Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 20
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR20
fréttir og fróðleikur
Forsvarsmenn Bauhaus telja
að þrátt fyrir að markað-
urinn sé ekki stór á Íslandi
sé umfang hans um sautján
milljarðar á ári, um 210 til
220 milljónir evra. Þeir eru
vissir um að markaðshlut-
ur Bauhaus verði fimmtán
til tuttugu prósent og telja
sig geta boðið um tuttugu
prósentum lægra vöruverð
en keppinautarnir.
Bauhaus hefur að sögn yfirmanns
þróunarsviðs, Helmuts Diewald,
reynt árangurslaust að komast inn
á íslenskan markað. Þrautagöng-
unni gæti lokið í dag þegar borgar-
ráð tekur lokaákvörðun um hvort
Bauhaus fái lóð austan við Vestur-
landsveg, undir hlíðum Úlfars-
fells.
Vildu vera hjá IKEA
Helmut Diewald lýsir því hvernig
Bauhaus hafi sóst eftir lóð í Kópa-
vogi fyrir tveimur árum. Fyrir-
tækið hafi reynt að semja við
einkaaðila. Sigurður Geirdal heit-
inn, þáverandi bæjarstjóri, hafi
verið því innan handar. Lóðakaup-
in hafi ekki gengið upp og ekkert
verið óeðlilegt við það. Við lát Sig-
urðar hafi samband Bauhaus við
bæjarstjórnina rofnað.
Diewald segir að í apríl hafi
Bauhaus sóst eftir lóðinni í Urriða-
holti í Garðabæ, sem er í eigu
félags undir sama nafni. Bauhaus
hafi verið ánægt með staðsetning-
una, enda stutt í verslunarmiðstöð-
ina Smáralind. Einnig hafi for-
svarsmenn þess fundað með þeim
hjá IKEA, því IKEA reisir verslun
við Urriðavatn. Þeir hafi verið
sammála um að
nálægð fyrir-
tækjanna
hefði meira
aðdráttarafl við-
skiptavina fyrir þau bæði. Diewald
segir hins vegar að babb hafi
komið í bátinn þegar BYKO sóttist
einnig eftir lóðinni sem þeir hafi
átt í löngum samningaviðræðum
við eigendur Urriðaholtssvæðisins
um.
Samningaviðræðum slitið
Forsvarmönnum Urriðaholts og
Bauhaus ber ekki saman um af
hverju viðræðunum var slitið. „Við
gerðum allt til þess að fá lóðina en
þegar kom að þeim tímamótum að
bæjarstjórinn í Garðabæ varð for-
stjóri Byko varð kúvending í samn-
ingaviðræðunum við eigendur lóð-
arinnar,“ sagði Diewald í
Fréttablaðinu í gær. Þessu hafnar
stjórn Urriðaholts í yfirlýsingu
sem blaðinu barst í gær. „Stað-
reyndin er sú að formlegar við-
ræður Urriðaholts ehf. við Bau-
haus hófust mánuði eftir að
fyrrverandi bæjarstjóri lýsti
því yfir að hún myndi hætta og
taka við starfi forstjóra Byko,“
segir í fimmta lið yfirlýsingar
stjórnarinnar sem Geir Zoëga
stjórnarformaður og Jón Pálmi
Guðmundsson framkvæmdastjóri
rita undir: „Eftir fimm mánaða
samningsviðræður höfnuðu full-
trúar Bauhaus því að hitta
stjórn Urriðaholts ehf.
nema að fyrirfram
ákveðnum
skil-
yrðum. Þegar það lá fyrir ákvað
stjórnin að slíta frekari viðræðum.
Var það mat stjórnar að með
afstöðu Bauhaus væru sett fram
ný og ófrávíkj-
anleg skilyrði
sem ekki var
fallist á og að
enginn grund-
völlur væri fyrir frekari viðræð-
um,“ segja Urriðaholtsmenn og
bæta við: „Í framhaldinu var Byko
boðið að endurnýja eldra tilboð sitt
og var gengið frá samningum við
fyrirtækið í kjölfarið.“ Diewald
segir hins vegar að forsvarsmenn
Bauhaus hafi sett eigendunum
stólinn fyrir dyrnar þar sem
umsamdar forsendur breyttust
ítrekað milli funda. Þeir hafi talið
að sama hvað þeir gerðu eða byðu í
lóðina, því yrði ekki tekið: „Við
fengum á tilfinninguna að þeir
væru að leita að ástæðu til þess að
slíta viðræðunum án þess að missa
virðingu
sína með því að setja fram kröfur
sem þeir vissu að við gætum ekki
fallist á.“
Bauhaus haldið frá markaðnum
Diewald segir að Bauhaus telji
baráttuna í Garðabæ og nú um Úlf-
arsfellið snúast um að halda því
frá markaðnum. Fyrirtækið hafi
aldrei mætt eins mikilli andstöðu
við komu sína til annarra landa:
„Byko og Húsasmiðjan eiga engin
svör við því sem við gerum. Þau
hafa kynnt sér starfsemi okkar í
Evrópu og vita að ef við komum
með 20.000 fermetra verslun
fylgja okkur um 120 til 130 þúsund
vörutegundir.“ Spurður hvers
vegna fyrirtækið sóttist ekki fyrr
eftir lóð í Reykjavík, sagði hann að
kannski hafi þeir hjá Bauhaus
verið of bláeygðir. Þeir hafi viljað
vera þar sem IKEA byggði og þar
sem stutt væri í næstu verslunar-
miðstöð. Þegar samningar hafi
ekki tekist endurmátu þeir stöðu
sína og sóttu um lóð í Reykjavík.
Þeir geti ekki verið vissir um að fá
lóðina en komi tilþess geti þurft
sex til átta mánuði til að ganga frá
samningum: „Þegar undirbúning-
urinn er síðan í höfn þurfum við
sex til sjö mánuði til að opna versl-
unina,“ segir Diewald. Um 140
vinni í versluninni komist hún á
fót. Stofnað verði nýtt fyrirtæki
um starfsemina en verslunin muni
tilheyra eigendum þýsku verslun-
arkeðjunnar ólíkt öðrum Bauhaus-
verslunum utan Þýskalands, þar
sem leyfið hefur verið framselt.
ÚLFARSFELL Borgarráð ákveður í dag hvort
Bauhaus fai lóðina austan við Vesturlands-
veg. BYKO hefur fengið lóðina á móti, en
vill að jafnræðis sé gætt og þeim verði
einnig boðin lóð austan við.
URRIÐAHOLT Við Reykjanesbraut er gert
ráð fyrir verslunarkjarna. Þar rís IKEA og þar
vildi Bauhaus vera en BYKO bauð betur.
Bauhaus ætlar sér að ná
fimmtungi markaðarins
Húsöndin er einn af einkennisfuglum
Mývatns og þar með Íslands. Fáir aðrir
íslenskir fuglar eru jafn háðir þeim lífs-
skilyrðum sem eru við Mývatn og Laxá, á
Norðurlandi eystra.
Húsöndin hefur allsérstæða varphætti.
Þegar vetur nálgast fara varpfuglarnir að
helga sér vatnsskika sem karlarnir verja
með ráðum og dáð. Er sem ósýnilegar línur
séu dregnar á vatnsflötinn og flestir aðrir
fuglar eru umsvifalaust reknir á braut ef
þeir fara inn fyrir þær. Eftirsóttustu svæðin
eru efst á Laxárkvíslum og á Kálfastrand-
arvogum og þar er iðulega háð hörð
landhelgisbarátta.
Húsandarsteggirnir beita ýmsum ráðum til
að verja landhelgi sína en oftar en ekki láta þeir
nægja að leggjast flatir með framteygðan háls
og beina höfðinu að hinum óboðna gesti.
Hvenær skoða kollurnar hreiðurstæði?
Í apríl á ári hverju taka kollurnar að skoða
vænleg stæði fyrir hreiður. Yfirleitt fljúga þær
nokkrar saman á morgnana um nærliggjandi
hóla og hæðir. Alltaf finna einhverjar hús-
endur sér hreiðurstað í veggjahleðslum
eða þekjum útihúsa og má rekja nafn
húsandarinnar til þess. Um miðja síðustu
öld hófst sá siður að koma upp sérstök-
um hreiðurkössum fyrir endurnar, en í
flestum tilfellum eru þeir innan við göt á
steinsteyptum hlöðuveggjum. Þess má
geta að áætlað er að tíunda hvert hreiður
húsanda í Mývatnssveit sé í sérsmíðuðum
kössum. Flest önnur hreiður húsanda
eru í holum og sprungum í hrauninu við
Mývatn.
Afar sjaldgæfur fugl á heimsvísu
Húsöndin verpir aðeins á þremur
stöðum í heiminum: Í Bandaríkjunum, og
þá sérstaklega í norðanverðum Klettafjöllum,
í austurhluta Kanada og svo við Mývatn, en
þar er eitt sérstæðasta vistkerfi sem um getur í
heiminum.
FBL GREINING: ÍSLENSKA HÚSÖNDIN
Húsöndin ein af gersemum Íslands
Prótínverksmiðjan
Iceprótein tekur til
starfa á Sauðárkróki
innan tíðar. Fimm til
tíu störf skapast hjá
verksmiðjunni. Margeir
Friðriksson er sviðstjóri
fjármálasviðs sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar.
Hvaða þýðingu hefur verksmiðjan
fyrir Sauðárkrók? Öll störf eru vel-
komin til Skagafjarðar og við fögnum
verksmiðjunni sérstaklega hér.
Hvernig horfir framtakið við bæjar-
búum? Allir fagna og óska verkefninu
góðs gengis. Við reyndar búum við
mjög fjölbreytt atvinnulíf í sveitarfélag-
inu. Hér er mikil þjónusta, landbún-
aður og sjávarútvegur, allt sem skiptir
máli. Nú erum við hins vegar að bæta
við hátæknistörfum og er það vel.
Er atvinnuleysi á svæðinu? Það er
ekki mikið, en fimm til tíu störf telja.
Fyrst og fremst horfum við samt til
samstarfs milli skóla og atvinnulífs.
SPURT OG SVARAÐ
PRÓTEINVERKSMIÐJA
Við fögnum
MARGEIR
FRIÐGEIRSSON
Uppfærslur leikhúsa
FRÉTTASKÝRING
GUNNHILDUR A. GUNNARSD.
gag@frettabladid.is
2003/04
Le
ik
rit
2002/03
2001/02
69 65 80
Heimild: Hagstofa Íslands
> SVONA ERUM VIÐ