Fréttablaðið - 06.05.2006, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
6. maí 2006 — 120. tölublað — 6. árgangur
�������������
�������������������������������������������������������������
����������������������������������������������������
�������������������������������������������
�������������������
��� �������
������
�������������������������������������������
������������������� ����������������������
������
��������
���������
���������������
�������
�������������
���������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������
�
�
��
��
��
�
��
��
�
��
��
��
��
��
TRAUSTUR FERÐAFÉLAGIEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Á FERÐ
OG FLUGI
‒ með ferðatösku frá FAXE
KRAKKAR Á RÚLLANDI FERÐ Nú þegar vorið er gengið í garð hafa krakkarnir í Melaskóla tekið fram hjólin og línuskautana. Þeir þeystust
um skólalóðina í gær og átti ljósmyndari fótum fjör að launa til að verða ekki fyrir hjálmbúnum línuskautadrengjum. Um helgina er spáð
blíðskaparveðri og því líklegt að fleiri krakkar nýti tækifærið og þeysist um á einhverju sem rennur jafn létt og fararskjótar þessara pilta.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÍNA, AP Kínverskir veðurfræðing-
ar deyja ekki ráðalausir þegar
rigningin lætur á sér standa. Í gær
gerðu þeir sér lítið fyrir og fram-
kölluðu regn yfir höfuðborginni
Peking. Borgarbúar voru orðnir
langþreyttir á þurrkunum.
Þeir skutu sjö eldflaugum upp í
himininn. Í eldflaugunum voru
163 hylki með silfurjoðíni, sem
áður hefur verið notað í Kína til
þess að framkalla rigningu.
Afraksturinn í gær var úrkoma
sem nam 11,2 millimetrum, mesta
úrkoma sem orðið hefur í borginni
á þessu ári. - gb
Kínverjar bregðast við þurrki:
Bjuggu til regn
yfir Peking
HJÓLAÐ Í RIGNINGUNNI Kínverjar kunna
ráð til að búa til regn. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Lykillinn að sumarsmelli
Ekkert nema guðleg
íhlutun getur komið í
veg fyrir að Da Vinci
lykillinn slái í gegn í
bíóhúsum í sumar.
KVIKMYNDIR 44
Spáði í stöðugleikann
Kunnur hagfræðiprófessor, Frederic
Mishkin, vann skýrslu um fjármála-
stöðugleika íslenska hagkerfisins.
Niðurstaðan er að íslenskt efnahagslíf
standi traustum fótum, þrátt fyrir
tímabundið ójafnvægi. Mishkin telur
einnig ólíklegt að neikvæð umræða
ein og sér geti valdið fjármálakreppu
á Íslandi. Til þess séu undirstöðurnar
of góðar.
VIÐSKIPTI 32
BUBBI MORTHENS
Kóngurinn
fimmtugur
Þriggja tíma tónleikar í Höllinni
FÓLK 62
Spáir sjálfri sér sigri
Silvía Night er sigurviss fyrir Söngva-
keppni evrópskra
sjónvarpsstöðva.
Hún ætlar að láta
fegurðina flæða
um sálina á sér á
sviðinu í Aþenu en
hefur neyðst til að
leggja íslenskuna
á hilluna í bili.
VIÐTAL 30
46%
63%
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í janúar 2006.
Konur 18-49 ára
Meðallestur
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
40
30
50
70
60
BYGGÐAMÁL Verkalýðsforingjar á
landsbyggðinni eru ósáttir við
umsögn ASÍ um Nýsköpunarmið-
stöð og staðsetningu hennar á
Sauðárkróki og hafa sent Alþýðu-
sambandi Íslands bréf og hringt
og óskað eftir skýringum. Þórarni
Sverrissyni, formanni Stéttarfé-
lagsins Öldunnar á Sauðárkróki,
er heitt í hamsi.
„Ég er vonsvikinn og ósáttur
við umsögn ASÍ. Ég er líka undr-
andi á því að þeir sendi hana ekki
til umsagnar hjá þeim aðilum úti á
landi sem málið varðar áður en
umsögnin er látin fjúka,“ segir
hann.
Þórarinn er hlynntur Nýsköp-
unarmiðstöð á Sauðárkróki og
telur að það hefði í för með sér
atvinnusköpun á svæðinu. „ASÍ
ályktar eins og þeim komi aðstaða
okkar ekki við. Hagfræðilegir
útreikningar mega ekki eingöngu
ráða för, pólitíkin verður að ráða
líka. Með þessari umsögn dregur
ASÍ tennurnar úr mönnum.“
Aðalsteinn Baldursson, for-
maður Verkalýðsfélags Húsavík-
ur, hefur óskað skýringa hjá ASÍ.
Hann segir að umsögnin hafi
komið sér verulega á óvart. „Við
trúum ekki öðru en að þetta hafi
gerst fyrir klaufaskap og að
þetta sé ekki stefna ASÍ því að
hún er algjörlega á skjön við
verkalýðsfélögin á landsbyggð-
inni. Mér er fúlasta alvara,“ segir
hann.
„Þau eru nú orðin mörg málin
sem ASÍ hefur afgreitt án nokkurs
samráðs við sín aðildarfélög. Þetta
eru óþolandi vinnubrögð. Örfáir
einstaklingar stjórna öllu í hreyf-
ingunni,“ segir Vilhjálmur E.
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir umsögn-
ina byggjast á stefnumótunar-
vinnu ASÍ og telur reynsluna sýna
að Byggðasjóður hafi litlu skilað
til að bæta stöðu félagsmanna eða
tryggja atvinnuöryggi þeirra.
„Við hjá ASÍ teljum að skyn-
samlegra væri að leggja pening-
ana í aukna endurmenntun og
starfsmenntun íbúanna frekar en
að sólunda þeim í mismunandi vel
heppnuð verkefni,“ segir hann og
telur málið ekki snúast um afstöðu
til Sauðárkróks.
- ghs
Verkalýðsforingjar
heimta skýringar
Verkalýðsforingjar á landsbyggðinni eru ósáttir við neikvæða umsögn ASÍ um
Nýsköpunarmiðstöð á Sauðárkróki og skort á samráði við landsbyggðina. Þeir
óska eftir skýringum. „Örfáir stjórna öllu,“ segir formaðurinn á Akranesi.
RÚSSLAND, AP Hörð gagnrýni Dicks
Cheney, varaforseta Bandaríkj-
anna, á stjórnarfarið í Rússlandi,
sem hann lét falla á ráðstefnu í
Litháen á fimmtudaginn, hafa
farið mjög fyrir brjóstið á fjöl-
miðlum og stjórnmálaskýrendum
í Rússlandi.
Viðskiptablaðið Kommersant
segir ummæli Cheneys marka
„upphafið að nýju köldu stríði“ og
rifjaði í því samhengi upp fræga
ræðu Churchills um
„Járntjaldið“.
Cheney hafði í ræðu sinni
sakað rússnesk stjórnvöld um að
fótumtroða bæði trúarleg og
pólitísk réttindi þegna sinna.
Opinber viðbrögð stjórnvalda í
Kreml hafa verið hófstillt. Sergei
Lavrov utanríkisráðherra gagn-
rýndi þó harðlega ráðstefnuna,
þar sem saman voru komnir leið-
togar nokkurra fyrrverandi Sov-
étlýðvelda, sem eiga það sameig-
inlegt að hallast frekar að
Vesturlöndum en Rússlandi.
Á fundinum gagnrýndu sumir
þessara leiðtoga Rússa harkalega.
Til dæmis sagði Mikhaíl
Saakashvili, forseti Georgíu, að
Rússar reyndu að grafa undan
bæði fullveldi og hagvexti ungu
lýðræðisríkjanna, sem enn eru að
reyna að ná fótfestu eftir fall
Sovétríkjanna. - gb
Á RÁÐSTEFNUNNI Í LITHÁEN Dick Cheney
var hugsi á fimmtudaginn áður en hann
hélt ræðu sína, sem vakið hefur hörð
viðbrögð í Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Rússneskir fjölmiðlar æfir vegna ummæla Dicks Cheney um Rússland:
Segja nýtt kalt stríð hafið
BLÍÐSKAPARVEÐUR Í dag verður
yfirleitt góðviðri. Bjartviðri norðan og
austan til og bjart með köflum vestan
til. Stöku skúrir með suður-ströndinni,
einkum síðdegis og gæti vætan þá náð
til höfuðborgarinnar. Hiti 10-18 stig.
VEÐUR 4
VEÐRIÐ Í DAG
Sverrir til Gummersbach
Skammt er stórra högga á milli hjá
Sverri Björnssyni. Hann varð
Íslandsmeistari með Fram
á dögunum en er nú á
leiðinni til þýska stór-
liðsins Gummersbach
í atvinnumennskuna.
ÍÞRÓTTIR 56
HÚS OG HEIMILI
Gott athvarf
Sérblað um húsgögn
og húsbúnað
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VARNARLIÐIÐ Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar, hefur
boðað starfsfólk Varnarliðsins til
fundar á mánudag. Geir H. Haarde
utanríkisráðherra mun einnig
sækja fundinn.
Árni segir að fundurinn sé til
ræða starf ráðgjafarstofunnar
sem var stofnuð. „Við ætlum að
fjalla um námskeiðin sem haldin
hafa verið, til dæmis þátttökuna í
þeim. Einnig verður fjallað um
störf sem bjóðast í gegnum ráð-
gjafarstofuna.“ Árni segir að utan-
ríkisráðherra mæti á fundinn til
að fara yfir lögin um rekstur flug-
vallarins og greina frá því hvernig
hann sér framhaldið. - shá
Starfsfólk Varnarliðsins á fund:
Púlsinn tekinn
og málin rædd