Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 72
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR40
menning@frettabladid.is
!
c a r n e g i e
a r t
a w a r d
2 0 0 6
hafnarhús | tryggvagötu 17
8. júní – 20. agúst | opið daglega 10 – 17
leiðsögn sunnudaga kl. 15
ókeypis aðgangur á mánudögum
ein stærstu myndlistarverðlaun í heimi
kynna 21 norrænan myndlistarmann
Frettabladid 97x120 svart-vit.qxd 2006-06-02 15:59 Sida 1
Kl. 12.00
Hádegistónleikar í Anima
galleríi í Ingólfsstræti 8. Alda
Ingibergsdóttir sópransöngkona
heldur tónleika og flytur íslensk
sönglög, aríur og vínartónlist.
Meðleikari er Sólveig Anna
Jónsdóttir.
> Ekki missa af...
menningarlegu HM
opnunarævintýri á vegum
Borgarleikhússins og Goethe
stofnunarinnar á morgun. Atli
Eðvaldsson opnar ljósmynda-
sýninguna „Heimsmálið
fótbolti“ kl. 15.30 og fyrsta
leiknum verður varpað á
risatjald á Litla sviðinu.
afmælissýningu Braga
Ásgeirssonar í Galleríi Fold við
Rauðarárstíg.
dansverkum í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu um helgina. Verkin
No, he was white og Rauðar
liljur eru samstarfsverkefni
dansara, leikara og tónlistar-
fólks.
Æfingar eru hafnar á leikritinu
Patrekur 1,5 eftir sænska leik-
skáldið Michael Druker en þar
segir frá sambúð og sálarflækjum
pars sem eignast sitt fyrsta barn.
Karlmennirnir tveir eru elskendur
og hjón og dreymir um að ala upp
barn. Þegar þeir fá ósk sína upp-
fyllta og litli drengurinn þeirra
birtist er það ekki alveg eins og
þeir áttu von á.
Patrekur 1,5 er leikrit þar
sem spilað er með fordóma á
frumlegan og bráðfyndinn hátt
og verður verkið einnig tekið til
sýninga í skólum.
Michael Druker hefur starfað
sem leikari og leikstjóri á leik-
sviði og í kvikmyndum, en einnig
skrifað nokkur leikrit og kvik-
myndahandrit. Leikritið Patrekur
1,5 fékk frábærar viðtökur
þegar það var frumflutt af Vest-
volden leikhúsinu í Svíþjóð árið
1994. Síðan þá hefur það verið
sýnt í mörgum leikhúsum í
Svíþjóð, Noregi og Finnlandi.
Leikendur eru Jóhannes
Haukur Jóhannesson, Rúnar
Freyr Gíslason og Sigurður
Hrannar Hjaltason sem þreytir
frumraun sína í Þjóðleikhúsinu.
Þýðandi er Davíð Þór Jónsson,
leikmynd og búningar eru í höndum
Stígs Steinþórssonar og leik-
stjóri er Gunnar Helgason. -khh
FYRSTI SAMLESTUR Á PATREKI 1,5 Par fær ósk sína uppfyllta en margt fer öðruvísi en ætlað
er. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ekki bara bráðfyndnir fordómar
Dansleikhússamkeppnin 25 tímar verður
haldin í fjórða sinn í Borgarleikhúsinu í
kvöld og munu níu verk keppa til verð-
launa. Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski
dansflokkurinn standa að keppninni, sem
ætlað er að skapa tækifæri fyrir dansleik-
hús á Íslandi og styðja við listformið. Kepp-
endur eru ýmist lærðir leikarar og dansarar
og koma höfundarnir úr öllum áttum.
Þar á meðal eru Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
dansari og Ólafur Darri Ólafsson leikari
sem sömdu verkið Guðæri, en þau fengu
til liðs við sig þrettán leikara, dansara
og tónlistarmenn. „Ólafur Darri fékk
hugmyndina og spurði hvort ég væri til í
að vinna hana með sér. Verkið er ádeila
á þetta neyslufyllerí sem er búið að vera
á Íslandi. Guðirnir eru gleymdir, og nýi
guðinn er hagvöxturinn,“ segir Lovísa Ósk, sem hefur
verið að vinna með Íslenska dansflokknum
í vetur.
Meðal annarra höfunda eru Þórdís Elva
Bachman leikskáld og leikkona og Ólöf
Ingólfsdóttir dansari með verkið Teldu
mig með, Marta Nordal leikkona með
Boðorðin 10, Benóný Ægisson rithöfundur
með verkið Dillir dó og Dumma, og Peter
Anderson dansari með verkið Shoe size
nine months, en þetta er í fjórða skiptið
sem Anderson á verk í keppninni.
Dómnefnd mun velja þrjú verk til
verðlauna og er eitt þeirra valið til frekari
þróunar að keppni lokinni, en auk þess
velja áhorfendur eitt verk. Undanfarin
ár hefur keppnin notið mikilla vinsælda
meðal fagfólks og áhorfenda og má búast
við skemmtilegri keppni í kvöld, en sýningin
hefst kl. 20 á Stóra sviði Borgarleikhússins. -rsg
Keppni í dansleik
LOVÍSA ÓSK GUNN-
ARSDÓTTIR DANSARI
„Guðirnir eru gleymdir,
og nýi guðinn er hag-
vöxturinn.“
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Myndlistarkonan Guðrún Kristj-
ánsdóttir hlaut nýlega styrk úr
sjóði sem kenndur er við hjónin
Pollock og Krasner en hann var
stofnaður af Lee Krasner, ekkju
Jacksons Pollocks en þau voru
bæði heimsþekktir bandarískir
listamenn. Fjölmargir myndlistar-
menn sækja um liðsinni þessa
virta sjóðs en styrkhafar hans eru
valdir af viðurkenndu fagfólki
innan alþjóðlega listgeirans og eru
miklar kröfur gerðar til þeirra.
Hafþór Yngvarsson forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur
segir að stofnunin sjálf sé með
virtari listastofnunum í Bandríkj-
unum og að mikil samkeppni ríki
um styrkina, fremstu listamenn
Bandaríkjanna sæki um hann auk
fjölda annarra hvaðanæva úr
heiminum. „Það er mjög mikill
heiður að fá verðlaun úr þessum
sjóði, þetta er virkilega einn af
glæsilegustu styrkjunum sem
listamönnum bjóðast í dag,“ segir
Hafþór.
Að sögn Guðrúnar er styrkur-
inn ætlaður listamönnum sem
þegar hafa fest sig í sessi, ólíkt
mörgum öðrum styrkjum sem
miðaðir eru að ungu og upprenn-
andi myndlistarfólki. „Þar er oft
flöskuháls því stundum er lögð
mikil áhersla á ungt fólk en ekki
þá listamenn sem eru komnir
aðeins lengra í sinni list. Þessi
styrkur er hugsaður til þess að
listamenn geti til dæmis keypt sér
aðstoð eða nýtt hann til útgáfu-
mála.“ Guðrún áréttar að margt
hafi komi sér á óvart við styrkinn.
„Þeir taka mann upp á sína arma
og mér skilst á málsmetandi fólki
sem ég þekki í Bandaríkjunum að
styrkurinn sem þeir úthlutuðu
mér sé með veglegasta móti. Hann
gerir mér kleift að halda mínu
starfi áfram ótrauð.“
Guðrún Kristjánsdóttir
stundaði myndlistarnám í Reykja-
vík og í Frakklandi og hélt sína
fyrstu einkasýningu á Kjarvals-
stöðum árið 1986. Hún hefur enn-
fremur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga, bæði hérlendis og erlendis.
Á síðasta ári voru tvær einkasýn-
ingar á verkum hennar í New
York, auk sýningar í Gallerí 100° í
húsi Orkuveitunnar í Reykjavík.
Guðrún tekur þátt í samsýn-
ingu í Hafnarborg í júlímánuði
þar sem sex myndlistarmenn
munu leggja til verk á sýningu
sem kallast „Hin blíðu hraun“ sem
er vísun í listmálarann Jóhannes
Kjarval. „Fyrir Kjarval voru
hraunin ekki ógnvænleg og hörð
heldur blíð,“ útskýrir Guðrún sem
lengi hefur fengist við hraun í
sinni listsköpun. Ennfremur mun
Guðrún halda einkasýningu á
verkum sínum í Listasafni ASÍ á
næsta ári og taka þátt í samsýn-
ingum meðal annars á vegum
Þjóðminjasafnins og á erlendri
grund.
-khh
Heiður úr Vesturheimi
GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDLIST-
ARMAÐUR Verðlaunuð af einni virtustu
listastofnun Bandaríkjanna.
Um sjötíu ungmenni munu setja
svip á borgina í sumar og vinna
skapandi sumarstörf á vegum
Hins hússins.
„Gífurleg gróska ríkir í listsköpun
meðal ungs fólks eins og fjöldi
umsókna um Skapandi sumarstörf
sanna,“ segir Ása Hauksdóttir
deildarstjóri menningarmála hjá
Hinu húsinu. Alls bárust 37
umsóknir en dómnefnd valdi nítján
verkefni úr flokki umsókna. „Þetta
eru afar fjölbreytt verkefni, skap-
andi og skemmtileg svo vonandi
eiga sem flestir eftir að njóta
þeirra í sumar. Langflestir
umsækjendur eru úr tónlistargeir-
anum, töluvert af leiklistar-og
myndlistarnemum sækir einnig
um, en minnst kemur frá danshóp-
unum og til þess að reyna að gefa
öllum listformum jafnt vægi leggjum
við okkur í líma við að veita því
danslistafólki sem sækir um
brautargengi, en það fer þó auðvitað
eftir gæðum verkefna.“
Ása leggur áherslu á að verk-
efnið Skapandi sumarstörf hafi
verið mörgum lyftistöng þegar þeir
voru að stíga sín fyrstu skref.
„Þegar ég lít yfir sviðið síðustu
ellefu árin, þá get ég staðhæft að
ungu listamenn þjóðarinnar, hvort
sem þeir koma úr leiklist, tónlist
eða myndlist, hófu margir frama
sinn hér hjá okkur,“ segir Ása
stolt.
Margir þátttakendanna stunda
nám við Listaháskóla Íslands eða
hafa lokið námi og eru á leiðinni í
framhaldsnám erlendis. „Margir
eru mjög langt komnir með að
gerast fagfólk í listum og allt eru
þetta metnaðarfullir listamenn. Þá
verð ég líka að minna á yngra fólkið
sem ekki hefur hafið listnám en er
ekki síður metnaðarfullt og lætur
sköpunargleðina og kraftinn ráða
för. Borgin væri virkilega tómlegri
á að líta ef þessa listafólks nyti
ekki við á sumrin. Ég hef fylgst
náið með þessu unga listafólki
undanfarin ár og þegar maður hittir
ferðamenn fyrir sem eiga óvænt
stefnumót við ungt tónlistar- eða
myndlistarfólk, leikara eða dansara,
þá vekur það ómælda hrifningu
meðal ferðalanganna og annarra
auðvitað líka. Sumir verða jafnvel
ekki samir aftur,“ segir Ása og
skellir upp úr.
Að sögn Ásu eru ýmis viðmið
höfð til hliðsjónar þegar verkefni
eru valin en „það er að markmið,
áætlun og framkvæmd verkefnis-
ins séu vel útfærð í umsókninni,
frumleiki hugmyndarinnar og ekki
síst er samfélagsleg vídd skoðuð,
það er hvort verkefnið skili sér út í
samfélagið og geti virkað sem
hvati á annað ungt fólk að hugsa
nýjar leiðir til að koma listsköpun
sinni á framfæri.“
Listafólkið verður á ferð og
flugi um alla borg, allt eftir eðli
verkefna. „Þau koma síðan saman í
miðborginni þrjá föstudaga í
sumar þar sem allir hóparnir
leggja list sína á borð fyrir gesti
og gangandi en það köllum við
Föstudagsflipp. Þarna munu
krakkarnir færa svolítið í stílinn
þar sem þau eru í miðbænum og
veita fólki smjörþefinn af því sem
þau hafa upp á bjóða.“
Ása segir Skapandi sumarstörf
gífurlega mikilvægt framlag
borgarinnar til listsköpunar meðal
ungs fólks „enda verður list aldrei
til úr engu og þetta verkefni er
krökkunum hvati til að láta til sín
taka af festu og alvöru. Þau eru á
viðkæmu æviskeiði ungdómsáranna
þar sem auðvelt getur verið að
gefast upp þegar á móti blæs og því
er það okkar að veita þeim byr undir
báða vængi með örlitlu fjárframlagi
svo þau leggi ekki árar í bát.“
-brb
UNGT LISTAFÓLK DÚKKAR UPP Á ÓLÍKLEGUSTU STÖÐUM Það verða Föstudagsflipp í
miðbænum, tónlist, leiklist, dans og almennt sprell um alla borg. MYND/HITT HÚSIÐ
Skapandi sumarstörf