Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 82
29. apríl 2006 LAUGARDAGUR50
utlit@frettabladid.is
Fatabúðin Spúútnik er elsta „second hand“ búðin á Íslandi og hefur heldur
betur vaxið frá því að hún var
fyrst opnuð. Í dag verður hún
opnuð í nýju húsnæði að Lauga-
vegi 28 og verður haldið heljarinn-
ar „tropical“ partí að því tilefni.
„Við fundum þetta æðislega
húsnæði sem hentaði ofsalega vel
fyrir okkur og ákváðum að skella
okkur á það,“ segir Hafrún Alda
Karlsdóttir verslunarstjóri. „Við
erum svo í samstarfi við fólk sem
mun opna kaffihús á efri hæðinni
og því verður hægt að
rölta þangað upp og fá
sér kaffibolla og léttar
veitingar og jafnvel
setjast út á svalir ef
veður leyfir. Ekki er
alveg komið á hreint
hvenær kaffihúsið verð-
ur opnað en það verður
einhvern tíma í sumar.“
Að sögn Hafrúnar
verður ýmislegt nýtt í
búðinni og til dæmis
verður þar sér skó-
deild. „Svo munum
við líka selja diska
sem innihalda góða
tónlist í anda Spúútnik
sem við höfum valið í samstarfi
við Smekkleysu. Það er svo oft
sem maður kemur inn í einhverja
töff búð og heyrir flotta tónlist og
þá er ekki verra að geta gripið
hana með sér út. Skódeildin verð-
ur svakalega flott og svo verða
strákarnir að sjálfsögðu ekki
skildir út undan, herrafötin fá
mjög gott pláss.“
Samkeppnin á markaði notaðs
fatnaðar hefur vaxið mjög mikið á
síðustu árum og margar búðir
bæst í flóruna. „Að sjálfsögðu
finnum við fyrir vaxandi sam-
keppni og það er bara
hvetjandi og skemmtilegt. Þó það
séu komnar margar búðir eru þær
samt allar að gera eitthvað ólíkt.
Samkeppnin er bara af hinu
góða og hún sýnir bara
hversu mikill markaður er
fyrir þennan fatnað.“
Opnunarpartí Spú-
útnik á Laugaveginum
hefst klukkan fimm í
dag. „Hermigervill mun
spila fyrir gesti og að sjálf-
sögðu eru allir velkomnir.
Þarna verður sannkölluð
sumargleði, kokkteilar í
boði, músastigar uppi um
alla veggi og upplagt fyrir
fólk að koma og byrja gott
laugardagskvöld í partíinu
okkar.“
hilda@frettabladid.is
MÓÐUR VIKUNNAR
> BORGHILDUR GUNNARSDÓTTIR
27.-30. apríl
Á NASA við Austurvöll.
LAUGARDAGUR 29. APRÍL
KAL (SER)
Spáir þú mikið í tískuna? Læt hana ekki
stjórna fatavalinu, ég geng í fötum af því
mér finnst þau flott en ekki af því þau eru
í tísku. En kannski er það oft þannig að
mér finnst flíkin flott af því hún er mötuð
ofan í mann. Þetta er nú bara allt einn stór
heilaþvottur eftir allt saman. Já ætli ég spái
þá ekki mikið í hana?
Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?
Freaky, punky, luckycharmish og rock&roll.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki?
Pamela Thompson, Patricia Field, Christian
Joy, John Galliano, Alexander McQueen,
Gucci og Christian Dior.
Flottustu litirnir? Svartur, grár, appelsínu-
gulur, rauður, túrkísblár og bleikur.
Hverju ertu veikust fyrir? Skærum litum,
pönki og „freaky“ hlutum.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Stüssy
boli.
Hvað finnst þér flottast í tískunni núna?
Flott prent og fallegir sumarkjólar.
Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir sumar-
ið? Gyllta sandala og útúrflippuð bikiní.
Uppáhaldsverslun? Centrum, Rokk og
rósir, Spútnik og Kolaportið.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt
á mánuði? Allt of persónuleg spurning!
Annars eyði ég einfaldlega allt of miklum
peningi í föt.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Hermannastígvélin mín eru ómissandi,
ég nota líka svörtu Acne gallabuxurnar
fáránlega mikið. Þetta tvennt saman er
algjört rugl fyrir mér.
Uppáhaldsflík? Custo kjóllinn sem ég
klæðist á myndinni.
Hvert myndir þú fara í verslunarferð?
New York, New York, New York...!
Ljótasta flík sem þú hefur keypt
þér? Ég keypti mér sítt bleikt pils úr
glansandi hjólabuxnaefni og fullt
af svoleiðis bolum líka, back in the
90´s. Fannst það voða kúl þá, en fæ
vibbahroll niður bakið við tilhugsunina
núna...oj bara.
SMEKKURINN HILDUR HERMANNS
Gylltir sandalar og útúrflippuð bikiní
FLOTT Algjörlega
æðislegt ökkla-
stígvél með
dásamlegu
glingri. MÓTOR
Ökklastíg-
vél í mótor-
hjólastígvél
má finna í
skódeildinni í
Spúútnik.
SUNDBOLUR Farðu í Spúútnik og
fáðu þér öðruvísi sundbol en allir
aðrir eiga.
BOLUR Mikið úrval er af flottum
bolum í Spúútnik.
SPÚÚTNIK Nýja búðin verður opnuð í dag
klukkan fimm með heljarinnar sumarpartíi.
Sumargleði í Spúútnik
HAFRÚN ALDA
KARLSDÓTTIR
Verslunarstjóri
Spúútnik á Lauga-
vegi. FRÉTTABLAÐ-
IÐ/HEIÐA
SUMAR Það er ekki
langt í að hægt sé
að spóka sig í svona
sætu pilsi í miðbæ
Reykjavíkur.
Fékk það á tilfinninguna um daginn að ég pældi kannski of mikið í
fötum, stíl og tísku. Þetta var þegar ég kom úr Spúútnik og fannst ég
hafa fundið fjársjóð. Fékk mér meðal annars prjónapils og peysu,
setti pilsið yfir peysuna, upp að brjóstum og fannst ég vera komin í
„sixtís” prjónakjól. Var næstum komin út þegar pabbi sá mig og gól-
aði: „Ertu í pilsi yfir peysuna??!!“ - „Haa já. Samt er ég eiginlega í
kjól, sérðu það ekki?“ Systir mín flissaði. Áttaði mig á því að fólk sem
hugsar ekkert um tísku sá alls ekkert flott við þetta „átfitt“ og það sá
enginn „kjólinn“ nema ég. Spurði systur mína hvort
henni fyndist þetta asnalegt og hún játaði og bætti við:
„En þú klæðir þig hvort eð er alltaf svo furðulega.“
Þá áttaði ég mig á því. Ég er búin að skoða og pæla svo
mikið í fötum að ég orðin ónæm fyrir skrítnum flíkum.
Spurði eina tískupælara-vinkonu mína út í þetta
seinna um daginn og hún kannaðist vel við vandamálið.
Hún hafði lent í því sama, farið í grænar bómullarbuxur
einn daginn, skræpóttan kjól, víðan jakka yfir það og
stígvél við. Var svo ofsalega sátt við sig þangað til hún
fór að taka eftir því hvað allir horfðu skringilega á hana.
Ég held reyndar að þetta sé vandamál sem allir glíma
við. Sá sem hefur áhuga á tölvuleikjum er löngu kominn
yfir Mario Bros og í eitthvað tölvurugl sem enginn annar skilur.
Tónlistaráhugamaðurinn fer smám saman yfir í gífurlega framúr-
stefnulega tónlist þar sem hann er búinn að skoða allt annað. Ég er
reyndar ekki það langt leidd í tískupælingum að ég sé alltaf klædd
eins og Tumi Tískupælari því stundum er ég í afar venjulegu stuði og
nenni ekki í neitt annað en hettupeysu og gallabuxur. Ég hef þó ákveð-
ið að sætta mig við það að valda nokkrum augnagotum af og til þegar
ég er í stuði til að vera „skringilega“ klædd. Að minnsta kosti get ég
ekki hugsað mér að fara að ganga alltaf í eins fötum og allir aðrir
enda er það martröð tískupælarans.
Martröð tískupælarans
> Tískusérfræðingar
...telja mjög mikilvægt að eiga
fylgihluti með hlébarðamynstri í
sumar. Enda klassískt mynstur
sem fer aldrei úr tísku.
HIPPALEGUR Dás-
amlega hippalegur
kjóll úr Spúútnik.