Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 24
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.717 - 0,38% Fjöldi viðskipta: 296
Velta: 2.175 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,20 +0,00% ... Alfesca
3,95 +0,00%... Atorka 5,85 -0,85% ... Bakkavör 48,60 -0,41%
... Dagsbrún 6,05 -0,49% ... FL Group 19,50 -2,01% ... Flaga 4,10
+0,99% ... Glitnir 18,20 +0,00% ... KB banki 776,00 -0,13% ...
Landsbankinn 22,00 +0,00% ... Marel 69,90 +0,00% ... Mosaic
Fashions 16,00 -1,84% ... Straumur-Burðarás 17,90 +0,00% ...
Össur 113,00 +0,89%
MESTA HÆKKUN
Flaga 0,99%
Össur 0,89%
MESTA LÆKKUN
FL Group 2,01%
Mosaic 1,84%
Avion 1,11%
Imperial 42 cl
rauðvínsglös
1.924 kr.
12 stk.
Smart og létt á fæti
– heilsteypt glös á tilboðsverði
Þórunn Kristjánsdóttir
Sölumaður hjá RV
Maldive 36 cl
bjórglös
Imperial 31 cl
rauðvínsglös
Imperial 23 cl
hvítvínsglös
Imperial 19 cl
hvítvínsglös
1.757 kr.
12 stk.
1.579 kr.
12 stk.
1.341 kr.
12 stk.
854 kr.
6 stk.
R
V
62
07
A
Rauð
vínsg
lös, h
vítvín
sglös
og b
jórgl
ös á
tilbo
ðsve
rði
í jún
í 200
6
HM-æði
Heimsmeistarakeppnin er að skella á og er það
nokkuð ljóst að hún mun hafa mikil áhrif á íslenskt
samfélag. Auglýsendur hugsa sér gott til glóðar-
innar eins og sést ágætlega á þremur
tímaritum og dreifiblöðum, sem
gefin hafa verið út í tengslum við
keppnina; samtals 236 blað-
síður. Í gær dreifðu Frétta-
blaðið og Morgunblaðið
sínu HM-blaðinu hvort en
auk þess kemur út HM-
tímaritið sem Olís dreifir.
Þá mokar Sýn, sem hefur
sýningarétt á HM, inn
auglýsingum og heyrist að
sjónvarpsstöðin hafi nánast
þurrausið auglýsingamark-
aðinn. Ætla má að auglýsinga-
veltan í kringum HM fari langt
yfir eitt hundrað milljónir króna.
Rússarnir koma
Rússnesk fyrirtæki eru áhugasöm um samstarf við
Íslendinga á sviði jarðhita og í áliðnaði. Rússneska
fréttastofan RBC hafði í gær eftir heimildar-
manni úr fylgdarliði Mikhaíls Fradkovs,
forsætisráðherra Rússlands sem er hér
á leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins, að
álfélagið RUSAL hefði áhuga á því
að taka þátt í mögulegri uppbygg-
ingu álvera á Norðurlandi auk
þess sem orkufyrirtækið RAO
UES vildi læra af reynslu okkar
á sviði raforkuframleiðslu með
jarðvarmavirkjunum. Þá mun
einnig til skoðunar sala á rúss-
neskum þyrlum til björgunarstarfa
hér og samvinna í sjávarútvegsgeira.
Peningaskápurinn ...
Viðskiptahallinn nam 66,3
milljörðum króna á fyrsta
fjórðungi árs og er það
meiri halli en áður hefur
sést hér á landi. Tvöföld-
un hefur orðið frá sama
tímabili í fyrra. Þetta
kemur fram í nýbirtum
tölum Seðlabanka Íslands.
Fram kemur á vef
greiningardeildar Glitnis
að rætur þessarar miklu
aukningar sé að finna í
öllum helstu undirliðum
viðskiptajöfnuðar. Halli
af vöruskiptum hafi til að mynda
verið 32 milljarðar króna auk þess
sem þjónustujöfnuður hafi verið
óhagstæður um rúma fimmtán
milljarða króna.
Hreinar skuldir
þjóðarbúsins námu 995
milljörðum króna í lok
ársfjórðungsins og er
það aukning um 191
milljarð króna frá árs-
lokum 2005.
Greiningardeild
Glitnis gerir ráð fyrir
því að viðskiptahalli
verði tölvuvert minni á
seinni hluta árs. Komi
þar helst til gengis-
lækkun krónu, en í
kjölfarið megi búast við minni inn-
flutningi auk þess sem lægra
gengi krónu bæti samkeppnis-
stöðu útflutningsgreina. - jsk
Hallinn aldrei meiri
Skuldir þjóðarinnar nema 995 milljörðum króna.
Vextir af yfirdráttarlánum til ein-
staklinga eru í mörgum tilfellum
hærri en dráttarvextir sem ákvarð-
aðir eru af Seðlabanka Íslands.
Eftir miklar vaxtahækkanir
bankanna undanfarna mánuði bera
yfirdráttarlán nú 21,5 til 21,95 pró-
senta vexti hjá viðskiptabönkum
og sparisjóðum. Dráttarvextir hafa
á sama tíma staðið óbreyttir í 21,5
prósentum á þessu ári. Þetta þýðir
í raun að hagstæðara er að standa í
vanskilum en að taka yfirdrátt.
Seðlabankinn ákvarðar drátt-
arvexti á sex mánaða fresti og er
næsti ákvörðunardagur 1. júlí
næstkomandi. Dráttarvextir eru
ákvarðaðir eftir 1. mgr. 6. laga um
vexti og verðtryggingu frá árinu
2001. Samkvæmt lögunum er
Seðlabankanum heimilt að bæta
sjö til fimmtán hundraðshlutum
ofan á stýrivextina hverju sinni
eftir því sem þurfa þykir. Stýri-
vextir eru nú 12,25 prósent.
Sigurður Kristjánsson, for-
stöðumaður á viðskiptabankasviði
KB banka, telur umhugsunarefni
hvort Seðlabankinn þurfi ekki að
ákvarða dráttarvexti tíðar en nú
er gert. „Þetta kennir mönnum
það að settar reglur eru ekki alltaf
í takt við raunveruleikann. Mér
þætti eðlilegt að dráttarvextir
væru ákvarðaðir á að minnsta
kosti þriggja mánaða fresti.
Ástandið eins og það er núna hvet-
ur ekki beinlínis til skilvísi.“
Arnór Sighvatsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabanka Íslands,
telur það ekki sérstakt áhyggju-
efni þótt yfirdráttarvextir séu
hærri en dráttarvextir. „Dráttar-
vextir eru alltaf mjög óhagstæðir.
Hins vegar er alltaf álitamál
hversu háir þeir eiga að verða og
það geta hlaðist upp vandamál séu
þeir of óhagstæðir.“
Dráttarvextir hafa haldist á bil-
inu sautján til tuttugu og fjögur
prósent á þessum áratug en fóru
hæst í 56,4 prósent í ágúst árið
1988. jsk@frettabladid.is
Á LAUGAVEGINUM Misræmi milli yfirdráttarvaxta bankanna og dráttarvaxta Seðlabankans
veldur því að hagstæðara er að standa í vanskilum en að taka yfirdrátt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Betra að skulda en eyða
Yfirdráttarvextir bankanna eru hærri en dráttarvextir Seðlabankans. Sérfræð-
ingar vilja tíðari vaxtaákvarðanir. Dráttarvextir ákvarðast á hálfs árs fresti.
Alvarleg truflun varð í viðskipta-
kerfi Kauphallar Íslands klukkan
14:48 í gær og voru öll viðskipti
stöðvuð í kjölfarið.
Ekki er nákvæmlega vitað hvað
olli trufluninni sem varð í sam-
norrænu viðskiptakerfi kauphall-
arinnar. Kauphallir á Norðurlönd-
unum nota sama kerfi, en tveggja
klukkustunda munur er hér og á
Norðurlöndum og var búið að loka
mörgum kauphöllum á Norður-
löndum þegar truflunarinnar varð
vart í viðskiptakerfinu í Svíþjóð.
Opnað var fyrir viðskipti í
Kauphöllinni á nýjan leik klukkan
15:45 með opnunaruppboði en
samfelld viðskipti hófust tveimur
mínútum síðar. - jab
KAUPHÖLL ÍSLANDS Viðskipti voru stöðvuð
í tæpa klukkustund í Kauphöllinni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Viðskipti stöðvuð
MARKAÐSPUNKTAR...
Ákveðið hefur verið að sameina
hugbúnaðarfyrirtækin Hug hf. og Ax
hugbúnaðarhús hf. undir nafninu
HugurAx. HugurAx verður eitt stærsta
hugbúnaðarfyrirtæki landsins með um
125 starfsmenn.
Þrettán framkvæmdastjórar úr bresku
viðskiptalífi, meðal annars frá Shell,
Tesco og Vodafone, eiga fund með Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands. Hvetja
þeir til aukinna aðgerða gegn loftslags-
breytingum og vilja að auknar hömlur
verði settar á losun koltvísýrings út í
andrúmslotftið.
Karl Pétur Jónsson var um síðustu helgi
ráðinn í starf fulltrúa Gunnars Smára
Egilssonar, forstjóra Dagsbrúnar, og
kemur til með að sinna verkefnum í
rekstri fyrirtækisins í samstarfi við hann.
Karl Pétur var áður framkvæmdastjóri
almannatengslafyrirtækisins Inntaks.
Flugfélag Vestmannaeyja (FV)
hefur ekki enn tekið við rekstri
innanlandsstarfsemi Landsflugs
eins og tilkynnt hafði verið að yrði
hinn 1. júní.
Stefnt er að því að kaupum FV
á Landsflugi verði lokið föstudag-
inn 9. júní næstkomandi. FV ætlar
að kaupa tvær Dornier 228, eina
Piper Chieftain, varahluti og þrjá-
tíu prósenta eignarhlut í Skýli 1,
sem er viðhaldsfélag.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að kurr sé í starfsmönnum Lands-
flugs, en ellefu flugmönnum var
sagt upp fyrir mánaðamót, og það
hafi meðal annars valdið þeim
töfum sem hafi orðið á frágangi
viðskiptanna.
Landsflug flýgur til Vest-
mannaeyja auk Bíldudals, Gjög-
urs, Sauðárkróks og Hafnar í
Hornafirði. - eþa
DORNIER-VÉL Flugfélag Vestmannaeyja
hefur ekki tekið við rekstri Landsflugs.
Kaup á Landsflugi
frestast um viku
Ellefu flugmönnum var sagt upp fyrir mánaðamót.
1. MGR 6. GR LAGA UM VEXTI OG
VERÐTRYGGINGU
Dráttarvextir skulu vera samtala gildandi
vaxta algengustu skammtímalána Seðla-
banka Íslands til lánastofnana (grunnur
dráttarvaxta) auk ellefu hundraðshluta
álags (vanefndaálag), nema um annað sé
samið skv. 2. mgr. þessarar greinar. Seðla-
bankanum er þó heimilt að ákveða annað
vanefndaálag að lágmarki sjö hundraðshlut-
ar og að hámarki fimmtán hundraðshlutar.
Seðlabankinn skal birta dráttarvexti sam-
kvæmt þessari málsgrein eigi skemur en
viku fyrir gildistökudaga dráttarvaxta sem
eru 1. janúar og 1. júlí ár hvert.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Greiningardeild Merrill Lynch
segir napra vinda næða um
íslensku bankana í skýrslu sem
gefin var út í byrjun vikunnar og
býst við að vaxtaálag á skuldabréf
á eftirmarkaði aukist um 3 til 5
punkta.
Greiningardeildin nefnir
afsögn Halldórs Ásgrímssonar
forsætisráðherra sem áhrifavald
og veltir vöngum yfir því hvort
þar spili einnig inn í efnahags-
stjórnin með slakri útkomu Fram-
sóknarflokksins í sveitarstjórnar-
kosningum. Þá er bent á að
Standard & Poor’s hafi breytt horf-
um ríkissjóðs í neikvæðar og segir
auknar líkur á harðri lendingu
hagkerfisins hér. Þá furðar bank-
inn sig sem fyrr á fyrirætlunum
um skattalækkanir og telur kom-
andi alþingiskosningar þvælast
fyrir nauðsynlegum efnahags-
aðgerðum stjórnvalda. - óká
Napur vindur næðir