Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 84
29. apríl 2006 LAUGARDAGUR52
Kammerkórinn Vox academica
flytur í dag Requiem Mozarts
ásamt hljómsveitinni Jón Leifs
Camerata og einsöngvurum í
Langholtskirkju. Sálumessa
Mozarts, sem hann dó frá ólok-
inni, er eitt magnaðasta og vin-
sælasta kórverk tónbók-
menntanna. Efnisval kórsins er
að hluta til komið til vegna 250
ára afmælis tónskáldsins en á
dagskránni eru einnig fjögur
minni verk sem saman mynda
veglega og fjölbreytta efnis-
skrá.
„Okkur fannst vera kominn
tími til að þessi kór gerði eitt-
hvað stærra að umfangi,“ segir
Hákon Leifsson, stjórnandi kórs-
ins, „en þetta er hálfgerð frum-
raun hvað þetta varðar.“ Nú er
stórhugur í kórnum en hann kom
síðast fram á Myrkum músíkdög-
um í vetur við góðan orðstír og á
döfinni er einnig kórferðalag til
Færeyja í tilefni af tíu ára afmæli
kórsins.
Á tónleikunum verða einnig
flutt fjögur minni verk; Maríu-
kvæði eftir Leif Þórarinsson,
Requiem eftir Jón Leifs, Um nótt-
ina eftir Szymon Kuran og tón-
smíðar Purchells. Ásamt kórnum
munu einsöngvararnir Þóra Ein-
arsdóttir, Sesselja Kristjánsdótt-
ir, Gunnar Guðbjörnsson tenór
og Davíð Ólafsson syngja með
kórnum og hljómsveitinni.
Tónleikarnir hefjast í Lang-
holtskirkju kl. 15.
- khh
SÁLUMESSA MOZARTS FLUTT Í LANG-
HOLTSKIRKJU Hákon Leifsson stjórnar Vox
academica og Jón Leifs Camerata á tónleik-
um í dag.
Sálumessa Mozarts sungin
Herdís Anna Jónasdóttir sópran-
söngkona heldur útskriftartón-
leika í Salnum í Kópavogi í dag
kl. 16. Tónleikarnir eru liður í
útskriftartónleikaröð tónlistar-
deildar Listaháskóla Íslands.
Herdís Anna mun flytja fjöl-
breytta efniskrá, meðal annars
verk eftir Jean Sibelius, Erik
Bergman, Gustav Mahler og
Maurice Ravel. Með Herdísi
leika og syngja þau Selma Guð-
mundsdóttir, Eygló Dóra Davíðs-
dóttir, Grímur Helgason, Jóhann
Nardeau, Þorbjörg Daphne Hall
og Þorvaldur Kristinn Þorvalds-
son.
Herdís hefur tekið þátt í upp-
færslum Óperustúdíós Íslensku
óperunnar og komið fram með
tríóinu Drýas sem starfaði á
vegum Hins hússins síðastliðið
sumar.
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR SÓPRAN-
SÖNGKONA Flytur verk eftir Mozart og
Verdi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vegleg söngdagskrá