Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 2
2 29. apríl 2006 LAUGARDAGUR
RÍKISÚTVARPIÐ Frumvarp um breyt-
ingar á rekstri Ríkisútvarpsins
var afgreitt öðru sinni frá mennta-
málanefnd í gær með breytingum.
Stjórnarandstæðingar mótmæltu
því að frumvarpið yrði tekið úr
nefndinni enda væru fáein mál
eftir órædd.
Siguður Kári Kristjánsson, for-
maður menntamálanefndar, segir
að nefndarálit verði lagt fram á
Alþingi á þriðjudag og vísast að
þriðja og síðasta umræða um það
hefjist samdægurs. „Nú er að sjá
úr hverju stjórnarandstæðingar
eru gerðir þegar við réttum enn
fram sáttahönd,“ segir Sigurður
Kári, sem telur breytingarnar
umtalsverðar og sanngjarnar.
Breytingar voru gerðar á fjór-
um efnisatriðum frumvarpsins í
meðförum nefndarinnar. Í fyrsta
lagi er lagt til að kveðið verði á um
það, líkt og í fjölmiðlafrumvarp-
inu, að Ríkisútvarpinu sé óheimilt
að eignast hluti í öðrum fjölmiðl-
um, dagblöðum eða útvarpsstöðv-
um. Með því sé áréttuð sérstaða
RÚV og girt fyrir að lögin stangist
á við jafnræðisreglu stjórnar-
skrárinnar.
Sigurður Kári segir að í öðru
lagi sé tekinn af vafi um að verð-
mæti sem hafi menningarlegt og
sögulegt gildi fyrir þjóðina sé ekki
hægt að selja frá hlutafélaginu
heldur verði slík verðmæti varð-
veitt hjá félaginu.
Þá er orðið við kröfum stjórn-
arandstöðunnar um að hlutafélag
um Ríkisútvarp verði háð upplýs-
ingalögum. „Þetta er þjónusta í
almannaþágu og nefndin telur rétt
að almenningur hafi aðgang að
gögnum um starfsemi félagsins í
samræmi við ákvæði upplýsinga-
laga,“ segir Sigurður Kári.
Loks er kveðið á um að gerður
verði þjónustusamningur milli
menntamálaráðherra og Ríkisút-
varpsins er varpi nánara ljósi á
markmið hlutafélagsins og þjón-
ustu þess. „Eftirlit Ríkisendur-
skoðunar með því að skattfé sé
ekki notað til að niðurgreiða sam-
keppnisrekstur verður auðveld-
ara með þessu,“ segir Siguður
Kári.
„Það var ekki við það komandi
að ræða óvissuna varðandi Evr-
ópuréttinn,“ segir Mörður Árna-
son, Samfylkingunni, sem er þó
ánægður með að fallist hafi verið
á kröfuna um að upplýsingalögin
verði látin gilda um RÚV. „Þrátt
fyrir breytingarnar er frumvarp-
ið meingallað og við höldum fast
við frávísunartillögu okkar,“ segir
Mörður. johannh@frettabladid.is
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Ólafur F. Magnússon,
læknir og borgarfulltrúi
1 sæti
„ Tryggjum að
Reykjavíkurflugvöllur
verði áfram í
Vatnsmýrinni.“
VARNARMÁL Geir H. Haarde utan-
ríkisráðherra ræddi óformlega
um varnarviðræðurnar við utan-
ríkisráðherra ríkja innan Atlants-
hafsbandalagsins, NATO. Ráð-
herrarnir funduðu um hugsanlega
stækkun bandalagsins og stöðuna
í Mið-Austurlöndum á vorfundi
þeirra í Sófíu, höfuðborg Búlgar-
íu, í gær.
„Varnarmál okkar voru ekki á
dagskrá fundarins. Þau eru í tví-
hliða farvegi milli okkar og Banda-
ríkjanna eins og stendur. En auð-
vitað spjalla menn saman með
óformlegum hætti,“ sagði Geir
eftir fundi gærdagsins. Spurður
við hvaða ráðherra hann hafi
spjallað óformlega og hvernig
þeir meti stöðu Íslands svaraði
Geir: „Það er eitthvað sem ekki er
hægt að tala um.“
Geir fundar með utanríkis-
málanefnd Alþingis klukkan hálf
ellefu í dag. Þar greinir hann frá
fundinum ytra auk niðurstöðu
tveggja funda samninganefnda
Íslands og Bandaríkjanna í utan-
ríkisráðuneytinu á miðvikudag og
fimmtudag. Nefndarmennirnir
hafa ekki verið upplýstir um gang
viðræðnanna fyrir fundinn.
Heimildir herma að niðurstaða
þeirra hafi verið að bandaríska
sendinefndin muni vinna áætlun
um hvernig landið verði varið.
Íslendingarnir eigi síðan eftir að
meta áætlunina. Fram hefur komið
að drög að slíkri áætlun hafi verið
rædd á fundunum. - gag
Geir H. Haarde á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja:
Landsvarnir ræddar óformlega
Á FUNDI UTANRÍKISRÁÐHERRA NATO Geir
Haarde ræðir hér við utanríkisráðherra Lúx-
emborgar, Jean Asselborn, í Búlgaríu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EFNAHAGSMÁL Gylfi Magnússon,
dósent við Háskóla Íslands, segir
að fullyrðing aðalhagfræðings
Seðlabankans um að sjálfstæður
gjaldmiðill auki sveiflur og að
ávinningur af krónunni sé minni
en enginn sé mjög áhugaverð.
Hann treystir sér ekki til að leggja
mat á réttmæti hennar.
„Við þyrftum að kanna landið
til að fá fram forsendurnar, sem
síðan yrðu notaðar til að leggja
mat á það hvort þessi niðurstaða
sé rétt, að krónan valdi okkur
meiri vandræðum en kostirnir
sem sjálfstæður gjaldmiðill
hefur,“ segir hann. - ghs
Gylfi Magnússon dósent:
Þyrftum að
kanna landið
KJARAMÁL Faglært starfsfólk á
dvalar- og hjúkrunarheimilum
ákvað í gær að blása vikulangt
setuverkfall af. Á fimmtudag var
útlit fyrir að starfsfólk sex dvalar-
heimila myndi hefja slík verkföll í
gær en þau komu ekki til fram-
kvæmda.
Sum heimilin náðu samkomu-
lagi en aðrir ákváðu að ganga að
launatilboði SFH án samninga.
Ekki er ljóst hversu víðtækar upp-
sagnir starfsfólks eru en í Sunnu-
hlíð telur talsmaður starfsmanna
að áttatíu til níutíu prósent fag-
lærðs starfsfólks, sem er í stéttar-
félaginu Eflingu, hafi þegar sagt
upp. - shá
Dvalar- og hjúkrunarheimili:
Setuverkföllin
öll blásin af
BARÁTTUFUNDUR Ákveðið var á fundi á
fimmtudag að fara í verkfall. Ekkert varð úr
þeim áformum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
FJÖLMIÐLUN Tveir fréttamenn frá
japönsku fréttastöðinni TV
Tokyo, sem aðallega flytur við-
skiptafréttir, eru hér á landi til að
fjalla um efnahagsástandið á
Íslandi.
Í fyrradag ræddu þeir við
kaupmenn í Kringlunni og í gær
ræddu þeir við sérfræðinga og
framámenn banka hér á landi, að
sögn fréttamannsins Keiichi
Kuboi.
TV Tokyo hóf útsendingar árið
1964 en nær nú um nær allt Japan
og hafa 34 milljónir heimila
aðgang að stöðinni, sem mælst
hefur með tæpra átta prósenta
áhorf þar í landi. - jse
Japönsk fréttastöð:
Fjallar um efna-
hagslíf á Íslandi
Upplýsingalög gildi
um Ríkisútvarpið hf
Breytingar voru gerðar á frumvarpinu um Ríkisútvarpið í meðförum mennta-
málanefndar í gær. Formaður nefndarinnar segir stjórnarliða hafa teygt sig
langt til sátta í málinu. Stjórnarandstæðingar telja frumvarpið meingallað enn.
RÍKISÚTVARPIÐ Í breyttu frumvarpi er gert ráð fyrir að verðmæti sem hafi menningarlegt
og sögulegt gildi fyrir þjóðina verði ekki seld frá Ríkisútvarpinu hf.
Dagsbrún, sem á og rekur fjölmiðla
365, telur að frumvarp til laga um
Ríkisútvarpið hf. brjóti í bága við
reglur samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið um ríkisaðstoð.
Félagið telur að verði frumvarp-
ið að lögum verði lögfest mismun-
un á grundvelli þjóðernis. Erlend
fyrirtæki sem vilji stofna og reka
útvarpsstöð hér á landi njóti ekki
sömu markaðsskilyrða og Ríkis-
útvarpið.
Félagið telur einnig að frum-
varpið gangi gegn stjórnarskrár-
bundnum réttindum og samn-
ingsskyldum að rétti Evrópska
efnahagssvæðisins. - jh
Dagsbrún um RÚV-frumvarp:
Mismunun fest
í lög RÚV í vil
SPURNING DAGSINS?
Laufey, eru verðhækkanirnar
svona plús?
,,Já, þær koma sem plús svo við
komum ekki út í mínus.”
Laufey Jóhannsdóttir er framkvæmdastjóri
Plúsferða, en þar eins og víða annars staðar
hækkuðu sólarlandaferðir í verði vegna
lækkunar krónunar.
Gæsluvarðhald lengt Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarð-
hald yfir tveimur litháískum mönnum,
sem grunaðir eru um smygl á amfetam-
ínvökva, til 9. júní. Gæsluvarðhald yfir
þriðja manninum sem tengist málinu
rennur út um miðjan maí. Rannsókn
málsins er á lokastigi að sögn lögreglu.
DÓMSMÁL
ATVINNA Tímabundnum takmörk-
unum á atvinnu- og búseturétti
íbúa frá nýjum löndum Evrópu-
sambandsins var í gær aflétt með
lögum frá Alþingi. Þau taka gildi
1. maí næstkomandi og var leitað
afbrigða til að afgreiða frumvarp-
ið með hraði, því aðlögunarfrestur
Íslands rennur út um mánaðamót-
in.
Fólk frá tíu löndum austan-
verðrar Evrópu, sem öðluðust
aðild að ESB árið 2004, getur nú án
hindrana leitað atvinnu og sest að
hér á landi.
Frumvarpið var samþykkt með
atkvæðum allra flokka nema
Frjálslynda flokksins. - jh
Fólk í atvinnuleit hér á landi:
Hömlum aflétt
DÓMSMÁL Tveir Nígeríumenn voru
fundnir sekir um fjársvik í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær. Þeir
hlutu báðir fimmtán mánaða óskil-
orðsbunda fangelsisdóma.
Mennirnir höfðu talið fórnar-
lömbum sínum trú um að þeir
gætu fjölfaldað peningaseðla með
snertingu við ákveðið efni. Þeir
voru stöðvaðir á Keflavíkurflug-
velli í mars, grunaðir um að hafa
illa fengið fé undir höndum. Menn-
irnir hafa setið í gæsluvarðhaldi
síðan 17. mars og dregst sá tími
frá refsingu þeirra. Þeir voru
báðir dæmdir til að greiða 420.000
krónur í málsvarnarlaun. - shá
Dæmt í fjársvikamáli:
Nígeríumenn-
irnir í fangelsi
RANNSÓKN Neysla íslenskra ung-
menna á tóbaki, áfengi og kanna-
bisefnum fer sífellt minnkandi og
er nú eins og minnst þekkist í Evr-
ópu. Hlutfall nemenda 10. bekkjar
sem reykja daglega hefur lækkað
út 21 prósenti árið 1995 í 12 pró-
sent og hlutfall þeirra sem neytt
hafa áfengis í teljandi magni
minnkaði úr 64 prósentum í 44
prósent á sama tímabili. Nemend-
um sem reykt höfðu hass fjölgaði
úr 10 prósentum árið 1995 í 15 pró-
sent árið 1999 en hlutfallið er nú
komið á ný niður í 10 prósent.
Þessar niðurstöður eru á meðal
þeirra sem fram koma í rannsókn-
inni Heilsa og lífskjör skólanema
en rannsóknin er hluti af viðamik-
illi alþjóðlegri rannsókn sem
unnin er fyrir tilstuðlan Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar (WHO).
Hér á landi er rannsókninni
stýrt frá Háskólanum á Akureyri
og segir Þoroddur Bjarnason,
prófessor í félagsfræði við HA, að
þeir nemendur sem reykja dag-
lega hafi minnkað reykingar sínar
lítið eitt frá árinu 1995. „Þeir nem-
endur sem nota áfengi drekka jafn
oft og fyrir nokkrum árum en þeir
fáu sem reykja hass hafa heldur
aukið neyslu sína,“ segir Þórodd-
ur. - kk
Neysla íslenskra ungmenna á tóbaki, áfengi og kannabisefnum fer minnkandi:
Helmingi færri reykja
ÞÓRODDUR BJARNASON Vímuefnaneysla ungmenna fer almennt minnkandi en Þóroddur
segir að þeir fáu sem neyta kannabisefna hafi heldur aukið neyslu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN