Fréttablaðið - 29.04.2006, Side 18

Fréttablaðið - 29.04.2006, Side 18
 29. apríl 2006 LAUGARDAGUR ERTU BURÐAR- DÝR FYRIR UNGLINGINN? KAUPUM EKKI ÁFENGI FYRIR FÓLK UNDIR LÖGALDRI. Þeir sem lýsa Arn- óri Sighvatssyni segja gjarnan að þar fari traustur, heilsteyptur og hógvær maður. Svo vægt sé til orða tekið, hnýtti einn við sem þekkir vel til aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands. Arnór nýtur mikill- ar virðingar meðal kollega sinna; þykir samkvæmur sjálfum sér og stefnufastur. Arnór ritaði ýtar- lega grein í Fréttablaðið þar sem hann svaraði gagnrýni á stefnu bankans. Þar færði hann skýr og greinargóð rök fyrir grunni stefnunnar, en velti um leið upp mikilvægum álitaefnum um grunn þeirrar stefnu. Meðal þess sem hann lét í ljós voru efa- semdir um að sjálfstæð mynt og peningastefna samrýmdust hug- myndum manna um stöðugleika. Sú lýsing, þótt sett væri fram með fyrirvörum, vakti athygli sem honum sjálfum þótti meiri en efni stóðu til. Sjálfur hefur hann oft áður lýst þeim sjónar- miðum sem komu fram í grein- inni, en jarðvegur umræðunnar er frjórri nú vegna þess að ein- kenni ójafnvægis eru skýrari nú en áður þegar Arnór hefur sett fram fræðilega sýn sína á hag- kerfið og peningastefnuna. Hlut- verk Seðlabankans er jú einu sinni það að flytja tíðindi sem enginn vill heyra þegar þau eru sett fram. Arnór hefur ásamt samstarfsmönnum sínum þrá- faldlega varað við þeirri hættu sem nú blasir við í hagkerfinu. Þá var bara of gaman í veislunni til að nokkur nennti að hlusta. Frá menningarheimili Arnór er sagður sverja sig í ætt sína, sem þykir yfirveguð og með báða fætur á jörðinni. Það er líka kannski eins gott að í sæti aðal- hagfræðings Seðlabankans sitji maður sem lætur fátt raska ró sinni og er ekki ginnkeyptur fyrir glysi heimsins. Það mæðir mikið á Seðlabankanum um þess- ar mundir, enda lítt studdur í við- leitni sinni til að halda aftur af þenslu í samfélaginu. Arnór er alinn upp í sveit. Móðir hans var þýsk og flutti til Íslands eins og þó nokkrar löndur hennar af sömu kynslóð sem komu í atvinnuleit og giftust og festu rætur hér. Heimilið á Miðhúsum þar sem Arnór ólst upp var mikið menn- ingarheimili. Hann er alinn upp við klassíska íslenska bókmenn- ingu í bland við miðevrópska hámenningu. Arnór er unnandi tónlistar og alinn upp við klass- íska tónlist. Bróðir hans er píanó- leikari, en hermt er að í iPod-tæki sem vinnufélagar hans gáfu honum nýverið í fimmtugsafmæl- isgjöf hljómi líka suður-amerísk- ur taktur. Arnór hefur ferðast til Suður-Ameríku og nálgast frí sín með því að afla sér þekkingar um þau lönd sem hann heimsækir. Afi hans og nafni var mikill skör- ungur og innblásinn ungmennafé- lagsanda og íslenskri menningu. Hann er mikill grúskari og sterkari á svelli í kenningarhlið hagfræðinnar en þeirri hátækni- legu, þótt hann valdi vel þeirri hlið. Hann fylgist afar vel með í fræðunum og hefur verið iðinn við ritun fræði- legra greina. Hann er fræði- maður í eðli sínu og sækist lítið eftir athygli. Hann hefur þó ekki skorast undan því að sinna hlutverki sínu á opinberum vettvangi og flyt- ur mál sitt af öryggi þegar á þarf að halda. Ekki fer á milli mála að þar fer vel ritfær maður sem veldur vel bæði stíl og fræð- um. Hlaup og rót- tækni Líkamann van- rækir hann ekki, því hann tók upp á því að hlaupa sér til heilsu- bótar. Eftir að iPodinn komst í eigu hans getur hann sameinað hlaupin tónlistar- áhuganum. Arnór hleypur einn og segist búa yfir þeim aga að þurfa ekki hlaupafélaga til að hvetja sig til dáða. Frítím- anum ver hann með fjölskyld- unni, en hann er kvæntur og á þrjú börn. Eins og svo mörg leitandi og vel gefin ungmenni sinnar kyn- slóðar lagðist Arnór í kommún- isma og marxisma á menntaskóla- árunum. Hann var talsvert róttækur á þeim árum og bylting- arsinnaður. Þetta er ekki óþekkt meðal þeirra sem hafa orðið öflug- ir hagfræðingar. Nægir þar að nefna menn eins og Má Guðmunds- son, fyrirrennara Arnórs, Jónas Haralz og Benjamín Eríkssons sem hurfu frá róttækni ungdóms- áranna inn í djúp hagfræðinnar. Arnór stundaði meistaranám í hagfræði í Bandaríkjunum og lauk doktorsnámi í framhaldi af því frá Northern Illinois University. Hann hóf störf hjá Seðlabankanum árið 1990 og varð deildarstjóri og staðgengill aðal- hagfræðings árið 1995. Hann vann um tíma hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum í Washington og við kennslu í Bandaríkjunum. Hann hefur ritað fjölda greina um efnahagsmál og peningamál, einn eða í samvinnu við aðra. Meginviðfangsefni Arnórs í þess- um greinum hafa verið alþjóðleg efnahagsmál, alþjóðaviðskipti, gengismál og peningamál. MAÐUR VIKUNNAR Hógvær og hleypur einn ARNÓR SIGHVATSSON AÐALHAGFRÆÐINGUR SEÐLABANKANS NFS Í BEINNI Á VISIR.IS 35.000 gestir vikulega sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver. Auglýsingasími 550 5000.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.