Fréttablaðið - 06.05.2006, Síða 37
LAUGARDAGUR 6. maí 2006 5
Raftar, vélhjólafélag Borgarfjarð-
ar, stendur fyrir mikilli vélhjóla-
sýningu í Íþróttahúsinu í Borgar-
nesi í dag. Þetta er í fjórða sinn
sem Raftar halda sýningu af þessu
tagi og til sýnis verða um 70 hjól.
Auk þess er von á 150 hjólum
öðrum sem verður lagt til sýnis
fyrir utan húsið.
Sýningar Rafta hafa verið feiki-
vinælar og laðað að á milli tvö og
þrjúþúsund gesti. Á sýningunni
eru allar gerðir vélhjóla og má þar
finna torfæruhjól, „hippa“, „krús-
era“ og keppnishjól. Einnig verða
á svæðinu fjórhjól og mótorhjól
með hliðarvagni.
Sýningin stendur frá kl. 13 til
17 í dag og aðgangur er ókeypis.
Vélhjól í
Borgarnesi
Frítt er inn á Vélhjólasýningu
Rafta í dag.
Á vélhjólasýningu Rafta er að finna allar
gerðir af mótorhjólum.
Fyrir skemmstu var opnaður nýr Porsche-
vefur á slóðinni www.porsche.is. Í
fréttatilkyningu kemur fram að mikið hafi
vantað upp á upplýsingar um Porsche-
bifreiðar hérlendis en nú hafi verið bætt
úr því. Stefnt er að því að bjóða upp á
nýtt og ferskt efni en það er starfsfólk
Bílabúðar Benna sem heldur vefnum úti.
Nýr Porsche-vefur
NÝTT OG FERSKT EFNI Í BLAND VIÐ
ELDRI UPPLÝSINGAR.
Sérsmíðaður fyrir Brimborg og
verður til sýnis næstu mánuði.
Ford GT, ein mesta goðsögn bíla-
sögunnar, kemur til Brimborgar
í þessum mánuði. Ford Motor
Company hefur tryggt Brimborg
eintak af þessum magnaða bíl og
verður hann til sýnis hjá Brim-
borg við Bíldshöfða næstu mán-
uði.
Bíllinn gæti ekki verið nýrri.
Hann var framleiddur nú í apríl
og sérsmíðaður fyrir Brimborg.
Þetta ótrúlega eintak kostar yfir
tuttugu milljónir króna, enda er
ekkert til sparað. Brimborg sér-
pantaði bílinn með öllum þeim
aukabúnaði sem fáanlegur er.
Ford GT er 550 hestöfl, bein-
skiptur 6 gíra og tekur það hann
aðeins 3,6 sekúndur að ná 100 km
hraða.
Ford GT er magnað dæmi um
þá djörfung sem Ford hefur lagt
í gerð sportbíla í gegnum tíðina
og ljóst að þetta eintak mun
auðga íslenskan sportbílamark-
að. Jafnframt er þetta hvalreki
fyrir íslenska bílaáhugamenn,
sem geta á næstu mánuðum virt
fyrir sér hluta af bílasögunni í
sýningarsal Brimborgar við
Bíldshöfða.
Ford GT á leið til Brimborgar
Fallegur og rennilegur. Ford GT er væntan-
legur til Brimborgar í þessum mánuði.
Ökumenn sem eru ósofnir og dauð-
þreyttir undir stýri eru jafn hættu-
legir eða jafnvel hættulegri sjálfum
sér ög öðrum í umferðinni en ölvað-
ir ökumenn. Rannsókn sem vísinda-
maður við Háskólann í Umeå í
Svíþjóð hefur gert bendir til þessa.
Vísindamaðurinn rannsakaði
áhrif ýmissa þátta á vinnu og
afkastagetu fólks. Hann segir við
Aftonbladet í Svíþjóð að ökumenn
sem aki þjáðir af þreytu og svefn-
leysi séu stórhættulegir. Hann
bendir því til staðfestingar á að evr-
ópskar slysarannsóknir sýni að
þreyta og svefnleysi ökumanna séu
stór þáttur í fimmta hverju umferð-
arslysi. Hans eigin rannsókn sýni
að þreyttir og svefnvana ökumenn
getir verið háskalegri í umferðinni
en ölvaðir ökumenn. Viðbrögð öku-
manns sem sé illa sofinn eða ósof-
inn séu sambærileg viðbrögðum
manns með 0,8 prómill áfengis í
blóðinu. (Af www.fib.is)
Þreyta er
hættuleg
Svefnleysi er jafnvel verra í
umferðinni en ölvun.
Eftir einn ei aki neinn. Nema um sé að
ræða góðan lúr. LJÓSMYND/GETTY IMAGES
nýtt }