Fréttablaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 29. apríl 2006 13
Heimsmarkaðsverð á kopari hefur
hækkað um þriðjung í apríl, sem
er mesta hækkun í einum mánuði
frá því í nóvember árið 1987.
Síðustu hækkanir eru raktar til
verkfalls námuverkamanna í Chile
og eykur það áhyggjur manna
um að ekki náist að framleiða upp
í árlega heimsmarkaðsþörf, 17,8
milljónir tonna.
„Framboðshliðin mun halda
áfram að líða fyrir raskanir,“ segir
miðlarinn Kevin Tuohy í samtali
við Bloomberg. Tonnið af kopari
hefur farið hæst í 7.385 dali í apríl.
Fjárfestingarsjóðir eiga sinn
þátt í þeim hækkunum sem hafa
orðið á kopari og öðrum málmum
þar sem þeir telja að málmarnir
hækki meira en verðbréf. - eþa
Kopar hækkar
um þriðjung
Vöruskiptajöfnuður var óhagstæð-
ur um 13,4 milljarða króna í mars.
Vörur voru fluttar út fyrir 19,9
milljarða króna en inn fyrir 33,3
milljarða króna. Í mars í fyrra var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð-
ur um 6,3 milljarða á föstu gengi.
Fyrstu þrjá mánuði ársins voru
vörur fluttar út fyrir 48,8 millj-
arða króna en inn fyrir 80,7 millj-
arða króna. Vöruskiptahalli við
útlönd nam tæpum 32 milljörðum
króna en á sama tíma í fyrra var
hann óhagstæður um 15,3 millj-
arða króna á sama gengi, að sögn
Hagstofunnar.
Sjávarafurðir voru 58 prósent
alls útflutnings og iðnaðarvörur
38 prósent en verðmæti þeirra var
12,4 prósentum meira nú en á
sama tíma í fyrra, aðallega vegna
aukins álútflutnings. Mest jókst
innflutningur á fjárfestingarvöru
og hrá- og rekstrarvöru. Á móti
kom samdráttur í innflutningi
flugvéla. - jab
Methalli á viðskiptum
NÝIR BÍLAR Vörur voru fluttar út fyrir 19,9
milljarða í síðasta mánuði en inn fyrir 33,3
milljarða króna.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
62
43
10
/2
00
4
debenhams
S M Á R A L I N D
debenhams
vorútsala
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
23
75
04
/2
00
6
50afsláttur%
af völdum vörum
í ellefu daga
20%
Sjóðheit tilboð:
afsláttur af öllum pottum
og pönnum í heimilisdeild
ásamt nærfötum og
sokkum í herradeild
AUK ÞESS AÐEINS FRÁ FIMMTUDEGI TIL SUNNUDAGS:
Maine
dömu-
prjónavesti
Nú: 1.290 kr.
3.490 kr.
Leður-
bakkar
Nú: 800 kr.
1.990 kr. Herra-
stutterma-
bolir
Nú: 990 kr.
2.990 kr.
Ilmsteinar
með olíu
Nú: 300 kr.
899 kr.
Dömu-
buxur
Nú: 1.990 kr.
4.990-6.990 kr.
Dömu-
skyrtur
Nú: 1.490 kr.
4.490 kr.
Barna-
leður-
jakkar
Nú: 4.900 kr.
18.900 kr.
Vísitala sem mælir trú stjórnenda
og neytenda evrulandanna tólf á
efnahagslífið hefur ekki mælst
hærri í fimm ár og hækkaði í 105,3
í apríl úr 103,6 í mars.
Á sama tíma hefur verðbólga í
löndunum aukist meira en búist
var við. Á vefsíðu Bloomberg er
sagt frá því að tölur frá Hagstofu
Evrópusambandsins sýni að verð
á neysluvörum hafi hækkað um
2,4 prósent frá því í apríl á síðasta
ári. Þetta styrki spár um að Seðla-
banki Evrópu muni fljótlega
hækka stýrivexti. Bankinn hafi
tvisvar hækkað stýrivexti frá því í
byrjun desember á síðasta ári og
sérfræðingar eigi nú jafnvel von á
50 punkta hækkun til viðbótar.
- hhs
Trú evrópskra
neytenda eykst
ÞENSLA Í EVRÓPU Trú þegna Evrópu-
sambandsins á efnahagslífið hefur ekki
mælst meiri í fimm ár. Á sama tíma eykst
verðbólga hröðum skrefum.
Norska útgerðarfélagið Aker Sea-
foods hagnaðist um 33 milljónir
norskra króna, eða 400 milljónir
íslenskra króna, á fyrsta ársfjórð-
ungi. Á sama tíma í fyrra nam
hagnaður fyrirtækisins 39 millj-
ónum norska króna.
Rekstarhagnaður fyrir afskrift-
ir var 67 milljónir norskra króna
og framlegðarhlutfallið ellefu pró-
sent samanborið við 12,5 prósent á
sama tíma í fyrra.
Rekstrarskilyrði í norskum
sjávarútvegi eru nokkuð erfið,
olíuverð helst hátt og norska krón-
an hefur styrkst um tuttugu pró-
sent gagnvart íslensku krónunni
frá ársbyrjun, sem veitir íslensk-
um framleiðendum forskot í sam-
keppninni. Stjórnendur Aker eru
tiltölulega bjartsýnir fyrir árið og
spá hagnaði upp á 50-80 milljónir
norskra króna.
Skuldabréf Aker Seafoods eru
skráð í Kauphöll Íslands en stærsti
hluthafinn er norski athafnamað-
urinn Kjell Inge Rökke. Félagið
byggir starfsemi sína á
þremur ein-
ingum: veið-
um, land-
vinnslu í
Noregi og
landvinnslu í
Danmörku.
- eþa
KJELL INGE RÖKKE Stjórnendur Aker Sea-
foods telja að íslenska útgerðin nái forskoti
vegna veikingar krónunnar.
Útgerðin nær
forskoti