Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 10
10 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR
A Ð A L F U N D U R C C P h f .
Aðalfundur CCP hf. kt. 450697-3469, verður haldinn fimmtudaginn
23. mars 2006 kl. 16.00 á Nordica Hóteli, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
DAGSKRÁ
Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins. Endanleg
fundargögn, þ.m.t. endanlegar tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar og
skýrsla endurskoðenda verða lögð fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félags viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 9. mars 2006
Stjórn CCP hf.
HUNDASLEÐAKEPPNI Norðmaðurinn
Tore Albrightsen og hvuttarnir hans sjást
hér þjóta framhjá Fingravatni í Alaska, en
Albrightsen er einn 83 hundaáhugamanna
sem keppa þessa dagana í Iditarod-
hundasleðakeppninni í Alaska.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Fylgi við öfga-hægri-
flokka í Noregi og Danmörku
hefur aukist töluvert síðustu
vikur. En samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun sem birt var í Noregi í
fyrradag fengi Framfaraflokkur-
inn þar í landi um þriðjung
atkvæða ef kosið yrði í dag.
Í frétt á vefsíðu Politiken er
haft eftir sérfræðingum að mót-
mælin vegna Múhameðsteikning-
anna sem birtust í Jótlandspóstin-
um og umræðan í löndunum í
kjölfar þeirra sé ástæðan fyrir
auknu fylgi við flokkana.
Danski þjóðarflokkurinn
mælist nú þriðji stærsti flokkur
Danmerkur. - ks
Fylgi flokka í Noregi:
Framfaraflokk-
urinn stærstur
SVEITARSTJÓRNIR Þórshafnar- og
Skeggjastaðahreppar hafa ákveðið
að boða til kosninga um samein-
ingu sveitarfélaganna 8. apríl
næstkomandi.
Áki Guðmundsson, oddviti
hreppsnefndar Skeggjastaða-
hrepps, segir íbúana fá stuttan
fyrirvara en nauðsynlegt sé að
hraða kosningunum þar sem eftir
sveitarstjórnarkosningarnar í
vor eigi sveitarfélögin ekki mögu-
leika á sameiningarframlagi úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Atvinnuþróunarfélag Þing-
eyinga vinnur nú að úttekt á kost-
um og göllum sameiningar. Niður-
staðan verður kynnt íbúunum í lok
mars og kynningarfundir haldnir í
báðum sveitarfélögunum 1. apríl.
Áki segist sjá ýmsa kosti við
sameiningu og hann segir skuldir
eða hallarekstur ekki liggja að
baki sameiningarkosningunum.
„Þetta er ekki varnarleikur heldur
sóknarleikur. Samfélagsgerð sveit-
arfélaganna er sú sama og þau
eiga sömu hagsmuna að gæta. Við
sjáum fram á að rekstur samein-
aðs sveitarfélags verði hagkvæm-
ari og mikilvægt er að við tölum
einu máli út á við,“ segir Áki. - kk
Kosið um sameiningu Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps:
Hyggjast blása til sóknar
ALÞINGI Guðlaugur Þór
Þórðarson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur lagt
fram fyrirspurn til fjár-
málaráðherra um hvort
hann hyggist beita sér fyrir
því að samkeppnisstaða rík-
isbanka á húsnæðismarkaði
gagnvart einkabönkum
verði jöfnuð.
„Það er algjörlega sérís-
lenskt fyrirbæri að vera
með jafn stórtæka lánastofnun á
vegum ríkisins. Það liggur í augum
uppi að jafnréttis á milli ríkisbanka
og einkarekinna banka á
sviði húsnæðislána er ekki
gætt. Þessu þarf að
breyta.“
Fyrirspurn Guðlaugs
Þórs er í sex liðum og er
þar spurt hvort samkeppn-
isstaðan verði jöfnuð með
tilliti til greiðslu ríkis-
ábyrgðargjalds, greiðslu
tekjuskatts, kröfu um eig-
infjárhlutfall, reglna um
greiðslu vaxtabóta vegna viðgerða
húsa, skuldajöfnunar opinberra
gjalda og uppgjörsferða. - mh
Guðlaugur Þór Þórðarson leggur fram fyrirspurn:
Ríkið láni ekki
til íbúðakaupa
GUÐLAUGUR ÞÓR
LONDON, AP Sá djúpi hugmynda-
fræðilegi klofningur sem ein-
kenndi bresk stjórnmál fyrir
tveimur áratug-
um er ekki leng-
ur fyrir hendi,
að mati Davids
Cameron, leið-
toga breska
Íhaldsflokksins.
Flokkarnir þrír í
breskum stjórn-
málum séu að
mætast á miðj-
unni.
Sjálfur segist
hann til dæmis ekki hafa miklar
áhyggjur af því þótt hann sé
stundum á sama máli og Tony
Blair forsætisráðherra, leiðtogi
Verkamannaflokksins, í mikil-
vægum málum á borð við mennta-
mál. - gb
Leiðtogi íhaldsmanna:
Gjáin er horfin
DAVID CAMERON
BAKKAFJÖRÐUR Tæplega 140 manns búa í Skeggjastaðahreppi og flestir þeirra á Bakka-
firði. Íbúar Þórshafnarhrepps eru ríflega 400. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNTAMÁL Yfirlýsing Kristínar
Ingólfsdóttur, rektors við Háskóla
Íslands, um að stefna eigi að því
að koma skólanum í hóp þeirra
allra bestu í heiminum hefur vakið
verðskuldaða athygli.
Sitt sýnist hverjum um raun-
hæfi þessa. Bent hefur verið á að
smæð skólans hafi áhrif. Hann sé í
minni kantinum miðað við flesta þá
háskóla sem eru nú þegar meðal
hundrað bestu í heiminum auk þess
sem fjárframlög til Háskóla Íslands
séu óraveg frá þeim upphæðum
sem flestir, ef ekki allir, skólar á
þeim sama lista hafa milli hand-
anna. Engu að síður er það mat
flestra deildarforseta við Háskól-
ann að umrætt markmið sé ekki
jafn fjarri lagi og búast mætti við.
Allmargir listar eru til um bestu
háskóla heims en viðmið þau er
notuð eru geta verið mismunandi.
Listi sá er hér er vitnað til og þykir
einna markverðastur kemur frá
Jiao Tong-háskólanum í Kína. Við-
mið þau er þar eru notuð eru af
margvíslegum toga. Vægi kennslu
og rannsókna við hvern skóla er
sérstaklega metið út frá nokkrum
breytum. Afar jákvætt er að kenn-
ari eða útskrifaður nemandi við
skólann hafi hlotið verðlaun í sinni
grein á alþjóðlegum vettvangi.
Hvort birtar hafi verið greinar
eftir kennara eða nemanda í viður-
kenndum fagblöðum á borð við
Nature eða Science er metið og til-
lit er enn fremur tekið til stærðar
viðkomandi skóla þegar mat er lagt
á kennslu. Allt rannsóknarstarf
skiptir eðlilega einnig miklu máli.
Að sögn Kristínar Ingólfsdótt-
ur, háskólarektors, hefur ekki
verið óskað eftir formlegu mati
enn sem komið er og engin form-
leg tímasetning komin á hvenær
óskað yrði eftir slíku. „Að mínu
mati yrðu okkar meginatriði gæði
náms og doktorsnáms auk birtinga
vísindagreina og þar erum við að
standa okkur vel á mörgum svið-
um. Markmiðið að koma skólanum
í hóp hinna bestu er langtímamark-
mið og ég lít svo á að það sé mögu-
legt á tíu árum.“
VILL Í FREMSTU RÖÐ
HÁSKÓLI ÍSLANDS BESTU HÁSKÓLAR Í EVRÓPU
1. Háskólinn í Cambridge, Bretland
2. Háskólinn í Oxford, Bretland
3. Imperial, Bretland
4. University College, Bretland
5. Tækniháskólinn í Zürich, Sviss
BESTU HÁSKÓLAR
Á NORÐURLÖNDUM
7. Karolinska Institut, Svíþjóð
13. Kaupmannahafnarháskóli, Danmörk
15. Háskólinn í Uppsölum, Svíþjóð
20. Háskólinn í Ósló, Noregur
23. Háskólinn í Helsinki, Finnland
FRÉTTASKÝRING
ALBERT ÖRN EYÞÓRSSON
albert@frettabladid.is
Háskólinn er ekki á lista
Rektor Háskóla Íslands segir ekki hafa verið óskað eftir mati á formlegri stöðu skólans í heiminum. Hún
segir markmiðið að HÍ verði í hópi 100 bestu háskóla heims og það sé mögulegt á tíu árum.
KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR Þó að engir
Nóbelsverðlaunahafar séu starfandi
innan veggja skólans telur rektor að
með góðum stuðningi og markvissri
stefnu geti Háskólinn skipað sér á
bekk með þeim bestu á tíu árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
INDLAND, AP Öryggissveitir voru
sendar til Varanasi-borgar á Ind-
landi í gær eftir að tuttugu manns
fórust í sprengjuárásum þar á
þriðjudag. Varanasi er helgasta
borg hindúa þar í landi og óttuðust
yfirvöld frekara ofbeldi trúarofs-
tækismanna. Tæplega sextíu manns
sem særðust í sprengingunum voru
enn á sjúkrahúsi síðdegis í gær.
Sprengingarnar skóku bæði hof
hindúa og lestarstöð borgarinnar
og leita yfirvöld nú að þeim sem
bera ábyrgð á sprengingunum.
Hindúar lögðu niður störf í gær til
að mótmæla ofbeldinu. - smk
Sprengjur á Indlandi:
Tuttugu farast
í sprengjuárás