Fréttablaðið - 08.06.2006, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006
Ályktanir um málefni
framsóknarflokksins
FÉLAG FRAMSÓKNARKVENNA Í REYKJAVÍK
Stjórn Félags
framsóknarkvenna
í Reykjavík skorar
á alla flokksmenn
að nýta einstakt
tækifæri, sem gefst
á næsta flokks-
þingi Framsókn-
arflokksins, til að
efla hlut kvenna í
forystusveit hans.
Við uppstokkun á
ráðherraembættum verði hlutur kvenna hafður í heiðri. Stjórn félagsins óskar eindregið eftir
því að flokksþingi verði flýtt og haft í lok júnímánaðar til að óvissunni um stjórn flokksins
verði eytt sem fyrst.
FRAMSÓKNAR-
FÉLÖGIN Í
REYKJAVÍK NORÐUR
Stjórn kjördæmis-
sambands fram-
sóknarmanna í
Reykjavíkurkjördæmi
norður, stjórn
Framsóknarfélags
Reykjavíkurkjör-
dæmis norður og
stjórn félags ungra
framsóknarmanna
í Reykjavíkurkjördæmi norður harma þá ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra
að hverfa brátt af vettvangi stjórnmálanna eftir áratuga farsælt starf. Með þessari einstöku
ákvörðun sinni hefur hann sýnt að hann er tilbúinn til að leggja allt í sölurnar til að efla frið
innan flokksins. Það er mat stjórnanna að framlag Halldórs til friðar innan flokksins muni því
aðeins ganga eftir ef aðrir æðstu forustumenn flokksins, Guðni Ágústsson varaformaður og Siv
Friðleifsdóttir ritari, axli með sama hætti ábyrgð sína og víki til hliðar persónulegum hagsmun-
um. Á næsta flokksþingi verður að velja nýja forystusveit sem ekki er bundin á klafa áralangrar
togstreitu heldur megnar að skapa frið innan raða flokksmanna.
FÉLAG UNGRA FRAMSÓKNARMANNA Í SKAGAFIRÐI
Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Skagafirði ályktar að
mikilvægt sé að forysta Framsóknarflokksins njóti trausts almennra
flokksmanna. Stjórnin áréttar að samkvæmt flokkslögum skal
varaformaður taka við ef formaður hverfur frá störfum áður en
kjörtímabili lýkur. Stjórnin skorar á Guðna Ágústsson að taka að sér
forystu Framsóknarflokksins fram að flokksþingi og bjóða sig þar
fram til formennsku flokksins. Hann hefur sýnt það með störfum
sínum og framkomu að honum er treystandi fyrir því mikilvæga
starfi sem formennska flokksins er.
FÉLAG UNGRA
FRAMSÓKNAR-
MANNA Í
REYKJAVÍK SUÐUR
Félag ungra
framsóknarmanna í
Reykjavíkurkjördæmi
suður lýsir yfir fullum
stuðningi við forystu
flokksins og skorar
á hana að sitja í
embættum sínum til næsta flokksþings.
FRAMSÓKNARFÉLAGIÐ Í DALASÝSLU
Stjórn Framsóknarfélags Dalasýslu skorar á núverandi varaformann,
Guðna Ágústsson, að taka við forystu Framsóknarflokksins fram
að næsta flokksþingi. Stjórnin telur mikilvægt að farið verði að
flokkslögum en samkvæmt þeim ber varaformanni að taka við af
formanni, hverfi hann frá störfum áður en kjörtímabili lýkur. Stjórnin
áréttar þann skýlausa rétt flokksmanna að velja eigin forystu og
krefst þess að sá réttur verði virtur í hvívetna með því að kjör nýrrar
forystu flokksins fari fram á flokksþingi en ekki miðstjórnarfundi.
FRAMSÓKNARFÉLAG VESTMANNAEYJA
Stjórn Framsóknarfélags Vestmannaeyja ályktar að mikilvægt sé að
forysta Framsóknarflokksins njóti trausts almennra flokksmanna.
Ótækt sé að fámennur hópur miðstjórnarmanna ákveði hver verði
formaður Framsóknarflokksins og áréttar að samkvæmt flokkslögum
skal varaformaður taka við ef formaður hverfur frá störfum áður en
kjörtímabili lýkur. Stjórnin lýsir yfir stuðningi við Guðna Ágústsson
og skorar á hann að taka að sér formennsku Framsóknarflokksins
komi til þess að formaður flokksins segi af sér. Guðni hefur sýnt það
með störfum sínum og framkomu sem varaformaður Framsókn-
arflokksins að honum er treystandi fyrir því mikilvæga starfi sem
formennska flokksins er.
FRAMSÓKNARFÉLAGIÐ ÁRBORG
Stjórn Framsóknarfélags Árborgar ályktar að mikilvægt sé að forysta
Framsóknarflokksins njóti trausts almennra flokksmanna. Stjórnin
áréttar að samkvæmt flokkslögum skal varaformaður taka við ef for-
maður hverfur frá störfum áður en kjörtímabili lýkur. Stjórnin skorar
á Guðna Ágústsson að taka að sér forystu Framsóknarflokksins fram
að flokksþingi og bjóða sig þar fram til formennsku flokksins. Hann
hefur sýnt það með störfum sínum og framkomu að honum er
treystandi fyrir því mikilvæga starfi sem formennska flokksins er.
RÚSSLAND, AP Fyrrverandi leiðtogi
Sovétríkjanna, Nóbelsverðlauna-
hafinn Mikhaíl Gorbatsjov, hefur
ásamt félaga sínum keypt 49 pró-
senta hlut í rússneska dagblaðinu
Novaya Gazeta fyrir óuppgefna
upphæð.
Blaðið verður að hans sögn ekki
notað í pólitískum eða viðskipta-
legum tilgangi, heldur er þetta
leið hans til að ýta undir frjálsa
fjölmiðlun í Rússlandi, en Vladi-
mír Pútín, forseti landsins, hefur
sætt gagnrýni vegna mikils taum-
halds ríkisins á fjölmiðlum.
Ritstjóri blaðsins fagnaði kaup-
unum og sagði aðild Gorbatsjovs
og félaga hans auðvelda ritstjórn-
inni að vera opinská og sjálfstæð
sem fyrr.
Gorbatsjov er væntanlegur til
Íslands í október og mun flytja
fyrirlestur í Háskólabíói. - sgj
Gorbatsjov kaupir dagblað
MIKHAIL GORBATSJOV Gorbatsjov vonar að
ritstjórnarlegt frelsi blaðsins muni aukast
með kaupunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP