Fréttablaðið - 06.05.2006, Síða 44
2
„Fólki getur komið með teikningar
af eigin húsnæði í verslunina til
okkar,“ segir Signý Guðbjartsdótt-
ir, verslunarstjóri Bo Concept hjá
Innx. „Við notum sniðugt forrit sem
við erum með til að koma með til-
lögur að húsgögnum sem passa inn
á heimilið. Það er mjög fullkomið,
þar sem í því er meðal annars hægt
að teikna upp heimili viðkomandi
aðila, setja húsgögn frá okkur inn á
myndina og reikna út hver kostnað-
urinn yrði í íslenskum krónum.“
„Svo er líka hægt að nálgast
forritið gjaldfrjálst af heimasíðunni
boconcept.com. Fólk getur því verið
búið að vinna ákveðna forvinnu
áður en það kemur til okkar. Það
er boðið upp á svipaða þjónustu í
hönnun eldhúsinnréttinga, en ég
veit ekki til þess að það þekkist
hjá húsgagnaverslunum hérlendis,“
bætir Signý við.
„Hugsunin sem liggur að baki
forritinu er sú að finna út hand-
hægar lausnir handa viðskiptavin-
um okkar, sem eru oft með mjög
ólíkar þarfir,“ bendir Signý á. „Það
hjálpar til að hvert húsgagn hjá
okkur hefur ótal útfærslumöguleika.
Í einum sófa leynast til dæmis ótal
möguleikar, það er hægt að fá hann
tveggja eða þriggja sæta, með mis-
munandi áklæði, fótum og með eða
án arma. Viðskiptavinurinn hefur
því ótrúlegt frelsi til að hanna hús-
gögn að eigin vali. Verslunarhús-
næðið okkar þyrfti að vera margfalt
stærra, ef við vildum sýna alla þá
möguleika sem eru fyrir hendi hjá
okkur í þessum einingahúsgögn-
um“, segir hún loks og hvetur alla
til að kynna sér þessa þjónustu.
Endalausir möguleikar
Innx innréttingar, að Faxafeni 8, eru með sniðuga lausn í húsgagnahönnun.
Samstæða fáanleg í mörgum viðartegund-
um. Sjónvarpsskápurinn kostar 67.333 kr.
og fæst með öðruvísi skúffum. Viðarplatan
sem flatskjárinn hangir á kostar 23.579
með festingum. Skápurinn til vinstri er á
33.500 kr. og spónlögðu vegghillurnar á
8.999 kr. stykkið, en þær þola 15 kg.
Hér sést kringlótt glerborð með snúningsdiski undir meðlæti, sem kostar 77.567 kr.
Disknum má líka snúa á hvolf, þannig að velja má um viðarhlið eða hitaþolna álhlið. Brúnu
leðurstólarinr eru á 30.000 kr. stykkið og eru til í fleiri gerðum.
Á þessari mynd sést Signý lengja borð, sem hefur hitaþolna álplötu í miðjunni. Borðið sem kostar 77.900 kr. stendur á miðjufæti, þannig
að fólk getur setið þétt upp við borðið og síður hætta á að reka tærnar í. Stólarnir á myndinni kosta 12.900 kr. stykkið og eru einnig til í
brúnu og svörtu.
Hvíti stóllinn á myndinni kostar 119.000 kr. og fæst líka án arma, með mismunandi fætur
og hægt að velja milli margra áklæðagerða. Hann er stillanlegur og má nota sem ruggu-
stól. Stállitaða einingin er á 103.000 kr., viðarskápurinn undir henni á 67.633 kr., standandi
viðarskápurinn kostar 53.000 kr. og veggskápurinn er á 79.962 kr.
Grár sófi sem má útfæra á ýmsa
vegu og kostar 174.000 kr. Hann
getur verið tveggja til þriggja sæta.
Hægt er að velja um mismun-
andi fætur, arma og 60 tegundir
áklæða á sófann. Svarta sófaborð-
ið á myndinni er á 20.000 kr.
■■■■ { hús & heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
7,6 M
157,5 m2Hús & Tæki ehf
SKOGHEIM
Verð á
byggingarsettum
6,4 M
90 m2 + 23 m2 svefnl.
33 m2 sólpallur
BERGLI
Hin vönduðu og vinsælu Norsku hús.
Íbúðarhús - Heilsárshús. Margar gerðir. Gott verð!!!
www.hthus.is S - 540 9600 / 896 1081 Hjörtur / 863 6062 Þorkell
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga,
hurða, sólstofa og svalalokanna úr
PVC-u
Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir
10 ára ábyrgð
Gluggarnir eru viðhaldsfríir og á
sambærilegum verðum og gluggar
sem stöðugt þarfnast viðhalds
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR …
• ENGIN MÁLNINGAVINNA
• HVORKI FÚI NÉ RYÐ
• FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN
• FALLEGT ÚTLIT
• MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR
• ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING
Það lifnar ekki bara yfir mannfólk-
inu á sumrin, heldur skordýrunum
líka. Ekki eru allir jafn ánægðir
með það, enda leita skordýr gjarn-
an inn í híbýli manna. Húsflugan
er eitt þeirra kvikinda sem það
gera og margir telja til meindýra,
enda sýna rannsóknir að þar er á
ferð einn helsti
sýklaberi sem
til er. Vilja
sumir því gera
allt sem í þeirra
valdi stendur til
þess að halda
þessum óboðna
gesti í skefjum.
Þar sem húsflugan er lífseigt kvik-
indi, er langbest að kalla til mein-
dýraeyði sem eitrar fyrir henni.
Það er gert með því að bera eitur
á þá staði sem hún sækir mest í,
svo sem glugga, gluggakarma og
ljós. Það ætti að tryggja að heim-
ilismenn verði ekki eins varir við
Varnir gegn óboðnum gestum
Húsflugan birtist á
frímerki árið 2005.
Ekki finnst öllum
hún eiga þann virð-
ingarsess skilinn og
vilja sem minnst af
henni vita.
FRETTABLADID/LJÓSM:
©ÍSLANDSPÓSTUR
...af þessari fallegu bókahillu eftir
danska húsgagnahönnuðinn
Bruno Mathsson. Mathsson
var hvað afkastamestur
í hönnun sinni á fjórða og
fimmta áratugnum og þótt húsgögn-
in séu klassísk er enn eitthvað nýtt
og ferskt við þau. Einfaldleikinn er
í fyrirrúmi og formið fær að njóta
sín. Bókahilluna hannaði Mathsson árið
1941 en hún gæti allt eins verið glæný.
við fáum ekki nóg...