Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 80

Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 80
 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR44 maturogvin@frettabladid.is Í mars eru afrískir dagar í Vínbúð- um og hægt að fá fjölmörg vín á kynningarverði. Auk þess eru á boðstólum vín frá Afrísku sem eingöngu verða fáanleg meðan á þessum þemadögum stendur. Vínrækt á sér langa sögu í Suður-Afríku sem rekja má aftur til 17. aldar. Á 19. öld voru sæt vín frá Constantia talin meðal þeirra bestu í heimi. Aðskilnaðarstefnan og viðskiptabann umheimsins hafði mikil áhrif á efnahagslíf í Suður-Afríku, þ.á.m. víniðnaðinn. Markaðir hurfu og um leið tæki- færi til viðhalds og endurnýjunar. Víngarðar, tunnur og tæki gengu úr sér. Þegar viðskiptabanni var aflétt uppúr 1990 hófst endurreisn sem enn er í gangi. Fjöldi nýrra og metnaðarfullra fyrirtækja spratt upp úr ríkisfyrirtækinu KWV, sem var brotið upp. Í dag er verið að bæta víngarða, tunnur og tæki hafa mikið til verið endurnýjuð. Bestu vínin batna sífellt og fram- tíðin er björt. Auk rauðvína og hvítvína er mikið framleitt af freyðivínum, styrktum vínum, bæði sérrí og portvínstýpum, auk þess sem umtalsverður hluti af víni er eimaður í brandí. Vínhéruð Suður-Afríku liggja flest frá 31° til 34° suðlægrar breiddar, sem jafngildir nokkurn veginn breiddargráðu Norður-Afr- íku. Loftslag í Suður-Afríku er hlýtt og sólríkt. Inni í landinu er mjög heitt en svalara með suður- og vesturströndinni þar sem kald- ir hafstraumar kæla loftslagið og hafa úrslitaáhrif á vínræktunar- möguleika. Án þeirra væru suður- afrísk vín einungis heppileg til eimingar og framleiðslu styrktra vína. Afrískir dagar í Vínbúðum Eitt vandaðasta vínið á afrískum dögum í Vínbúðum er Robertson Prospect Hill Cabernet Sauvignon. Kraftmikið og ákveðið cabernet-vín með miklum sólberjakeim og bragði af viltum berjum, endar svo í leðri og súkku- laði. Vínið er geymt á nýrri franskri eik í tólf mánuði og er þessvegna mjög lifandi og ákveðið. Það er langur súkkulaði keimur sem kemur aftur og aftur upp, löngu eftir að það var í munni. Þetta er vín sem vínþjónar myndu kalla jarðbundið vín. Það má geta þess að vínið fékk hin virtu Michelangel- o-verðlaun fyrir skömmu. Kynningarverð á afrískum dögum 1.590 kr. PROSPECT HILL: Kraftmikið í hæsta gæðaflokki Hvaða matar gætir þú síst verið án? Mér finnst grænmeti rosalega gott og gæti ekki verið án þess. Fyrsta minningin um mat? Ætli það sé ekki bara siginn fiskur. Mér fannst hann ekkert sérstakur þegar ég var yngri en ég er hrifnari af honum núna. Einnig eru steiktar fiskibollur sterkar í minningunni. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Ég held að það sé lambakjöt sem standi upp úr. Lambalundir finnst mér vera langbestar. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Ég borða yfirleitt allan mat en sniglum er ég ekki hrifin af. Leyndarmál úr eldhússkápunum? Sítrónupipar er aðaltrixið hjá mér. Finnst hann svakalega fínn og set hann á kjöt, kjúkling, lax og bara hvað sem er. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Ætli það sé ekki aðallega grænmeti, ávextir og fiskur. Mér finnst gott að fá mér eitthvað hollt. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Ég á alltaf til mjólk, skyr, egg, grænmeti og ávexti. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða mat tækir þú með þér? Eitthvað sem væri þægilegt að vera með í bak- poka. Kannski harðfisk, möndlur eða hnetur. Eða hvítt súkkulaði. Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur borðað? Ætli það sé ekki einhverjar skrítnar fiskteg- undir. Eða sniglar. Ég er eiginlega voða lítið fyrir að borða eitthvað skrítið. MATGÆÐINGURINN SIGURRÓS STEFÁNSDÓTTIR MYNDLISTARKONA Lambalundir eru langbestar > Engifer ...er alveg ómissandi í alla hollustudrykki enda bráðhollt. Þótt Ragnhildi Magnús- dóttur útvarpskonu finnist yfirleitt best að fá sér léttan mat gerir hún stundum undantekningu og fær sér kjarngóðan spagettírétt með skandínavísku ívafi. „Þetta er kolvetnis- og próteins- prengja,“ segir Ragnhildur Magn- úsdóttir útvarpskona um spagettíréttinn sem hún vill deila með lesendum. „Þetta er svona matur sem maður borðar daginn fyrir langa göngu þegar maður þarf á kaloríum að halda. Þetta var uppáhaldið mitt þegar ég var lítil og er einmitt í miklu uppáhaldi hjá syni kærasta míns. Börn eru mikið fyrir spag- ettí.“ Ragnhildur kveðst reyna að elda þennan rétt að minnsta kosti tvisvar til þrisvar í mánuði. „Hann minnir mig líka dálítið á mömmu mína, hún eldaði þennan rétt oft, yfirleitt með látum og brussugangi eins og ég geri. Þetta er frekar skandínavísk útgáfa af spagettí; kannski ekki ekta, en rosalega gott.“ Ragnhildur ólst upp í Kaliforníu í Bandaríkjunum og matarsmekkur hennar ber þess sterkt vitni. „Ég er mjög mikið fyrir mexíkanskan mat og elda hann mikið. Ég kann líka ábyggi- lega hundrað uppskriftir að salöt- um, það var mikil áhersla lögð á léttan og hollan mat þegar ég var að alast upp. Þá finnst mér ekki síður gaman að elda taílenskan mat.“ Hún er þó langt því frá frá- hverf íslenska eldhúsinu. „Mér finnst saltkjöt og baunir æðislegt þótt ég borði það ekki oft og er líka sólgin í fiskibollur.“ Ragnhildur segir að uppskrift- in sem hún lætur fylgja sé tilvalin þegar gesti ber að garði. „Þetta er heppilegur réttur við nánast hvaða tilefni sem er. Það skiptir ekki máli hvaða fólk kemur í heimsókn, ég læt alla borða spag- ettíið mitt,“ segir hún og hlær. bergsteinn@frettabladid.is Ekki ekta en rosalega gott RAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR Er mjög hrifin af saltkjöti og baunum og fiskibollum, en kann líka ótalmargar salatuppskriftir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SKANDÍNAVÍSKT PASTA AÐ HÆTTI RAGNHILDAR 1 rauður laukur, niðurskorinn niður og steiktur í ólívu olíu 5-10 marðir hvítlauksgeirar 1 græn og ein 1 rauð niðurskorin paprika Ungnautahakk Ekta tómatsósa eða tómatpúrra. Sojasósa Oregano, basil, pipar, salt, ítalskt krydd. Steikið grænmetið og hakkið á pönnu. Kryddið rækilega með oregano, basil, pipar, salti og ítölsku kryddi. Bætið við tómatsósunni og slatta af soja- sósu og látið malla í að minnsta kosti þrjátíu mínútur, fyrst á háum hita en lækkið svo undir. Borið fram með góðu spag- ettíi, ekki og soðnu. Notið sjávarsalt og mikla ólívuolíu við suðuna. Stráið soja osti eða parmesan yfir og borðið helst ekki minna en þrjá diska. Sigtryggur Jónsson Löggiltur fasteignasali 101 Reykjavík Fasteignasala ehf. Laugaveg 66, 101 Reykjavík Sími 511 3101 Fax 511 3909 Gsm 863 2206 Fossháls / Dragháls Til sölu u.þ.b. 800 fm mjög vel staðsett skrifstofuhúsnæði á einni hæð í góðu atvinnuhúsnæði. Húsnæðið býður upp á mikla möguleika, má auðveldlega skipta niður í minni eining- ar. Lofthæð við mæni er ca 5,5 m, en við útvegg ca 3,5 m. Tveir inngangar eru í húsnæðið, annar frá Fosshálsi og hinn frá Draghálsi. Næg bílastæði, upphitað og malbikað, lóð full- frágengin. Glæsilegt útsýni. Húsið er allt ný málað og hefur verið vel við- haldið. Allar frekari upplýsingar veitir Leifur Aðalsteinsson á skrif- stofu í síma 511 3101.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.