Fréttablaðið - 06.05.2006, Page 76
6. maí 2006 LAUGARDAGUR44
Það er sannkallað stórmynda-sumar framundan í kvik-myndahúsum og venju sam-
kvæmt munu nokkrar stórmyndir
takast á um hylli áhorfenda. Auk
The Da Vinci Code mun líklega
bera mest á Mission: Impossible
III, Superman, Pirates of the
Caribbean: Dead Man‘s Chest og
X-Men: The Last Stand, þriðju
myndinni um stökkbreyttu mynda-
söguhetjurnar sem berjast fyrir
tilverurétti sínum í fordómafull-
um heimi.
Superman þekkja auðvitað allir
og X-Men, Mission: Impossible og
Pirates of the Caribbean eiga sér
allar forvera sem hafa gert storm-
mandi lukku í miðasölunni á liðn-
um árum. Þá spillir ekki fyrir að
allar skarta þær stórstjörnum sem
er lagið að draga fólk í bíó og
nægir þar að nefna Tom Cruise,
Johnny Depp, Orlando Bloom,
Keiru Knightley, Hugh Jackman
og Halle Berry.
Almættið eitt getur stöðvað Da
Vinci
Aðstandendur Da Vinci Code eru
þó hvergi bangnir og óttast síður
en svo samkeppnina við þessar
kanónur. „Ég myndi ekki vilja
frumsýna eina einustu mynd um
svipað leyti og Da Vinci Code,“
sagði Amy Pascal, stjórnandi hjá
Sony sem dreifir myndinni, í sam-
tali við Newsweek á dögunum.
Hún hefur fulla ástæðu til þess að
vera kokhraust enda þarf sjálf-
sagt ekkert minna en guðlega
íhlutun til þess að stöðva sigur-
göngu Da Vinci lykilsins. Skáld-
sagan hefur selst í um 60 milljón
eintökum úti um allan heim og
deilurnar um hana hafa hvarvetna
vakið athygli og orðið til þess að
vekja enn frekari áhuga á skáld-
verkinu og nú kvikmyndinni.
Þá fengu eigendur kvikmynda-
réttarins leikstjórann Ron How-
ard til þess að koma bókinni á
hvíta tjaldið en sá kann upp á sína
tíu fingur að gera stórsmelli og
nægir í því sambandi að nefna
A Beautiful Mind, Ransom,
Apollo 13 og Far and
Away.
Ekki spillir svo
fyrir að sjálfur
Tom Hanks fer
með aðalhlut-
verkið en hann
nýtur gríðar-
legrar lýðhylli
og er jafnvel
gæddur enn
meiri miðasölu-
þokka en nafni
hans Cruise.
Sagan sem allir
þekkja
Það þarf líklega ekki
að fara mörgum
orðum um sögu-
þráð Da Vinci
lykilsins. Íslensk
þýðing bókar-
innar hefur selst í um það bil 20
þúsund eintökum og hún hefur
verið áberandi í umræðunni hér
heima undanfarin misseri.
Myndin hefst rétt eins og bókin
á því að roskinn safnstjóri Louvre-
safnsins í París finnst myrtur í
einum sýningarsala safnsins. Allt
umhverfis líkið leynast torræð
tákn og skilaboð sem verða til þess
að bandaríski táknfræðingurinn
Robert Langdon blandast í málið.
Langdon er býsna glöggur og með
aðstoð dóttur hins myrta, dulmáls-
sérfræðingsins Sophie Neveu,
kemst hann á snoðir um stórfeng-
legt samsæri dularfullra leynifé-
laga um að leyna ættarsögu Jesú
Krists. Verk Leonardos Da Vinci
eru lykilatriði í fléttunni en hann
virðist hafa verið meðlimur í sam-
tökum sem bjuggu yfir vitneskju
um að Kristur hefði ekki dáið á
krossinum, heldur gengið að eiga
Maríu Magdalenu og getið með
henni börn og eigi því afkomendur
sem fara huldu höfði.
Þetta viðkvæma leyndarmál er
vitaskuld til þess fallið að koll-
varpa öllum viðteknum hugmynd-
um um kristindóminn og um leið
kippa stoðunum undan burðarbit-
um vestrænnar siðmenningar.
Útsendurum kaþólsku kirkjunnar
er því mikið í mun að halda þessu
leyndu og þeir gera munkinn Silas
út af örkinni með þau fyrirmæli
að koma öllum þeim fyrir kattar-
nef sem gætu mögulega komist að
sannleikanum.
Vísbendingarnar varpa að vísu
illu heilli grun á Langdon sem fær
lítinn frið til þess að ráða í tákn Da
Vinci þar sem hann er hundeltur
bæði af lögreglunni og Silasi.
Vanir menn, vönduð vinna
Ron Howard hefur í gegnum tíð-
ina unnið náið með framleiðand-
anum Brian Grazer og þeir félag-
ar hafa áður unnið með Tom Hanks
með góðum árangri en leiðir þrem-
menninganna lágu fyrst saman
árið 1984 þegar þeir gerðu gaman-
myndina Splash!.
Flest sem Grazier kemur
nálægt verður að gulli en hann er
einn framleiðenda sjónvarpsþátt-
anna 24 og Arrested Development.
Hann reyndi að eignast kvik-
myndaréttinn á
Da Vinci Code
og hafði hugs-
að sér að
leggja söguna
til grundvall-
ar þriðju
þáttaröð-
inni af 24.
Grazer
Da Vinci lykillinn
að velgengni
Kvikmyndin The Da Vinci Code verður frumsýnd um víða veröld hinn 19.
maí. Myndin byggir á einni vinsælustu og umdeildustu skáldsögu síðustu
ára og blandast fáum hugur um að hún muni mala aðstandendum sínum
gull. Þórarinn Þórarinsson og Bergsteinn Sigurðsson skyggndust bak við leik-
tjöld Da Vincis.
ROBERT LANGDON OG SOPHIE NEVEU Það renna tvær grímur á þetta ólíklega par þegar þau komast að því að kirkjunnar menn hafa í
2.000 ár haldið því leyndu að Jesús eignaðist börn og buru með Maríu Magdalenu.
Tom Hanks
leikur Robert
Langdon
Langdon er virðu-
legur fræðimaður
sem er í skáldsög-
unni sagður minna
á Harrison Ford í
tweed-jakka. Hann
er prófessor í trúar-
legri táknfræði við Harvard háskóla en
lendir í bráðri lífshættu þegar hann leitar
sannleikans um Krist.
Hanks hefur áður unnið undir stjórn
Rons Howard, í Splash! frá 1984 og
Apollo 13 árið 1995.
Audrey Tautou
leikur Sophie
Neveu
Aðlaðandi sérfræð-
ingur hjá dulmáls-
deild rannsóknar-
lögreglunnar í París.
Hún heillar Langdon
með ólífugrænum
augum sínum og
þau snúa bökum saman eftir að faðir
hennar, safnvörðurinn í Louvre, finnst
myrtur.
Tautou heillaði áhorfendur upp úr
skónum í myndinni Amalie og gerði það
einnig gott í A Very Long Engagement.
Jean Reno
leikur Bezu
Fache
Guðrækinn en harð-
snúinn lögreglufull-
trúi sem rannsakar
morðið safnverðin-
um. Trú hans er svo
sterk að Guð á það
til að hvísla í eyra
hans. Reno er þekktastur fyrir leik sinn
í Luc Besson-myndunum La Femme
Nikita og Leon.
Ian McKellen
leikur Sir Leigh
Teabing
Vellauðugur breskur
sagnfræðingur sem
hefur sérhæft sig í
hinu heilaga grali og
býr yfir mikilvægum
upplýsingum sem
gætu gagnast góð-
kunningja hans, Langdon.
McKellen er leikari í sérflokki sem
hefur komið við sögu í vinsælum mynd-
um á borð við X-Men og Lord of the
Rings-þríleiknum þar sem hann fór á
kostum í hlutverki Gandálfs.
Paul Bettany
leikur Silas
Albínóamunkurinn
sem drepur í nafni
Guðs fyrir Opus
Dei. Honum er lýst
sem „draugi með
augu djöfulsins“ í
bók Browns. Silas
er þjakaður á sálinni
og refsar sér ítrekað með hnútasvipunni
sinni. Einkunnarorð hans eru „sársauki
er góður“.
Bettany er rísandi stjarna sem gerði
það gott með Russell Crowe í A Beauti-
ful Mind og Master and Commander.
Þá gerir hann Harrison Ford lífið leitt í
Firewall.
PERSÓNUR OG
LEIKENDUR
MORÐINGINN SILAS Mein-
lætamunkurinn og albínóinn
Silas hikar ekki við að drepa
í Guðs nafni á milli þess sem
hann beitir hnútasvipunni á
sjálfan sig.
Jerusalem
Vatican
Rennes-le-
Ch‰teau
Paris
London
Rosslyn
Chapel 310 miles
500km
Jerusalem
Vatican
Rennes-le-
Ch‰teau
Paris
London
Rosslyn
Chapel 310 miles
500km
Jerusalem
Vatican
Rennes-le-
Ch‰teau
Paris
London
Rosslyn
Chapel 310 miles
500km
Opus Dei:
Kaþólskt
trúfélag sem
spænski
presturinn
Josemaría
Escrivá de
Balaguer
stofnaði
árið 1928.
Markmið regl-
unnar var að stuðla að því að fólk
væri nær guði í daglegu lífi, þjónaði
öðrum og léti gott af sér leiða.
Opus Dei, sem er latína og þýðir
Guðs verk, telur um 85 þúsund
félaga af báðum kynjum í 61 landi.
Um 98 prósent eru leikmenn, flest-
ir í hjónabandi, en afgangurinn er
prestar.
Í Da Vinci lyklinum eru félag-
ar í Opus Dei látnir leggja stund á
sjálfspyndingar með því að binda
gaddaól um ofanvert læri sitt og
hýða sjálfa sig með hnútasvipu.
Escrivá lést árið 1975 en Jóhann-
es Páll II páfi tók hann í
dýrlingatölu árið 2002.
Hið heilaga gral: Í
kristinni dulspeki er hið
heilaga gral diskur eða bolli
sem Jesús Kristur notaði við
síðustu kvöldmáltíðina.
Í mörgum sögum segir að
þegar Kristur hékk á kross-
inum hafi Jósef frá Aríma-
þeu látið blóð hans drjúpa
í gralið. Hann hafi svo farið
með það til Bretlandseyja
og stofnað þar riddarareglu
sem skyldi gæta gralsins.
Musterisriddarar: Regla stofnuð
í kjölfar fyrstu krossferðarinnar
1096. Upphaflegu bækistöðvarnar
voru í einu musteranna helgu í
Jerúsalem. Með tíð og tíma fjölgaði
félögum í reglunni og auður þeirra
og völd fóru vaxandi. Áður en yfir
lauk urðu Musterisriddarar helstu
bankamenn Evrópu. Árið 1328 var
reglan leyst upp með
valdi eftir að það
kastaðist í kekki milli
hennar og Filipusar
IV Englandskon-
ungs, en Robert af
Bruce veitti þeim hæli í
Skotlandi. Samkvæmt þjóðsögunni
fundu riddarar reglunnar hið heilaga
gral í einu af musterunum helgu í
Jerúsalem.
Bræðralag Síons:
Félagasamtök stofnuð
í Frakklandi árið 1956
af Pierre Plantard (til
hægri) og André Bon-
homme. Ári síðar voru
samtökin leyst upp.
Séra Bérenger
Sauniere: Þótt hann
komi ekki við sögu í Da
Vinci lyklinum fær Dan
Brown ættarnafn hans
lánað í bókina. Sauniere
var skipaður sóknarprest-
ur í franska smáþorpinu
Rénnes-le-Chateu árið
1885. Þótt hann hafi verið
fátækur varði hann háum fjárhæðum
í að endurbæta kirkjuna í þorpinu og
reisti Magdalenuturninn svonefnda.
Eftir að hann lést árið 1917 komust
ýmsar sögur á kreik um hvernig hann
hefði fjármagnað endurbæturnar og
voru fjársjóðir Musterisriddaranna
meðal annars nefndir í því sambandi.
Gabb Plantards: Á 7. áratug
síðustu aldar kom Pierre Plantard
fyrir fölsuð-
um skjölum í
Landsbóka-
safni Frakk-
lands í París.
Skjölin ganga
undir nafninu
Les Dossiers
leyndarmál-
in og í þeim
má finna nöfn ýmissa manna sem
áttu að hafa verið félagar í Bræðra-
lagi Síons. Þeirra á meðal voru Sir
Isaac Newton, Viktor Hugo, Botti-
celli og Leonardo Da Vinci.
Plantard hélt því líka fram að
hann væri kominn af konungsætt
Mervíkinga og sagði að Bérenger
Saunier hefði fundið forn skjöl sem
sönnuðu fulllyrðingar sínar.
Sagan var síðar skreytt með stað-
hæfingum þess efnis að Jesús Krist-
ur hefði kvænst Maríu Magdalenu
og átt með henni barn. Samkvæmt
sögunni leituðu María og barnið
skjóls í Gallíu, þar sem niðjar Krists
giftust að lokum inn í konungsætt
Mervíkinga.
DVL – STAÐREYNDIR OG VILLUR
FRÉTTABLAÐIÐ/AP - GRAPHIC NEWS