Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 24
 6. maí 2006 LAUGARDAGUR24 stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, Boðarnir framundan Þrátt fyrir mikla siglingu fjármálakerfisins og glímu við ójafnvægi í þjóðarbúskap næstu árin er fjármálakerfið traust að mati Seðlabankans. Það stendur óbreytt að mati Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra, „en boðarnir framundan eru nú sýnilegri og meiri“. Í janúar 2002 hafði gengi krónunnar lækkað um fjórðung hið minnsta og verðbólga stóð hættulega nærri tíu prósentum. Þá stóð þessi sami Davíð í sporum forsætisráðherra, önugur vegna rauðra strika í kjarasamningum, en virtist vita upp á hár hverjir boðarnir voru þá: Hækkun matvöruverðs átti sök á tveimur þriðju verðbólgunnar. Í umræðum á Alþingi 22. janúar sagðí hann meðal annars: „Auðvitað á að fylgja því eftir að stórir aðilar séu ekki að misnota aðstöðu sína. Auðvitað er 60 prósenta eignaraðild í matvælafyrirtækjum, verslunarfyrirtækjum í matvælaiðnaði, allt of há hlutdeild. Auðvitað er það uggvænlegt og sérstaklega þegar menn hafa á tilfinningunni að menn beiti ekki því mikla valdi sem þeir hafa þar af skynsemi. Auðvitað hlýtur að koma til greina af hálfu ríkisins og Alþingis að skipta upp slíkum eignum ef þær eru misnotaðar.“ Davíð var þarna að tala um Baug, hvattur af Össuri Skarphéðinssyni, þingmanni Samfylking- arinnar. Hver er bestur? Matvöruskýringin reyndist að vísu röng hjá Davíð þegar upp var staðið. Viðurkennt var að aðrar hækkanir, meðal annars af hálfu hins opinbera, hefðu átt mun drýgri þátt í verðbólgunni. Um þetta má meðal annars lesa í útgefnu efni Seðlabank- ans frá þessum tíma. Davíð seðlabankastjóri gæti seilst lengra aftur í tímann um ráð til að endur- heimta stöðugleika. Hæg eru heimatökin þar sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson frjálshyggju- mógúll situr í bankaráði Seðlabankans. Hannes vitnaði á árum áður í Jón Þorláksson, stofnanda Sjálfstæðisflokksins. Meðal annars í þetta: „Ef peningamálin væru í fullkomnu lagi, ætti tiltekin peningaupphæð að samsvara sama verðmæti fjármuna ár eftir ár. Þetta er samskonar óbreytileiki á verðmælingum, sem nú er heimtaður af lengd- armælitækjum, þyngdarmælitækjum og öðrum tækjum sem notuð eru til að mæla aðra eiginleika munanna en verð þeirra.“ Þetta þarf vitanlega að taka upp á fundi bankaráðsins með Davíð. vegna gengisfellinga. Um fjármálastöðugleikann sagði Davíð einnig fyrir helgina: „Vettvangur athafna er markaðskerfi með umgjörð stjórnvalda sem er sambærileg við það sem best gerist í Evrópu.“ - Var hann að hæla umgjörð sem forsætisráðherrann fyrrverandi skóp? Úr bakherberginu... „Það skyldi þó aldrei vera að þessi stöðugi neikvæði tónn stjórnarandstöðunnar sé farinn að vigta inn í verðbólguna. Þess vegna styð ég forseta í því, verðbólgunnar vegna, að efna ekki til þessarar umræðu enn einu sinni í dag.“ Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, um kröfur stjórnarand- stæðinga um efnahagsmálaumræðu fyrir frestun þingstarfa. Talsvert mikið er til í því þegar ráðherrar bera því við að þeir ráði litlu. Vald þeirra er minna en áður. Að þessu leyti var það rétt sem sagt var um Davíð Oddsson, þegar hann sté af stóli forsætisráðherra fyrir einu og hálfu ári, að hann hefði hlutast til um að takmarka vald stjórnmálamanna. Dreifa því. Þetta stenst skoðun að því leyti að einkavæðing ríkisbankanna, símþjónustunnar og margra annarra ríkisfyrirtækja takmarkar sjálfkrafa áhrifavald stjórn- málamanna. Halldór Hermannsson, útvegsmaður á Ísafirði, hélt fram skoðunum sem þóttu djarfar fyrir fjórtán árum, þegar umræða stóð sem hæst um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Halldór hélt því opinberlega fram að best væri að sækja strax um aðild að Evrópu- sambandinu án millilendingar á Evrópska efnahagssvæðinu. Ávinningurinn væri margvíslegur. Í fyrsta lagi mundi þjóðin losna undan geðþóttavaldi íslenskra stjórnmálamanna. Í öðru lagi væri ekkert athugavert við það þótt til dæmis stórfyrirtæki á borð við Nestlé eða Tesco fjárfestu í íslenskri sjávarréttaverksmiðju á Ísafirði eða Húsavík. Í þriðja lagi taldi Halldór að atvinnulíf á landsbyggðinni yrði betur sett með aðild að Evrópusambandinu með ýmsum þeim stuðningi sem sambandið veitir norðlægum byggðum til aðstöðujöfnunar á markaði. Halldóri hefur að einu leyti orðið að ósk sinni. Áhrif ráðherranna, til dæmis á stjórn efnahagsmála, eru minni en áður. Réttur borgaranna er í æ ríkara mæli varinn í krafti EES-samningsins eða annarra alþjóðlegra sátt- mála. Að öðru leyti kunna vonbrigði hans að vera mikil. Með þverrandi valdi ráðherranna hefur nefnilega ekki rofað til í byggðamálum með þeim hætti sem Halldór dreymdi um að orðið gæti með aðild að Evrópusambandinu og stuðningi þess við byggðir á norðlægum slóðum. Hvað þá að erlend fyrirtæki megi óhindrað fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Þess í stað lýsa stjórnvöld æ oftar yfir áhrifaleysi til lands og sjávar. Nú þegar farið er að gæta jákvæðra afleiðinga af minnkandi áhrifum íslenskra ráðherra ætti þjóðin að snúa sér að því að ná síðari tveimur stefnumiðum Halldórs Hermannssonar í höfn. VIKA Í PÓLITÍK JÓHANN HAUKSSON Þverrandi vald Gengið krónunnar er fallið og verðbólga er yfir viðmið- unarmörkum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, gagnrýndi hart, áður en þingstörfum var frestað, að ekki skyldi gefið svigrúm til umræðu um óstöðugleika í íslensku efnahagslífi. „Krónan hefur fallið hraðar og meira en spáð hafði verið,“ segir Steingrímur. „Árni Mathiesen fjár- málaráðherra viðurkennir að spá ráðuneytisins sé úrelt því allt væri þetta meira en spáð hafði verið. Verð- bólgan er utan viðmiðunar- marka Seðla- bankans og flestir ef ekki allir búast við verulegu verð- bólguskoti núna. Ríkis- stjórnin viður- kennir þetta jafvægisleysi þegar kemur til dæmis að útflutningsfyrirtækjun- um. Fjármálaráðherra lagði fram frumvarp í vikunni um að hlífa þeim við skattfærslu gengishagn- aðar og þeim erfiðleikum sem þessar miklu sveiflur valda í atvinnulífinu. En ríkisstjórnin lyft- ir ekki litla fingri gagnvart heimil- unum og launamönnum. Þó er alveg ljóst að kaupmáttur mun skerðast verulega á næstu mánuð- um. Sérstaklega verður þetta til- finnanlegt með hækkun verð- tryggðra lána. Skuldir heimilanna taka stökk upp á við og verðbætur og afborganir sömuleiðis. Það örlar ekki á neinni viðleitni af hálfu rík- isstjórnarinnar til að takast á við þetta og verja kjör hinna lakast settu gegnum þetta öldurót. Því vil ég spyrja forsætisráð- herra í fyrsta lagi hvort til standi að grípa til einhverra ráðstafana til að reyna að ná aftur efnahagsstöð- ugleika. Hvort gripið verði til aðgerða til að hlífa launamönnum, einkum þeim lægst launuðu og þá heimilunum eftir föngum. Ég minni á það sem Atli Gíslason, þingmaður VG, vakti athygli á í þinginu hvernig stjórnvöld hafa í raun rústað vaxtabótakerfinu. Ráð- herrarnir eru með allt niður um sig í þessu efni og hafa ekkert fram að færa.“ Stóriðjubindindi „Okkur er ekkert að vanbúnaði að leiðbeina ríkisstjórninni. Við höfum flutt um það tillögur í þing- inu. Við leggjum til stóriðjubind- indi og að skattalækkunum verði slegið á frest um næstu áramót, enda koma þær þeim tekjuhæstu mest til góða. Það á að gera ráð- stafanir til þess að hægja á og treysta stöðuna í fjármálakerfinu eins og Seðlabankinn er að gera núna. Eini aðilinn sem ekki viður- kennir vandann og setur hausinn undir sig er ríkisstjórnin. Hún hefur sagt að helstu óvinir þjóðar- innar undanfarnar vikur séu erlendir efnahagsspámenn og álit þeirra. Það hefur byggst á því að þeir væru okkur ekki velviljaðir, þekktu ekki til mála og svo fram- vegis. Svo finna þeir einn prófess- or vestur í Bandaríkjunum og kaupa hann til að halda erindi. Þá er hann alveg óskeikull, hlutlaus og veit allt um þetta. Sem sagt: Ef útlendingar segja eitthvað neikvætt er ekkert mark á þeim takandi. En höfuðsnillingar heita þeir ef þeir segja eitthvað jákvætt,“ segir Steingrímur J. Sigfússon. Í kröppum dansi Um stöðugleika og efnahagslíf segir í nýrri skýrslu Seðlabankans, að ójafnvægi í þjóðarbúskapnum geti grafið undan stöðugleika. Snöggar gengisbreytingar í kjölfar mikils viðskiptahalla og verðlækk- un eigna gætu haft töluverð áhrif á skuldsett heimili og fyrirtæki og á rekstrarskilyrði íslenskra fjár- málafyrirtækja. Seðlabankinn segir að gengið hafi fallið fyrr og hraðar en vonast var til. „Til lengri tíma litið er sú breyting holl, enda var gengið orðið töluvert hærra en samrýmst gat jafnvægi í þjóðarbúskapnum.“ Enn fremur segir í innangi skýrslunnar: „Verulegur samdrátt- ur í efnahagslífinu gæti dregið úr stöðugleika fjármálakerfisins. Mikil lækkun eignaverðs, gengis- lækkun krónunnar og hækkun erlendra vaxta samtímis myndi leiða til snarpari aðlögunar en ella.“ Viðskiptahalli án hliðstæðu Staldrað er við hátt fasteignaverð og það að skuldir einstaklinga, fyr- irtækja og þjóðarbúsins í heild hafi aldrei aukist jafn hratt og á síðasta ári. Einkaneyslan jókst um sjö pró- sent árin 2004 og 2005 en heil 12 prósent í fyrra. Á sama tíma nam viðskiptahallinn meira en 16 pró- sentum af landsframleiðslu. Seðlabankinn kallar niðursveifl- una, sem hafin er, aðlögunarferli. „Aðlögunarferlið viðrðist raunar þegar hafið, öllu fyrr en flestir höfðu vænst, með umtalsverðri gengislækkun krónunnar. Nær undantekningalaust lýkur tímabil- um mikils viðskiptahalla tiltölu- lega fljótlega með nokkrum sam- drætti. Í ljósi þess að viðskiptahallinn er til muna meiri en nokkurt OECD-ríki hefur áður þurft að glíma við í sögu þeirra samtaka mætti ætla að samdráttur gæti orðið nokkuð harkalegur.“ Seðlabankinn segir fullum fetum að aðlögunin eða samdrátt- urinn verði á innflutningshlið, en innflutningurinn sé afar næmur fyrir miklum gengisbreytingum. johannh@frettabladid.is BYGGINGAKRANAR Í REYKJAVÍK „Mikil lækkun eignaverðs, gengislækkun krónunnar og hækkun erlendra vaxta samtímis myndi leiða til snarpari aðlögunar en ella.“ STEINGRÍMUR J. SIG- FÚSSON FORMAÐUR VG „En ríkisstjórnin lyftir ekki lítla fingri gagnvart heimilunum og launamönnum.“ Vont að missa jafnvægið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.