Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 6
6 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR
LANDBÚNAÐUR Verð á mjólkurkvóta
hefur lækkað mikið að undanförnu
og er heildarverðmæti hans tíu
milljörðum króna minna núna en
það var í sumar. Ólafur Magnús-
son, framkvæmdastjóri einka-
reknu afurðastöðvarinnar Mjólku,
segir að ef þessi þróun haldi áfram
verði kvótaverðið komið niður í
250 krónur í sumar. Það þýði að
eign bænda hafi þá rýrnað um
helming á rúmu ári. Hann segir
þetta valda bændum miklum vanda
og útilokað sé fyrir þá að fara út úr
greininni, því þeir nái fjárfestingu
sinni aldrei til baka. Hann segir að
bankarnir hljóti að vera uggandi
um sinn hag þar sem þeir hafi lánað
stórfé til kvótakaupa með veði í
kvótanum sjálfum. „Þeir myndu
hafa áhyggjur ef verð á fasteign-
um myndi lækka um tugi prósenta
á hálfu ári,“ segir Ólafur.
Þorfinnur J. Björnsson, sér-
fræðingur hjá lánamati Lands-
bankans, lítur svo á að veðið sé allt-
af tekið í jörðinni eða gæðum hennar í heild. Þorfinnur, sem var
starfsmaður Lánasjóðs landbúnað-
arins sem Landsbankinn keypti,
segir að svo hafi einnig verið þar.
„Við lánuðum mönnum til að kaupa
jörð og þeir fengu hærra lán eftir
því sem kvótinn var meiri, en
aldrei bara út á kvótakaup.“
Friðrik S. Halldórsson hjá við-
skiptabankasviði KB banka segir
að lánað sé út á mjólkurkvóta eins
og fiskikvóta en jörðin og kvótinn
séu metin saman inn í virði hvers
býlis. Friðrik lítur svo á að lækkun-
in nú sé ekkert til að hafa áhyggjur
af.
Baldur H. Benjamínsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
kúabænda, skýrir verðlækkunina
með kvótaaukningu sem nam fimm
milljónum lítra á þessu ári. Hann
segir að einnig hafi áhrif að greitt
sé fyrir alla umframmjólk og því
þurfi ekki kvóta til að auka fram-
leiðslu. Hann segir líklegt að svo
verði einnig á næsta ári. Ástæðuna
fyrir kvótakaupum við þessar
aðstæður segir hann vera að bænd-
ur séu að kaupa hlutdeild í markaði
og beingreiðslum til framtíðar. Um
tryggingar bankanna segir Baldur:
„Ef ég væri starfandi kúabóndi og
ætlaði mér að kaupa 100.000 lítra í
viðbótarkvóta myndu lánardrottn-
ar vilja fá veð í jörðinni en ef það
eru bara 10.000 lítrar er veðið bara
í kvótanum. Þetta er síðan metið
fyrir hvern og einn, eftir jörðinni,
skuldastöðu og aldri.“
svavar@frettabladid.is
Skráning fer fram á www.landsbanki.is og í Þjónustuveri bankans í síma
410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna
á www.landsbanki.is. Að loknum fyrirlestri verða í boði kaffiveitingar.
Fundargestir verða leystir út með lítilli gjöf.
410 4000 | www.landsbanki.is
Fimmtudagskvöld
eru fjármálakvöld
Fyrirlestur í Aðalútibúi Landsbankans, Austurstræti 11
í kvöld kl. 20
– Spurt og svarað um skattamál
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
16
54
03
/2
00
6
KJÖRKASSINN
Ertu flughrædd(ur)?
Já 19%
Nei 81%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefurðu áhyggjur af viðskipta-
hallanum?
Segðu skoðun þína á visir.is
FÆREYJAR Sex og níu ára gamlir
bræður og tíu ára gamall vinur
þeirra, sem var gestkomandi á
heimili þeirra, létu lífið í elds-
voða í Þórshöfn í Færeyjum í
fyrrakvöld. Upptök eldsins eru
ókunn en sérfræðingar frá
dönsku Brunamálastofnuninni
voru fengnir til Færeyja og
vinna nú að rannsókn málsins.
Um níuleytið í gærkvöldi
hringdi nágranni í færeysku
neyðarlínuna með upplýsingar
um að kviknað væri í parhúsi við
Hrafnseyrarveg. Lögregla,
slökkvilið og sjúkrabílar voru
þegar send á staðinn en komu of
seint því drengirnir voru þá allir
látnir úr reykeitrun. Þeir fund-
ust í herbergi bræðranna þar
sem þeir voru að leik þegar eld-
urinn braust út. Þeir voru einir
heima því faðir bræðranna hafði
skroppið í íbúðina við hliðina til
að fá sér kaffisopa.
Jón Klein Olsen, varalög-
reglustjóri hjá lögreglunni í
Þórshöfn, segir að þegar björg-
unarlið kom á staðinn hafi mikill
eldur verið í eldhúsi og stofu og
húsið fullt af reyk. Eldurinn
virðist hafa átt upptök sín í eld-
húsinu en það er enn ósannað.
Færeyska lögreglan telur ekki
að um íkveikju sé að ræða.
- shá
Hörmulegur eldsvoði í Þórshöfn í Færeyjum:
Þrír drengir fórust í eldsvoða
AF VETTVANGI Lögregla, slökkvilið og
sjúkrabílar brugðust skjótt við en drengirnir
voru þegar látnir. Þeir voru að leika sér í
herbergi bræðranna og létust allir af völd-
um reykeitrunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIRIKUR LINDENSKOV
Bílvelta í fyrrinótt Bíll ók út af veg-
inum til móts við Krísuvíkurveg um mið-
nætti í fyrrinótt með þeim afleiðingum
að bílnum hvolfdi. Engin meiðsl urðu á
ökumanni eða farþegum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VIÐSKIPTI „Þetta eru ekki nýjar
fréttir enda höfum við verið á þeirri
skoðun í þó nokkurn tíma að íslenska
krónan sé of hátt skráð,“ sagði
Christian Farø, hagfræðingur hjá
Jyske bank og höfundur skýrslu
bankans, í viðtali við Fréttablaðið í
gær. Hann segir að bankinn sé í
skýrslunni að taka undir gagnrýni
matsfyrirtækisins Fitch á núver-
andi efnahagsstefnu Íslandi.
„Íslenska hagkerfið hefur ofhitnað
og veikari króna getur slegið á þá
þróun. Við bendum einnig á að fjár-
málastefna ríkisins mætti vera
strangari, sem gengur þvert á
stefnu fjármálaráðuneytisins“,
segir Christian.
Hann telur veikingu krónunnar
jákvæða þróun fyrir íslenskt efna-
hagslíf enda þurfi viðskiptahallinn
að minnka. „Við erum ekki að spá
hruni krónunnar og teljum meiri
líkur á því að lendingin verði mjúk.“
Christian segir það áhættusamt
fyrir erlenda aðila að fjárfesta á
Íslandi þar sem markaðurinn sé lít-
ill. Því geti það verið erfitt að kom-
ast út af markaðnum ef margir vilji
selja á sama tíma. Hann segir að
það sé ekki spá bankans að þannig
ástand skapist.
Í skýrslunni kemur fram að síð-
ustu tvær vikur hafi reynt á íslenska
markaðinn og útlit sé fyrir að þrýst-
ingurinn muni aukast. Því er einnig
spáð að vextir muni hækka á næst-
unni og bent er á að verðbólga hafi
farið yfir viðmið Seðlabankans síð-
ustu sex mánuði.
Sérfræðingar Jyske bank líkja
íslenskum fjárfestum við banda-
ríska í skýrslu sinni og segja þá
viljugri til að taka áhættu á meðan
Danir séu mun varkárari. Þetta
eigi líka við um íslensku bankana.
Það þurfi þó ekki að vera neikvætt
en fyrr í vikunni sagði bankastjóri
Jyske bank það ekki koma til greina
að taka upp sömu stefnu og íslensku
bankarnir fylgdu og fjárfesta í
þeim fyrirtækjum sem þeir lánuðu
til.
kristjan@frettabladid.is
Danskir fjárfestar hvattir til að selja íslensk verðbréf:
Neikvæðir í garð krónunnar
Bændur í vanda
eftir kvótakaup
Staðhæft er að bændur séu í vandræðum vegna lækkunar á verði mjólkur-
kvóta. Bankarnir segjast ekki lána út á kvóta eingöngu. Framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda segir kaup á mjólkurkvóta tryggingu til framtíðar.
ÚR FJÓSINU Lán með tryggingu í mjólkurkvóta eru sögð geta orðið baggi á bændum eftir
lækkun verðs á mjólkurkvóta. Bankarnir gera lítið úr áhrifum lækkunarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞRÓUN VERÐS Á MJÓLKUR-
KVÓTA FRÁ MARS 2005
Mánuður Meðalverð
1. mars 366
1. apríl 380
1. maí 389
1. júní 393
1. júlí 405
1. ágúst engin viðskipti
1. sept. 380
1. okt. 386
1. nóv. 379
1. des. 387
1. jan. 351
1. feb. 323
1. mars 314
H5 finnst víðar í Svíþjóð Sænsk
yfirvöld tilkynntu í gær að fuglaflensu-
veira af stofninum H5 hefði fundist í
fleiri villtum öndum nærri Karlskrona og
Oxelösund á suðausturströnd Svíþjóðar.
Verið er að rannsaka hvort veiran sé af
H5N1-stofninum.
Finnst í Albaníu Bresk rannsóknar-
stofa tilkynnti í gær að H5N1-fuglaflensa
hefði fundist í Suður-Albaníu. Veiran
fannst í dauðum kjúklingi í þorpinu
Cuke. Búið er að setja þorpið og ná-
grannabæi í sóttkví.
Tíu hafa látist í Kína Tíu manns
hafa látist úr fuglaflensu í Kína. Tíunda
fórnarlambið var níu ára gömul telpa
sem dó á mánudag. Alls hafa 175
manns smitast um heim allan og þar
af hafa 95 farist, samkvæmt tölum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
FUGLAFLENSA
KAUPHÖLLIN Í skýrslu Jyske bank segir
meðal annars að veiking krónunnar sé
jákvæð fyrir íslenskt efnhagslíf.
MENNTAMÁL Vel á annað þúsund
framhaldsskólanemar komu saman
á Austurvelli í gær. Þeir voru að
mótmæla fyrirætlunum mennta-
málaráðherra um styttingu náms til
stúdentsprófs þrátt fyrir að ráð-
herra hafi sagt að styttingin komi
ekki niður á gæðum námsins.
Framhaldsskólanemar hafa sent
ráðherra um 6.000 póstkort þar sem
þeir hvetja hann til að endurskoða
fyrirhugaðar breytingar á stúdents-
prófinu. - shá
Fjöldafundur stúdenta:
Mótmæltu á
Austurvelli
MÓTMÆLI Framhaldsskólanemar fjöl-
menntu við Alþingishúsið í gær.
HÚSNÆÐI Sala á íbúðum í fjölbýli
hefur dregist saman um 26 pró-
sent milli ára að því er fram kemur
í tölum frá Fasteignamati ríkisins.
Á sama tíma hefur sala á einbýlis-
húsum aukist um fimmtán pró-
sent.
Í febrúar sem nú er nýliðinn
seldust um 679 íbúðir og einbýlis-
hús en í febrúar á síðasta ári seld-
ust 856 slíkar eignir. Þrátt fyrir að
færri eignir hafi selst nú en á síð-
asta ári er veltan meiri og hefur
meðalverð íbúða í fjölbýli hækkað
um 29 prósent milli ára og meðal-
verð einbýlishúsa hækkað um
fimmtung.
- shá
Fasteignamarkaðurinn:
Mjög hefur
dregið úr sölu