfir ganginn inn kirkjugólfið. Margar konur hafa staðgengil við æfinguna. ✤ Ef brúðurin grætur á brúðkaups- daginn munu það vera síðustu tárin sem hún fellir yfir hjónabandinu. ✤ Þegar brúðhjónin hafa skálað fyrir sameiginlegri framtíð sinni ættu þau að brjóta glösin til að tryggja að þau verði aldrei notuð í betri tilgangi. Klíptu brúðina og gifstu á afmælisdegi hans Ýmsar hefðir og hjátrú fylgja brúðkaupsdeginum og undirbúningi hans. Hér eru nokkrar þeirra sem vonandi koma að gagni svo að giftingardagurinn verði áfallalaus og framtíðin hamingjurík. ...að útbúa körfu með smágjöf til handa veislustjóranum. Í körfunni geturðu komið fyrir ostum og góðri vínflösku, snyrtivörum, gjafabréfið í nudd, eða hverju því sem þú veist að veislustjórinn mun kunna að meta. Starf veislustjórans er mikið og krefjandi. Oftast er hann úr röðum vinahópsins eða fjölskyldunnar og þiggur því ekki laun fyrir. Þakkargjöf væri því tilvalin og kynni hann eflaust að meta slíkt. Mundu bara að skilja eftir þakkarkort. Sniðugt getur verið að útbúa svipaðar körfur, eða gjafaöskjur handa öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn. hafðu í huga... ... að við myndatöku í brúðkaupinu getur verið gaman að mynda brúð- hjónin með foreldrum sínum, systkinum og vinahópn- um. Gott er að fá einhvern í fjölskyld- unni eða einn af vinunum til að hafa umsjón með myndatökum svo að þetta gleym- ist ekki því brúðhjón- in hafa nóg annað að hugsa. Auk þess getur verið góð hugmynd að sjá til þess að allir veislu- gestir séu myndaðir og gæti þá ljósmyndari staðið við dyrnar þegar fólk mætir til veislunnar. Jafnframt er hægt að dreifa einnota myndavélum á borðin og hvetja fólk til að mynda hvert annað. VOR 2006 NFS ER Á VISIR.IS Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.