Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.05.2006, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 06.05.2006, Qupperneq 36
 6. maí 2006 LAUGARDAGUR4 SsangYong Kyron er nýr jeppi sem Bilabúð Benna frumsýnir í dag. Kyron er heiti á nýjum jeppa frá SsangYong sem Bílabúð Benna frumsýnir í dag. Um er að ræða stóran jeppa með túrbó díselvél, ættaða úr smiðju Mercedes Benz. Jeppinn er með stærri jeppum í þessum flokki, hann er 1880 mm á breidd 4660 mm á lengd. Hann er þess vegna eins og gefur að skilja mjög rúmgóður og farangursrými stórt, allt að 1222 lítrar. Vélin er fjögurra sílindra með tveggja lítra slagrými, hún er 141 hestafl við 4000 snúninga á mínútu. Hámarks- tog er 310 Nm. Tveggja lítra vél hljómar ekki sérlega sannfærandi í svo stórum bíl en blaðamaður getur staðfest eftir stuttan prufuakstur að togið í vélinni er gott, bíllinn er fljótur að ná góðum hraða þó viðbragðið sé ekkert meiriháttar. Hann er þægi- legur í stýri og virkaði lipur í prufutúrnum. Stærðin á vélinni gerir það að verkum að á hann leggjast lægri tollar en á jeppa með stærri vél, það skýrir hag- stætt verð. Fullbúinn kostar bíll- inn um 3,490.000 sjálfskiptur, beinskiptur 3.190.000 kr. Vélarstærðin gerir það að verk- um að bíllinn er sparneytnari fyrir vikið, tölur frá framleiðanda segja 8,4 l á 100 km í blönduðum akstri sem telst ekki mikið fyrir jeppa. Jeppinn er afgreiddur frá umboði með 31 tommu dekkjum en til þess að fá undir hann stærri dekk þarf að fara í breytingar á bílnum með tilheyrandi aðgerðum. Talsvert hefur verið lagt í hönn- un á bílnum, hann er hannaður af Kan Greenley, þeim er hannaði Musso-jeppann en Kyron er arf- taki hans hjá Ssang Yong. Rétti- lega er bent á af umboðinu að síðan Mussoinn koma á markað, 1993 hefur mikil tækniþróun átt sér stað í bílaiðnaðinum og ekki beinlínis hægt að bera þessa tvo bíla saman. Þeir eiga það þó sam- eiginlegt að vera með vél úr Mer- cedes Benz, millidrif frá Borg- Warner, burðarmikla stigagrind, stífa Dana-Spicer- afturhásingu og gormafjöðrun. Þess má geta að millikassinn í bílnum er gerður fyrir hlutadrif, í venjulegum akstri er drifið ein- ungis á afturhjólum. Fjórhjóla- drifið er valið með hnappi í mæla- borði og hægt að velja það á fullri ferð, lága drifð er einnig valið með hnappi. Sjálfvirkar rennilokur í nöfum framhjólanna tengja fram- hjólin öxlunum þegar fjórhjóla- drifið er valið. Bíllinn er ríkulega búinn, meðal staðalbúnaðar er sjálfvirkur hraða- stillir, kælikerfi, upphitun í fram- stólum og fleira. sigridur@frettabladid.is Kyron frumsýndur í dag SsangYong Kyron-jeppinn verður frumsýndur í Bílabúð Benna í dag milli klukkan 12 og 16. Verð sjálfskiptur 3.490.000 kr. Beinskiptur 3.190.000 kr. Lengd 4660 mm. Breidd 1880 mm. Hæð 1740 mm. Slagrými, sm2 2000. Hámarksafl,hö/sn/mn 141/4000. Hámarkstog Nm/sn/mn 310/1800-2750. Hámarkshraði 167 km. Snerpa 0-100 km 13,9 sek. Hlutskarpastur hjá dómnefnd, sem lagði mat á 20 atriði. BMW 3 línan hefur verið kjörin World Car of the Year eða alheims- bíll ársins 2006. Í ár voru 27 bílar tilnefndir til þessara eftirsóttu verðlauna og keppnin því afar hörð. Í öðru og þriðja sæti urðu Mazda MX-5 og Porsche Cayman S. Sigurvegarinn er valinn af dómnefnd 46 bílablaðamanna. Hver einstakur bíll er metinn með hliðsjón af 20 viðmiðum, þar á meðal hönnun, frammistöðu, svör- un, þægindum og notagildi. Í nið- urstöðu dómnefndarinnar segir meðal annars að 3 línan hafi, sem ótrúlega heilsteyptur og sportlegur bíll, hinn sanna anda BMW, líkt og hún hefur gert um þriggja ára- tuga skeið. Hönnun línunnar er enn frem- ur sögð endurspegla sjaldséð jafn- vægi á milli frammistöðu og stíls annars vegar og notagildis hins vegar. Þá sé hún fáanleg í mörgum mismunandi útgáfum, þar á meðal með xDrive-aldrifinu, í M-útgáfu, sem langbakur eða með öflugum dísilvélum. Fjölbreytnin í útgáf- unum sýni þann mikla styrk sem grunnhönnunin búi yfir. BMW 3 línan alheimsbíll ársins Mazda MX-5 og Porsche Cayman S urðu að láta sér lynda að deila öðru og þriðja sæti. Hinn „sanni andi BMW“ kom 3 línunni í fyrsta sæti hjá dómnefnd 46 bílablaðamanna. Nýjar Ford S-MAX og Ford Galaxy bifreiðar stóðust fyrir skömmu ströngustu kröfur sem þýsku TÜV samtökin gera við ofnæmispróf- anir á innréttingum bifreiða. Engum öðrum bílaframleiðanda hefur tekist að framleiða bíla sem uppfylla ströngustu skilyrði TÜV. Áður hafa Ford Focus og Ford Focus C-MAX náð þessum árangri. Við rannsóknir sínar prófar TÜV yfir 100 mismunandi hluta innréttinga bílanna í leit að þekkt- um ofnæmisvöldum. Auk þess eru rannsakaðir sérstaklega innviðir sem eru í stöðugri snertingu við húð ökumanns eða farþega, til dæmis stýri og sætisbelti. Jafn- framt er andrúmsloft bifreiðanna mælt ítarlega og rannsakað með tilliti til ofnæmisvalda. Ofnæmissamtök Bretlands hafa jafnframt veitt Ford S-MAX, Galaxy, Focus og C-MAX sérstaka viðurkenningu fyrir hönnun sem tekur tillit til þeirra sem eiga við ofnæmi að stríða. Ofnæmisvott- aðir Ford Fjórir bílar lausir við ofnæm- isvalda. Ford Galaxy er ekki bara notadrjúgur, held- ur líka ofnæmisprófaður. FRÉTTABLAÐIÐ/EÓL �������������������������������� ���������������������������������� ������������������ � ������������� ���������������������� ��������������������������� Jeppadekk Vagnhöfða 6 • 110 Reykjavík • Sími 577 3080 Vortilboð! 31" heilsársdekk kr. 11.900 (31x10.50R15) Aðrar stærðir: 27" 215/75R15, kr. 7.900 28" 235/75R15, kr. 8.900 30" 245/75R16, kr. 10.900 32" 265/75R16, kr. 12.900 Sendum frítt um allt land! Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.