Fréttablaðið - 06.05.2006, Qupperneq 33
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Ingi Þór Vöggsson er eigandi BMW 850
sem nýlega var valinn bíll ársins af
meðlimum bílaklúbbsins BMW kraftur.
Ingi eignaðist bílinn árið 2002 en þá var bíll-
inn 10 ára gamall. „Ég ætlaði ekki að fá mér
svona bíl en þegar ég sá hann varð ég að
kaupa hann,“ segir Ingi. „Ég var heppinn og
fékk hann á 14 hundruð þúsund krónur en á
þessum tíma voru svona bílar á 3 til 4 millj-
ónir.“
Bíllinn var ekki í góðu ástandi og þurfti
Ingi að gera við ýmsa hluti. Önnur tölvan í
vélinni þarfnaðist viðgerða og rafmagns-
kerfið var illa laskað. „Þegar ég fékk hann
eyddi hann meira en 40 lítrum á hundraðið
áður en ég kippti öllu í lag,“ segir Ingi. Það
kostar víst sitt að reka 5 lítra, 12 strokka,
131 hestafla vél sé hún illa stillt.
Ingi er ekki mikill viðgerðamaður að
eigin sögn. „Þetta eru svo flóknar viðgerðir
að ég ræð ekki við þær. Ég skipti í mesta
lagi um kerti og olíu,“ segir Ingi og hlær.
„Ég ákvað hins vegar að taka bílinn algjör-
lega í gegn eftir ferðalag sem ég fór í um
Evrópu.“ Ingi fór þá með bílinn með Nor-
rænu og keyrði, ásamt félaga sínum, vítt og
breytt um Evrópu. Þegar hann var á heim-
leið í gegnum Þýskaland ofhitnaði bíllinn
skyndilega á miðri hraðbrautinni. „Hita-
mælirinn toppaði allt í einu og við stoppuð-
um á svona „rest-stoppi“ sem er alls staðar
við hraðbrautina. Það voru nokkrir kíló-
metrar í næstu bensínstöð svo við vorum í
vondum málum.“ Það bullsauð á bílnum og
þegar þeir athuguðu af hverju þetta hefði
gerst kom í ljós að smá stykki, spoiler-skófla
undir stuðaranum, hafði dottið af og því
fékk vélin ekkert loft inn á sig til kælingar.
„Við vorum á nokkur hundruð kílómetra
hraða þegar stykkið brotnaði og bíllinn
þoldi einfaldlega ekki álagið. Við skriðum
inn á næstu bensínstöð og keyptum bensli
og gátum bjargað þessu með því,“ segir
Ingi.
Ingi er eins og áður kom fram meðlimur
í bílaklúbbnum BMW kraftur. Þar er á ferð
félagsskapur eigenda BMW og áhugamanna
og eru meðlimir nokkur hundruð. Árlega
velja meðlimir klúbbsins bíl ársins og að
þessu sinni varð bíll Inga fyrir valinu.
„Þetta er skemmtilegur klúbbur og góður
félagsskapur,“ segir Ingi en hann hvetur
alla til að kynna sér starfsemina á www.
bmwkraftur.is.
BMW – bíll ársins
Bíllinn er með 12 ventla vél og skilar 313 hestöflum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Fræðsla um fugla og gróður
verður í Grasagarði Reykjavíkur í
Laugardal á sunnudaginn, klukk-
an 11. Steinar Björgvinsson,
garðyrkjufræðingur
og fuglaáhuga-
maður sér um
fræðsluna og
mun hann
ræða um
samspil
fugla, skordýra og gróðurs og
segja frá því hvernig hægt er að
laða fugla að görðum með réttu
plöntunum.
Lögreglan víða um land hefur
staðið fyrir sérstöku umferðar-
átaki að undanförnu og hafa
tugir ökumanna verið teknir
fyrir of hraðan akstur eða önnur
umferðarlagabrot. Vonandi
verður þetta til þess að enn fleiri
ökumenn hægi á sér.
Meðlimir í Netklúbbi Icelandair
geta nú tryggt sér flug til Mílanó
og Manchester á sérstöku
tilboðsverði. Í boði eru bæði
flugsæti og pakkaferðir. Ferðirnar
gefa allar vildarpunkta en um
takmarkað sætaframboð er að
ræða.
ALLT HITT
[BÍLAR, FERÐIR OG HEIMILI]
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.43 13.24 22.08
Akureyri 4.14 13.09 22.07
HYUNDAI SONATA
Reynsluakstur á Hyundai Sonata
leiðir í ljós að um góðan bíl
er að ræða sem gaman
er aka í bæ og
sveit.
BÍLAR. 2
SUMAR OG SÓL Í TÝRÓL
Týról er töfraorð í eyrum
þeirra sem til þekkja.
Heimsferðir bjóða
ferðir á þessar fallegu
slóðir í sumar.
FERÐIR 6
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
6. maí, 126. dagur ársins
2006.