Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 75
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 43
ENDALAUST FJÖR
ALLA HELGINA
GRAND ROKK
REX
PRAVDA
KAFFI VÍN
CAFÉ ROSENBERG
DJAMMIÐ UM HELGINA:
Allt um djammið
Á ÞAKINU
Leikstjóri: Unnur Ösp Stefánsdóttir. Danshöfundur: Roine Soderlundh.
Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Þýðandi: Gísli Rúnar Jónsson.
Útlitshönnun: Egill Ingibergssson og Móeiður Helgadóttir.
Búningahönnun: Hildur Hafstein. Hljóð: Gunnar Árnason.
Sýnt í
Borgarleikhúsinu
í sumar
Miðasala hefst á morgun klukkan 10.00 í Borgarleikhúsinu
í síma 568-8000 og á www.borgarleikhus.is Allir sem fæddir eru á árunum
1984, '94, '74, '64, '54 og '44 fá 24% afslátt á fyrstu 8 sýningarnar.
ÞORVALDUR DAVÍÐ HALLA VILHJÁLMS
„Við Guðrún Tulinius hittumst
fyrir rúmum fjórum árum í boði
hjá ræðismanni Íslands í Barce-
lona og ákváðum í kjölfarið að
stofna fyrirtækið Proxima, sem
sér um menningarmiðlun milli
spænskumælandi landa og
Íslands,“ segir Gréta Hlöðvers-
dóttir, annar eiganda Proxima og
útgefanda ljóðabókarinnar
„Hæðir Machu Picchu“ eftir Pablo
Neruda. „Við höfum báðar ein-
stakan áhuga á Spáni og spænskri
menningu og því má að segja að
fyrirtækið hafi verið stofnað í
kringum áhugamál okkar. Við
höfum lengi reynt að ýta undir
spænska menningu á Íslandi og
íslenska menningu á Spáni.“
Íslensk útgáfa ljóðabókarinnar
hlaut viðurkenningu sem bók árs-
ins hjá Menningarmiðstöðinni
Fundación Amezcua í Barcelona
en að sögn Grétu hlaut bókin ekki
hvað síst athygli fyrir að vera
óhefðbundin ljóðabók. „Bókin er
skreytt mjög fallegum myndum
eftir Snæfríði Þorsteinsdóttur og
Antonio Hervás Amezcua, for-
stöðumann Menningarstofnunar-
innar. Hugmyndin að bókinni
kviknaði þegar Guðrún fór
og heimsótti slóðir
Inka í Andesfjöllunum
á hæðum Machu Picc-
hu og kvikmyndaði. Í
framhaldinu ákváðum
við að gera stuttmynd
um þetta ferðalag og
gefa út með
ljóðabókinni.
Þannig varð til
einhvers konar
heildarupplif-
un því ljóðin
taka einmitt fyrir ferðalag Neruda
á sömu slóðir. Það var þessi heild-
arstemning ljóðanna og myndar-
innar sem féll svo vel í
kramið hjá spænsk-
um fjölmiðlum.“
Guðrún Tulinius
þýddi þennan fræga
ljóðabálki skáldsins
en stöllurnar fengu
Isabel Alliende til að
rita sérstakan for-
mála fyrir íslensku
útgáfuna. „Það var
auðvitað stórkostlegt
að fá hana til liðs við
okkur en hún hefur
eins og svo margir aðrir
löngum heillast af skáldskap
Neruda,“ heldur Gréta áfram.
„Ég starfaði eitt sinn sem blaða-
maður og tók viðtal við Allende
og mundi eftir því að í samtali við
hana kom fram að hún hafði líka
ferðast á þessar slóðir. Hún lýsir
upplifun sinni af þeirri reynslu í
formálanum.“
Ásamt stuttmyndinni og ljóða-
bókinni útbjó Guðrún verkefna-
hefti sem ætlað er sem kennslu-
efni í spænsku fyrir
framhaldsskóla hérlendis.
„Menntaskólinn við Hamrahlíð
mun án efa taka við kennsluefninu
en aðrir skólar eru einnig að skoða
málið.“ - brb
Heildarupplifun á ljóðum Neruda
Gradualekór Langholtskirkju
gerir víðreist um landið og fagnar
vori í þremur landshlutum. Í kvöld
heldur kórinn vortónleika í Lang-
holtskirkju en síðan er förinni
heitið norður á Akureyri og austur
á Eskifjörð.
Á efnisskránni eru að vanda
íslensk og erlend verk fyrir barna-
kóra og flytur kórinn meðal ann-
ars þrjú lög eftir Inga T. Lárusson
í tilefni austurferðarinnar, tvo
þætti úr messu eftir Mozart, lag
sungið á japönsku og syrpu af
bítlalögum. Þrír einsöngvarar úr
röðum kórfélaga koma fram.
Laugardaginn 10. júní kl. 15
verður kórinn með tónleika í Gler-
árkirkju á Akureyri og sunnudag-
inn 11. júní syngur hann í sjó-
mannadagsmessu á Eskifirði og
verður einnig með tónleika þann
dag í Eskifjarðarkirkju. Barnakór
frá Egilsstöðum undir stjórn Thor-
vald Gerde verður gestur Gradu-
alekórsins á þeim tónleikum.
Stjórnandi Gradualekórs Lang-
holtskirkju er Jón Stefánsson og
undirleikari er Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir. - khh
FAGRAR RADDIR BERAST ÚR LANGHOLTS-
KIRKJU Vorhugur og ferðagleði er hjá
Gradualekór Langholtskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Vortónar víða um land
NERUDA OG FRÚ Pablo Neruda veitti Nóbelsverðlaununum við töku í Stokkhólmi árið
1971. Hæðir Machu Picchu í þýðingu Guðrúnar Tulinius var valin bók ársins af menningar-
miðstöðinni Fundación Amezcua í Barcelona. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES