Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 37
[ ]
FERKANTAÐAR SKÁLAR OG FJÖRLEGIR LITIR ERU Í NÝJUSTU LÍNU GUZZINI.
Guzzini-vörur fást meðal annars í heimilisdeild Bykó enda framleiðir Guzzini allt
til eldhúss, ílát, hnífapör, bökunarform og bollastell svo dæmi séu tekin. Nýir
brúnir litir og neongrænir eru meðal þess sem sést í tvílitum salatskálum frá
honum og form úr silikoni sem skreyta bæði kökur og hlaup. Öll hönnun Guzz-
ini er þaulhugsuð og sama er að segja um efnisval en Guzzini-fyrirtækið var fyrst
til að nota akrýlplast í vörur sínar á fjórða ártatugnum. Allar vörurnar þola þvott í
vél án þess að glansinn minnki með tímanum.
Enn eru hönnuðir Guzzini óhræddir við að blanda saman hinum ýmsu efnum
eins og postulíni, plasti og gleri. Þeir sem hafa áhuga á að skoða meira geta farið
inn á síðuna www.fratelliguzzini.com
Postulín, plast og gler
Litríkt á borðið.
Neongrænt er vinsælt í ár.
Sígild salatskál.
Hús og heimili aukablað fylgir Fréttablaðinu
í dag.
Vönduð rúm og springdýnur
eru aðalsmerki RB rúma við
Dalshraun 8 í Hafnarfirði.
Fyrirtækið hefur framleitt slíka
vöru í sextíu ár.
„Við höfum verið í fararbroddi við
þróun og framleiðslu springdýna
hér á landi,“ segir Birna Ragnars-
dóttir framkvæmdastjóri sem
heldur uppi merki föður síns er
stofnaði fyrirtækið fyrir 60 árum.
Nú starfa um fimmtán manns við
framleiðsluna og sérhæfa sig líka
í hönnun og bólstrun rúmgafla og
viðhaldi eldri húsgagna. Verslunin
RB rúm hefur alltaf verið í Hafn-
arfirði og við Dalshraunið fer vel
um allt í nýlegum húsakynnunum.
Það fer líka ágætlega á því þar
sem fyrirtækið einbeitir sér að
því að láta fara vel um aðra. Meðal
þess sem framleitt er eru hágæða-
rúm með nuddi og springdýnum,
sannkölluð sælurúm. Allir fylgi-
hlutir fást líka í versluninni, svo
sem rúmteppi, púðar, sængur-
verasett, náttborð, kommóður og
margt fleira mætir augum
þegar komið er í sýningar-
salinn. Að sögn Birnu
eru RB rúm í heimssam-
tökunum ISPA, sem eru
gæðasamtök fyrirtækja
sem sérhæfa sig í fram-
leiðslu og hönnun á
springdýnum.
Láta fara vel um fólk
Gaflarnir eru smíðaðir í Hafnarfirði.
Fylgihlutir eins og teppi og púðar fást líka í
RB rúmum.
Rúmin eru framleidd á staðnum og eru af ýmsum stærðum og gerðum.
Birna Ragnarsdóttir heldur uppi merki föður síns sem stofnaði fyrirtækið fyrir um það bil
60 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Unglingarúmin eru vinsæl.
Ármúla 23 • S. 568 1888
www.horningfloor.dk
www.parketgolf.is
Danskur Hörning dagur í Parket&Gólf Ármúla 23
Sérfræðingurinn Jens Klampe frá Hörning verður
á svæðinu milli 10.30-13.30
Léttar veitingar í boði