Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 34
[ ]Bílbeltin bjarga mannslífum. Mundu að nota þau, alltaf.
Megane II phase 2 línan frá
Renault er frumsýnd í dag hjá
B & L.
Megane II línan spannar mikla
breidd. Þekktasta gerðin er eflaust
5 dyra bíllinn, sem sker sig úr
fyrir óvenjulega hönnun aftur-
hlutans ásamt skotthleranum, en
auk hennar telur phase 2 línan
fjórar gerðir til viðbótar, 3 dyra
Sport Hatch, 4 dyra Saloon, lang-
bakinn Sport Tourer og Coupé-
Cabriolet glerblæjubílinn. Megane
II línan var fyrst kynnt hér á landi
í ársbyrjun 2003. Með phase 2 er
verið að vísa til þess að línan
birtist nú með nokkuð breyttum
áherslum, bæði hvað útlit varðar
og eins í tæknilegu tilliti. Það á þó
ekki við stærstu bíla línunnar, fjöl-
notabílana Scenic og Grand Scen-
ic sem eru væntanlegir í phase 2
útgáfu síðar á árinu.
Grill, framstuðari og fram- og
afturljós hafa verið endurhönnuð
og nýir litir hafa bæst við. Að
innan eru nýjar gerðir af áklæði
og endurhannað mælaborð. Að
mati Heiðars J. Sveinssonar, for-
stöðumanns sölusviðs B&L, eru þó
breytingar sem augað ekki nemur
enn áhugaverðari.
„Megane II línan hefur hingað
til aðallega verið þekkt fyrir
skemmtilega aksturseiginleika og
rásfestu. Í phase 2 útgáfunni hefur
verið skerpt á þessum eiginleikum,
þannig að þeir eru enn þéttari en
áður. Þetta má meðal annars rekja
til þess að rafstýrið í línunni hefur
verið uppfært þannig að svörunin
er enn betri,“ segir Heiðar og bend-
ir jafnframt á að aksturseiginleik-
ar línunnar njóti sín enn betur með
þeim vélarkosti sem komi með
nýju phase 2 línunni, tvær bensín-
vélar 1,6 l og 2 l, aflmiklar en spar-
neytnar og tvær áhugaverðar dísíl-
vélar 1,5 l 105 ha og 1,9 l 130 ha.
Loks má geta þess að sérstakur
gestur á frumsýningunni er bíla-
áhugakonan Silvía Nótt.
Bættir aksturseiginleikar og útlit
Fimm dyra Meganinn er þekktastur í Megane II línunni enda sker hann sig úr fjöldanum vegna óvenjulegrar hönnunar á afturhleranum.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.