Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 34
[ ] Hyundai Sonata er nú fáanleg- ur hér á landi með 2 lítra vél. Hér er mjög stór og rúmgóður bíll á ferð sem er frábært að aka. Hyundai kynnti til sögunnar fimmtu kynslóð Sonötu á síðasta ári, nýtt útlit og stærri bíl. Sá bíll hefur fengist með 2,40 lítra vél síðan á síðasta ári hér á landi en er nú fáanlegur með 2 lítra vél, jafn þungur og stór bíll. Þann bíl fékk Fréttablaðið til reynsluaksturs og til að gera langa sögu stutta þá var undirrituð afar hrifinn af bílnum sem reyndist mjög lipur í akstri innanbæjar þó stór væri en alveg frábær á þjóðveginum. Vélin skil- aði svo sannarlega sínu, var hljóð- lát, kraftmikil og bíllinn steinligg- ur á veginum. Ökuferð austur í sveitir leið á örskotstundu og und- irrituð hefði vel getað hugsað sér að halda áfram og taka allan hring- inn. En byrjum á byrjuninni. Hyundai Sonata hefur hefðbundið fólksbílsnið, svona eins og er á undanhaldi í dag en var eitt sinn ráðandi á götunum. Að útliti er bíllinn einfaldur og stílhreinn. Stærðin á honum gerir hann samt glæsilegri og veglegri en venju- legan fólksbíl. Bíllinn er mjög rúmgóður þegar inn er komið. Mjög vel fer um bílstjóra sem hefur mikið rými til að athafna sig. Bilið á milli bílstjóra og far- þega er mikið. Gott pláss er líka fyrir farþegana. Það er þó rétt að taka fram að bíllinn er ekki eigin- legur lúxusbíll, innréttingar eru einfaldar og sætin með tauáklæði − enginn leðurlúxus á ferð. Enda verðið hagstætt, beinskiptur kost- ar bíllinn rúmar 2 milljónir en sjálfskiptur tæpar 2,2 milljónir. Á það skal þó bent að Sonata fæst í lúxusútgáfu og kostar þá töluvert meira. Það er ekki mikið verð fyrir svona stóran og góðan akstursbíl. Því góður er hann í akstri eins og fram hefur komið. Hann er algjör draumur á venjulegum þjóðvega- akstri og hafði ekkert fyrir því að halda 100 km hraða í brekkum. Hann er líka hljóðlátur sem er mikill kostur á ferðalögum. Farangursrýmið er mjög stórt, 462 lítrar. Fyrir fjölskyldufólk með lítil börn eru venjuleg far- angursrými ekki endilega þau bestu fyrir vagna og annað barna- dót, þó stór séu. En plássið er gott fyrir venjulegan farangur og golf- settin komast auðveldlega mörg fyrir eins og undirritaðri var bent á. Þannig að fólk með stálpuð börn, uppkomin eða engin er kannski frekar í markhóp bílsins. Stærð bílsins getur auðvitað flækst fyrir þegar verið er að snú- ast í 101 þar sem bílastæði eru af skornum skammti, það segir sig sjálft. En stærðin gerir bílinn ótrúlega veglegan og góðan á vegi. Bíllinn eyðir ekki sérlega miklu, framleiðandi segir eyðsluna vera 8,9 l á hundraði í blönduðum akstri þegar um stærri bílinn er að ræða, þessi útgáfa er sparneytnari sem er auðvitað kostur. Hyundai Sonata er fyrirtaks- bíll, ekki sá íburðarmesti á mark- aðnum, en á góðu verði og fínn í akstri sem gerir hann að góðum kosti fyrir þá sem vilja fólksbíla í stærri kantinum. sigridur@frettabladid.is Spyrnukeppni á umferðargötum er eitt það vitlausasta sem hægt er að taka þátt í. Bílar eru töff, dauðir ökumenn ekki. Farangursrými er stórt. Góður bíll á góðu verði Hyundai Sonata er fyrirtaksbíll innanbæjar sem utan. Sportleg framljós. Ágætt rými er milli bílstjóra og farþega. Umhverfi bílstjóra er stílhreint og einfalt. Vél: 2000 Hestöfl: 145 Verð, beinskiptur. 2.040.000 sjálfskiptur 2.190.000 Eldsneytistankur: 70 lítrar Lengd: 4.800 mm. Breidd: 1.832 mm. Hæð: 1.475 mm. Farangursrými: 462 l Bíllinn er rennilegur á að líta. Opið virka daga 8-18 Gabriel höggdeyfar, AISIN kúplingssett, TRISCAN spindilkúlur, stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir. Tímareimar, ökuljós, stefnuljós ofl. Sætaáklæði, sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl. Kerruljós, bretti og nef- hjól á kerrur. Bílamottur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.