Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 36
[ ]
Rúnar Helgi Vignisson fékk
nýlega þýðingarverðlaun fyrir
bókina Barndóm eftir Coetzee.
Hér lýsir hann ferð á slóðir
höfundarins í Höfðaborg.
„Einu sinni bauð ég konunni minni í
helgarferð til Færeyja. Þegar ég
hringdi í foreldra mína og bað þau
að gæta sona okkar á meðan var
svarið óvenju dræmt. Nokkrum
dögum síðar kom ástæðan í ljós:
Frúin hafði keypt handa mér ferð
alla leið til Höfðaborgar í Suður-Afr-
íku á sama tíma og beðið föður minn
að verða mér samferða. Þetta sýnir
muninn á atgervi okkar hjóna. Um
þetta leyti var ég að ganga frá þýð-
ingu á bókinni Vansæmd eftir hinn
suður-afríska J. M. Coetzee og hafði
verið að vandræðast með eitt og
annað í þýðingunni. Hjá mér hafði
vaknað löngun og þörf til að fara til
Höfðaborgar. Frúin ákvað að gera
eitthvað í málunum.
Við feðgar flugum í einum rykk
og í bítið einn undurfagran vor-
morgun stóðum við ásamt örlítið
áhyggjufullum Ingólfi Guðbrands
fyrir utan flugstöðina í Höfðaborg
og virtum fyrir okkur tignarlegt
Borðfjallið. Útsýnið af toppnum átti
eftir að reynast með því allra mikil-
fenglegasta sem ég hef séð og það
verður að segjast eins og er að ég
hef aldrei séð jafn fagurt borgar-
stæði. Byggðin þræðir sig í kringum
fjallið,“ segir Rúnar.
„Á leiðinni á hótelið í miðbænum
sáum við kofabyggðirnar sem
Coetzee getur um í Vansæmd. Þær
minna á hrófatildur okkar strák-
anna í gamla daga. Undir lok ferðar-
innar tókum við pabbi leigubíl inn í
eina af þessum kofabyggðum. Bíl-
stjórinn ók hægt inn í hverfið, stans-
aði öðru hvoru svo við gætum virt
fyrir okkur fólkið: börn að grilla
hænu, konur að þvo þvott. Eftir því
sem lengra dró mjókkaði gatan og
varð að stíg, fólkið var sífellt nær
okkur, konur og börn brosandi og
hlæjandi, karlarnir alvörugefnari,
allt að því ógnandi fannst okkur.
Leigubílstjórinn kepptist við að
brosa og gantast við fólkið eins og
hann væri hálfhræddur. Þarna varð
maður afar meðvitaður um stöðu
sína og hið freka augnaráð ferða-
langsins.“
Rúnar kveðst hafa verið í tölvu-
póstsambandi við Coetzee áður en
hann fór og hann hafi tekið vel í að
þeir hittumst. „Því miður þurfti hann
að fara til Frakklands viku áður en
mig bar að garði. Hann skrifaði mér
þó hvar bestu bókabúð borgarinnar
væri að finna og benti mér á bita-
stæða höfunda. Ég kíkti í búðina og
hún reyndist með sérstæðari bóka-
búðum sem ég hef komið í, bækur
holt og bolt,“ rifjar Rúnar upp en
segir þá feðga þó hafa ákveðið að
kíkja á háskólasvæðið sem Coetzee
kenndi í. „Skólinn er staðsettur á
afar fallegu svæði í hlíðinni. Við
fundum enskudeildina og fengum
uppgefið hvar skrifstofa kappans
væri. Við stilltum okkur svo upp við
látlausar skrifstofudyrnar og tókum
myndir. Nær komumst við ekki
Coetzee!“ segir Rúnar og hlær að
minningunni. Verður þó fljótt alvar-
legur. „Það var afar átakanlegt að
koma út á Robbeneyju þar sem Nel-
son Mandela og félögum var haldið í
pínulitlum og óvistlegum fangaklef-
um á þriðja áratug. Meðal þess sem
bjargaði þeim var að þeir gátu lesið.
Þetta er eyðilegur staður og við
vorum guðslifandi fegnir þegar
báturinn fór í land aftur.“
Ferðin tók ekki nema viku en
Rúnar Helgi segir hana samt hafa
veitt áhrifamikla innsýn í þetta
margbrotna samfélag. „Það er með
ólíkindum hve mikil grimmd gat
þrifist í þetta fallegu landi,“ segir
hann að lokum.
Þrettán tíma ferðalag
til að skoða eina hurð
„Þarna varð maður afar meðvitaður um stöðu sína og hið freka augnaráð ferðalangsins.“
Háskólasvæðið er glæsilegt. Í byggingunni til vinstri var skrifstofa Coetzee.
Það var ekki amalegt útsýnið úr hótelglugganum.
Rúnar Helgi við dyr meistara Coetzee.
Ekki vera hrædd(ur) við innfædda er þú ferðast
Flestir eru stoltir af landi sínu og tilbúnir að sýna gestrisni og góðvild
og það sem þjóðlegt er.
13. - 28. september
Kalifornía er í hugum margra þekkt fyrir Hollywood og kvikmyndir. Við
fljúgum til San Francisco og förum þaðan í sannkallaða draumaferð.
Haldið þaðan meðfram ströndinni til Los Angeles, farið á staði eins
og Hollywood, Rodeo Drive í Beverly Hills og Alvera Street. Universal
Studios verða heimsótt. Áfram er haldið til San Diego og Phoenix.
Síðan er komið að hápunkti ferðarinnar sem er Grand Canyon og
gistir hópurinn við þjóðgarðinn. Þá borgar sig að fara snemma á
fætur og sjá sólaruppkomuna í þessu stórkostlega landslagi. Haldið
til svæðis Indíána í Paintet Desert, inn í Monument Valley og áfram til
Bryce Canyon. Ekið til Las Vegas, gist þar í tvær nætur og gefst þá
færi á að kíkja aðeins í spilavítin og jafnvel freista gæfunnar. Komið
við í Death Valley á leið til San Francisco. Að lokum er farið í
skoðunarferð til hinnar alræmdu fangelsiseyju Alcatraz. Þetta eru
einungis nokkrir af þeim stöðum sem heimsóttir eru í ferðinni sem
sló í gegn í fyrra.
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Draumaheimur
Verð: 238.670 kr. Mikið innifalið!
Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.baendaferdir.is
Kalifornía - Arizona - Nevada - Utah
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
Kaliforníu
Nýr og spennandi áfangastaður:
Beint flug til
Vilnius í Litháen
Þann 06. – 11. júli býður Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar ferð til Vilnius
í beinu leiguflugi.
Vilnius, höfuðborg Litháens, er forn og fögur borg sem á sér
viðburðaríka sögu. Vilja sumir segja að Vilnius sér hin „land-
fræðilega“ miðja Evrópu.
Verð á mann: 89.900,-
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting, morgunverður,
akstur frá og að flugvelli, skoðunarferð um Vilnius, dagsferð út
fyrir borgina og íslensk fararstjórn.
Verð miðast við gengi og forsendur 28.04. 2006