Fréttablaðið - 06.05.2006, Side 88
56 6. maí 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
3 4 5 6 7 8 9
Laugardagur
■ ■ SJÓNVARP
11.50 Formúla 1 á Rúv. Bein
útsending frá tímatöku í Þýskalandi.
15.50 NBA á Sýn.
16.05 Deildarbikarinn í hand-
bolta á Rúv.
17.50 Spænski boltinn á Sýn.
19.50 NBA á Sýn.
00.00 Box á Sýn. Oscar de la Hoya
gegn Bernard Hopkins í beinni.
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson á eitt
ár eftir af samningi sínum við Ciu-
dad Real og hann hefur tekið þá
ákvörðun að vera áfram í herbúð-
um liðsins. Samningaviðræðurnar
tóku ekki langan tíma og aðeins er
spurning hvort hann lengi samn-
inginn um eitt eða tvö ár.
“Við Talant Dujshebaev þjálf-
ari vorum að labba saman upp
tröppurnar eftir æfingu og hann
spyr mig út í samningamálin. Ég
held við höfum verið búnir að ná
samkomulagi tíu sekúndum síðar.
Það er eiginlega mér að kenna að
ekki er búið að skrifa undir því ég
hef ekki gefið mér tíma til þess.
Ég mun fara í það fljótlega eða um
leið og ég get gefið mér tíma til
þess. Stefnan í dag er sú að spila
þrjú ár á fullu áður en ég hætti,”
sagði Ólafur sem hefði getað feng-
ið sig lausan frá Ciudad síðasta
sumar og líka í sumar ef hann
vildi.
Ólafur er ekki að flækja hlutina
mikið þegar kemur að samninga-
málunum og verður seint talinn
glerharður samningamaður. Hann
játar það fúslega að hann sé eng-
inn nagli þegar kemur að samn-
ingamálum. “Ef maður hefur það
fínt þá er maður ekkert að stressa
sig á einhverjum smáhlutum.
Stóru hlutirnir skipta máli en ekki
hvort maður fái aukaristavél eða
ekki. Ég hef alltaf verið þannig og
er í raun dapur samningamaður
miðað við marga aðra. Fyrir mér
skiptir mestu að vera í rétta liðinu
og með rétta þjálfarann. Ég tel
mig vera á réttum stað.”
Lengi vel var sterkur orðrómur
í gangi þess efnis að hann væri á
leið til Gummersbach þar sem
hans gamli lærimeistari, Alfreð
Gíslason, tekur við stjórnartaum-
unum sumarið 2007 en nú er talað
um að hann taki við strax í sumar.
“Þessi orðrómur átti vissulega
við rök að styðjast og í raun gæti
ég farið þangað í dag ef ég vildi
þar sem ég er ekki búinn að skrifa
undir nýja samninginn hjá Ciu-
dad. Það var búið að vera lokað á
Gummersbach lengi fyrir mig en
svo opnaðist glugginn aftur. Ég
var fljótur að loka honum á ný þar
sem ég er mjög sáttur hér á Spáni
í dag og bjartsýnn á framtíðina.
Alfreð er búinn að spjalla aðeins
við mig en hann getur gleymt því
að fá mig því ég er glerharður á að
vera hér áfram,,” sagði Ólafur en
hann telur Gummersbach hafa
gert mikil mistök með því að láta
Kóreumanninn Yoon fara en Grik-
kjanum Alvanos er ætlað að fylla
hans skarð.
Ítarlegt viðtal við Ólaf Stefáns-
son verður birt í Fréttablaðinu á
morgun. henry@frettabladid.is
Náði samkomulagi um nýjan
samning á tíu sekúndum
Ólafur Stefánsson segist ákveðinn í því að enda ferilinn með Ciudad Real en
formsatriði er að ganga frá nýjum samningi. Ólafur segir að dyrnar standi opn-
ar hjá Gummersbach og hann geti hæglega farið þangað í dag ef hann vilji.
SÁTTUR Í CIUDAD Ólafur Stefánsson er mjög ánægður með lífið og tilveruna hjá Ciudad
Real. Hann mun að öllum líkindum ljúka ferli sínum hjá félaginu. Hann hefur ekki áhuga á
að spila með Gummersbach þó dyrnar standi opnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Örn Arnarson, sundkappi úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar, fór í sína aðra hjarta-
aðgerð í fyrradag. Hjartatruflanir hafa
plagað Örn í heil sjö ár og sér ekki fyrir
endann á vandamálinu.
Örn var kominn heim í algjöra afslöpp-
un þegar Fréttablaðið náði tali af
honum í gær. „Þetta hefði getað heppn-
ast betur. Rásin sem þeir brenndu fyrir
í aðgerðinni í nóvember var í fullkomnu
lagi, annað en læknarnir héldu. Það var
líklegast að hún hefði byrjað að leka
aftur en svo var ekki og því er enn verið
að skoða hvað það er sem hefur verið
að valda þessum truflunum,“ sagði Örn.
„Það hefur enginn hugmynd um hvað
þetta er sem er alls ekki þægilegt, að
vita ekki hvað amar að, en það er lítið
að gera annað en að bíða,“ sagði Örn
sem ætlar að hefja æfingar strax á
nýjan leik eftir helgi.
„Þetta hefur valdið mér miklum
óþægindum undanfarið auk þess
sem manni stendur ekki á sama
þegar eitthvað amar að hjartanu.
Þetta hefur aldrei háð mér neitt af
viti, ekki fyrr en ég var keyrður
með sjúkrabíl upp á spítala,“
sagði Örn.
„Þetta háir mér ekkert
dagsdaglega en það gerir
það við áreynslu. Það er
erfitt að útskýra hvað gerist
en þessi óreglulegi hjart-
sláttur veldur óþægindum
og hjartað tekur aukakippi,“
sagði Örn en það hvarflaði
aldrei að honum að hætta að
synda.
„Ég hugsaði aldrei um að hætta,
enda er það algjör óþarfi. Ég
hætti ekkert að synda fyrr en
ég fæ nóg, og þá verður það
á mínum forsendum. Ég gefst
ekkert upp fyrir einhverri
svona vitleysu,“ sagði
Örn sem býst við að
æfa mikið í sumar.
„Ég verð á ferð og
flugi um Evrópu,
bæði að æfa og
keppa. Ég verð
lítið á Íslandi og
ferðast meira
en undanfarin ár,“
sagði Örn Arnarson,
brattur að lokum.
SUNDKAPPINN ÖRN ARNARSON ÚR SH: FÓR Í HJARTAAÐGERÐ SEM HEPPNAÐIST EKKI NÓGU VEL
Læt ekki svona vitleysu stoppa mig
HANDBOLTI Atli Hilmarsson hefur
látið af þjálfun karlaliðs FH en
undir hans stjórn mistókst liðinu
að tryggja sér sæti í úrvalsdeild-
inni sem var félaginu mikil von-
brigði.
Fram kemur í yfirlýsingu frá
FH að Atli skilji í góðu við félagið
og að enginn ágreiningur hafi
verið milli hans og stjórnar félags-
ins. - hbg
Atli Hilmarsson:
Hættur að
þjálfa FH
HANDBOLTI Þýskir netmiðlar
greindu frá því í gær að Pólverj-
inn Bogdan Wenta myndi taka við
Magdeburg í sumar. Wenta er
landsliðsþjálfari Póllands og
aðstoðarþjálfari Flensburg en for-
ráðamenn Flensburg voru ekki
par hrifnir af því að hann færi frá
félaginu og því hefur það tekið
Wenta langan tíma að fá sig
lausan.
Með Wenta frá Flensburg
kemur landi hans Marcin Lijew-
ski og því verða fjölmargir Pól-
verjar hjá Magdeburg næsta
vetur. - hbg
Handboltalið Magdeburg:
Ræður Wenta
sem þjálfara
EKKI ÞETTA RÖFL Guðjón Valur Sigurðsson
segir hér Bogdan Wenta til syndanna í
landsleik Íslands og Póllands í Höllinni.
HANDBOLTI Framarinn Sverrir
Björnsson mun að öllum líkindum
ganga frá málum sínum við þýska
stórliðið Gummersbach í næstu
viku. Liðin eru nú að ræða um
kaupverðið sem ætti að klárast nú
um helgina, eitthvað sem Sverrir
býst fastlega ráð fyrir að gangi
hratt fyrir sig.
Landsliðsþjálfarinn Alfreð
Gíslason tekur við Gummersbach
árið 2007 en hann spurði Sverri
hvort hann hefði áhuga á að spila í
Þýskalandi, þegar Sverrir var í
æfingabúðum þar í landi með
landsliðinu á dögunum.
„Við Alfreð tókum léttan fund
og síðan vatt þetta upp á sig. Ég
hef ýtt nokkrum liðum frá mér
sem hafa sýnt mér áhuga í Þýska-
landi en þetta er einfaldlega of
stórt dæmi til að hunsa. Það er
leiðinlegt að fara á þessum tíma-
punkti en maður er ekkert að yngj-
ast. Það gæti verið of seint að fara
eftir ár, það er því nú eða aldrei,“
sagði hinn 29 ára gamli Sverrir.
„Svona tækifæri kemur kannski
einu sinni á lífsleiðinni. Það er
varla hægt að sleppa þessu, sér-
staklega í ljósi þess hvað á undan
hefur gengið. Handboltinn hefur
verið á smá uppleið hjá mér und-
anfarið,“ sagði Sverrir án þess að
taka djúpt í árina en hann sneri
heim síðasta sumar eftir þriggja
ára dvöl í Bandaríkjunum þar sem
hann spilaði lítinn handbolta.
„Þetta er óvænt, ég viðurkenni
það. Ég er jafn hissa á þessu og
hver annar, en maður verður að
njóta þess á meðan það varir. Ég
held að ég sé búinn að vinna mér
fyrir þessu,“ sagði Sverrir sem
var einn allra besti leikmaður
Íslandsmótsins í ár, og lykilmaður
í Íslandsmeistaraliði Fram.
- hþh
Sverrir Björnsson, nýbakaður Íslandsmeistari með Fram, er á leiðinni til þýska stórliðsins Gummersbach:
Ég er jafn hissa á þessu og hver annar
NAUTSTERKUR Sverrir er tröll að burðum og hefur bundið saman Framvörnina af stakri
prýði í vetur.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BALLIÐ BÚIÐ Atli farinn úr Krikanum eftir
stutt stopp.
HANDBOLTI Stefán Arnarson, lands-
liðsþjálfari kvenna í handknatt-
leik, mun ekki taka að sér þjálfun
kvennaliðs Hauka eins og honum
stóð til boða. Haukar eru í leit að
nýjum þjálfara eftir að Guðmund-
ur Karlsson hætti með liðið.
„Til þess að ég gæti tekið að
mér félagsþjálfun þyrftu ákveðn-
ir hlutir að ganga upp. Þeir gerðu
það ekki að þessu sinni og því mun
ég ekki taka við Haukum. Ég hafði
samt sem áður mikinn áhuga á
starfinu, þetta var spennandi kost-
ur,“ sagði Stefán við Fréttablaðið í
gær en hann sinnir starfi íþrótta-
fulltrúa hjá KR, þjálfar kvenna-
landsliðið og er auk þess í fjar-
námi. „Ég reikna ekki með að
skoða önnur lið, það kitlar samt
alltaf að þjálfa félagslið en eins og
staðan er í dag er það bara mjög
erfitt,“ sagði Stefán.
Þorgeir Haraldsson, formaður
handknattleiksdeildar Hauka,
sagði við Fréttablaðið í gær að
þjálfaramál karla og kvennaliðs-
ins myndu skýrast í næstu viku.
„Það eru miklar líkur á því að Páll
Ólafsson þjálfi karlaliðið áfram. Í
það minnsta mun Viggó Sigurðs-
son ekki taka við liðinu aftur, það
get ég staðfest,“ sagði Þorgeir en
orðrómur þess efnis að Viggó væri
á leiðinni aftur í Hafnarfjörðinn
hefur verið á kreiki undanfarð.
- hþh
Stefán Arnarson:
Tekur ekki við
Haukastúlkum
EKKI TIL HAUKA Þrátt fyrir áhuga beggja þá
mun Stefán ekki þjálfa kvennalið Hauka á
næsta tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
> Fram dró kæruna til baka
Handknattleiksdeild Fram dró kæru
sína eftir fyrri leik félagsins og Fylkis í
deildarbikarnum til baka eftir yfirlýsingu
dómaranefndar HSÍ. Þar kemur fram að
dómaranefndin hafi ekki gert sér grein
fyrir því að sonur annars dómarans væri
leikmaður hjá Fylki þegar dómarapar
leiksins var ákveðið.
Er atvikið því harm-
að og mun slíkt
ekki endurtaka
sig. Þess utan er
ekkert sem segir
að faðir megi
ekki dæma
hjá syni og
því spurning
hvernig málið
hefði endað
en það er
vissulega
óheppilegt.
Riðlar fyrir EM í hand-
bolta
Á Evrópuþingi EHF í gær var samþykkt
að hafa riðlakeppni fyrir EM 2010 en
slíkt er alþekkt til að mynda í knatt-
spyrnu. Alvöru handboltalandsleikjum á
Íslandi mun því fjölga í kjölfarið þar sem
leikið verður heima og heiman. Úrslita-
keppni EM 2010 fer síðan annaðhvort
fram í Austurríki eða Grikklandi.