Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 42
2 ■■■■ { hús & heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Doppur ...
Í bakhúsi á Grensásvegi 16 er að
finna ævintýralega verslun og verk-
stæði sem heitir Litla skermahúsið,
sem var áður til húsa í Safamýrinni
og hefur verið starfrækt í ein ell-
efu ár. Þar ræður Ingibjörg Sigurð-
ardóttir ríkjum, og býr hún til og
hannar lampaskerma eftir óskum
hvers og eins.
„Mest er fólk að koma til mín
með gömlu lampana sína og vill
láta útbúa á þá nýjan skerm. Ann-
aðhvort nákvæmlega eins og þann
upprunalega, eða alveg nýjan,”
segir Ingibjörg. En hún útbýr einnig
skerma fyrir hótel og fyrirtæki.
Hún flytur inn allt efnið sjálf, og
segist hún vera með um 140 gerðir.
Aðspurð hvað varð til þess að
hún fór út í þennan rekstur, fer
hún að hlæja og segist vera búin að
segja söguna oft, en fæst þó til í að
segja hann einu sinni til viðbótar.
„Ég hafði rekið hótel í Lúxemborg
ásamt eiginmanni mínum í ein sjö
ár þegar við ákváðum að draga úr
vinnu, selja hótelið og flytja aftur
til Íslands. Ég kom til baka með þá
hugmynd að opna Litla skermahús-
ið, en ég hafði rekist á sambærilega
búð þegar ég var á rölti um borg
eina í Frakklandi,“ segir Ingibjörg.
Hún segist alveg hafa kolfallið fyrir
litlu búðinni í Frakklandi og vitað
samstundis að þetta væri eitthvað
sem hentaði henni, þar sem hún
hefði alltaf verið mikil handavinnu-
manneskja.
„Maðurinn minn var þá flug-
stjóri en afskaplega flinkur í hönd-
unum og var með mér í þessu fyrst
um sinn, en hann er látinn núna.
Hann smíðaði meðal annars öll mín
tæki og tól og útbjó öll sniðin sem
ég nota,“ segir Ingibjörg.
Ekki er komist hjá því að spyrja
hana að lokum hvort hún sé ekki
með fingurinn á tískunni í starfinu,
og svarar hún því til að tískan fari
svo sem ekki fram hjá henni. „Svarti
liturinn er til dæmis mjög vinsæll
núna, og skermarnir sniðnir eins og
hólkar, þ.e.a.s. þeir eru jafnbreiðir
upp úr og niður úr.“
Að franskri fyrirmynd
Í Litla skermahúsinu er nýju lífi blásið í gamla lampa með því að sníða á þá nýja skerma.
Ingibjörg Sigurðardóttir útbýr skerma fyrir einstaklinga og hótel í Litla skermahúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Fjölbreytt úrval lampaskerma sem Ingibjörg hefur búið til. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
eru dansandi og lifandi form sem
lífga upp á hversdagsleikann,
brjóta upp ferhyrnd form og lífga
upp á nánast hvaða vistaver-
ur sem er. Doppur, sem raðað er
skipulega upp eða tilviljanakennt,
geta verið skemmtileg tilraun
til að hleypa munstri og litum á
veggi heimilisins. Hægt er að láta
útbúa fyrir sig doppur úr litríkum
límfilmum og líma þær á vegg-
inn. Auðvelt er að fjarlægja þær,
ef þar hafa truflandi áhrif en ekki
upplífgandi á heimilisandann.
Á níunda áratugnum þótti mjög
flott að hafa svört húsgögn og
svarta heimilismuni. Með tíman-
um tóku vinsældir svarts að dala
þótt aldrei dytti hann alveg út.
Hann er hins vegar kominn aftur
í tísku og nú þykir fátt flott-
ara en að hafa hann áberandi
á heimilinu, eins og á veggjum,
í eldhúsinnréttingum, skraut-
munum, myndarömmum og
jafnvel gardínum. Svarti litur-
inn er alveg laus við væmni, og
hefur hann þau áhrif á aðra liti.
Þannig er vel hægt að hafa hann
með bleikum eða pastelgrænum
litum, þó að hann sé alltaf flott-
astur með hvítu. Auðveldasta
leiðin til að hleypa svörtum inn
á heimilið án þess að það dimmi
yfir öllu, er að skreyta með
svörtum púðum, myndarömmum
og skrautmunum.
Nú er það svart
Svarti liturinn er kominn aftur.
Svartur og hvítur munstraður púði í Exó.
Svartir myndarammar eru sígildir. Auð-
velt er að taka gamla myndaramma og
mála þá svarta.
Leðurstóll og
ljósakróna frá
Mooi. Fæst í
Lumex.
iPod er
ekki síðri
svartur, en
hvíti liturinn
er þó einkennis-
litur hans.
Svört kerti og servíettur í stíl
úr Blómacompany.Stór og flottur
mjólkurbrúsi í Exó.
N
O
RD
IC
P
H
O
TO
S/
G
ET
TY
IM
AG
ES
Margar stærðir og gerðir eldstæða, opin eða
með hurð, einnig opin í gegn (tvær hurðir)
Verð frá kr. 82.000.-
Einnig úrval af aukahlutum fyrir arininn
���������
����������������� ������������� �����������