Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 78
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR46
bio@frettabladid.is
Kölski, djöfullinn, satan
hefur verið mönnunum
hugleikinn frá því að kristin
trú breiddist út meðal hinna
vestrænu þjóða. Djöfullinn
birtist fyrst í líki höggorms-
ins í aldingarðinum Eden
þegar hann freistaði Evu
með „skelfilegum“ afleið-
ingum en síðan þá hefur
kölski öðru hvoru birst
mönnunum og reynt að fá
þá til liðs við sig.
Diplómatinn Robert Thorne og
eiginkona hans, Katherine, eiga
von á barni en við fæðinguna
kemur í ljós að barnið er andvana.
Sjúkrahúspresturinn Spiletto
ákveður að aðstoða Thorne vegna
þess að Katherine hefur þegar
misst þrjú fóstur og er talið að
þetta áfall muni ríða henni að
fullu. Thorne fellst á að taka að
sér nýbura sem fæddist sömu nótt
en móðirinn lést við barnsburðinn.
Spiletto sannfærir Thorne um að
eiginkona hans sjái ekki muninn
og þau muni ala drenginn upp sem
þeirra eigin. Hann reynist í fyrstu
vera heilbrigður og er gefið nafn-
ið Damien. Fljótlega kemur hins
vegar í ljós að pilturinn er ekki
eins og fólk er flest. Dularfull
dauðsföll leiða að því líkur að
Damien gæti verið djöfullinn holdi
klæddur, mættur til að etja mann-
kyninu saman með járnsprota
sínum og eyða þessari sköpun
erkióvinar síns.
Í kvikmyndinni Omen er verið
að leika sér með goðsögnina um að
djöfullinn snúi aftur þegar heims-
byggðin hefur misst stjórn á
sjálfri sér og syndin flæðir um allt
líkt og gilti um syndaborgina
Babýlon. Omen er endurgerð sam-
nefndar kvikmyndar frá árinu
1976 en þá var kjarnorkuváin í
algleymingi og stórveldin ógnuðu
hvort öðru með tortímingarvopn-
inu ógurlega. Þegar slíkt er ástatt
fara kvikmyndagerðarmenn oft af
stað með alls kyns heimsendaspár
og þar kemur kölski oft við sögu.
Kvikmyndagerðarmenn 21. aldar-
innar þurfa varla annað en að
horfa í kringum sig til að túlka
ástand heimsins og setja það í
samhengi við texta sem boða
endurkomu djöfulsins. Hryðju-
verkaógnin sem öllu stjórnar,
grimmileg stríð, válynd veður og
jarðskjálftar sem granda hundr-
uðum þúsunda.
Hin saklausa Regan var ef til
vill birtingarmynd heimsins sem
hafði glatað sakleysi sínu og var
andsetin af satan sjálfum í kvik-
mynd William Friedkin, The Exor-
cist árið 1973. Ákveðinnar bjart-
sýni gætti hjá Friedkin enda var
hægt að reka djöfulinn út með
særingum. Í The Omen er litli
strákurinn Damien hins vegar
ekki andsetinn heldur sjálfur Anti-
Kristur, getinn á degi dýrsins,
06.06.06.
Meðal leikenda í nýju Omen-
myndinni er bandaríska leikkonan
Mia Farrow en hún hefur haldið
sig til hlés í kvikmyndaborginni
eftir að fyrrum eiginmaður henn-
ar Woody Allen tók saman við
fósturdóttur þeirra. Þetta er
reyndar ekki í fyrsta skipti sem
Farrow kemst í kynni við satan og
fylgismenn hans en leikkonan lék
hina ólánssömu Rosemary í
Rosemary‘s Baby eftir Roman
Polanski. Julia Stiles leikur Kath-
erine, sem áttar sig á því að ekki
er allt með felldu hvað son hennar
varðar. Stiles lýsti því yfir í viðtali
við Jay Leno að hún hefði reynt að
halda sig í ákveðinni fjarlægð frá
Seamus Davey-Fitzpatrick sem
leikur Damien þannig að honum
liði illa þegar hún tæki hann í
fangið í kvikmyndinni. „Allir á
tökustað spurðu sig að því af
hverju Julia hataði börn,“ sagði
Julia við Leno og hún ákvað því að
spila fótbolta við drenginn til að
kveða niður orðróminn. „Þetta
endaði þó með ósköpum því ég
þrusaði knettinum beint í andlitið
á honum,“ sagði Stiles. - fgg
Þegar djöfullinn fer á stjá
KÖLSKI Seamus Davey-Fitzpatrick leikur
litla strákinn Damien sem reynist vera
djöfullinn holdi klæddur.
KATHERINE Í VANDA STÖDD Þegar diplómatafrúin verður ólétt á ný grípur satan til sinna
ráða og reynir að koma í veg fyrir að hann eignist lítið systkini.
Demantaiðnaðurinn er að gera sig
kláran fyrir að hleypa af stokkun-
um auglýsingaherferð sem miðar
að því að hrekja söguna í kvik-
myndinni The Blood Diamond.
Myndin skartar sjálfum Leanordo
DiCaprio í aðalhlutverki og er
leikstýrt af Edward Zwick, sem
síðast gerði Tom Cruise-myndina
The Last Samurai. Myndin segir
frá viðskiptajöfrum sem versla
með „skítuga“ demanta sem síðan
eru notaðir af einræðisherrum í
Afríku til að fjármagna stríðs-
rekstur sinn.
Eli Izhakoff, formaður World
Diamond Council sem eru hags-
munasamtök demantasala, sagði
myndina lýsa aðstæðum eins og
þær voru í byrjun tíunda áratug-
arins en ástandið væri allt ððru-
vísi í dag. „Vandamálið er að
myndin gæti gefið fólki einhverj-
ar ranghugmyndir,“ sagði Izha-
koff í samtali við New York Post.
Corina Gilfillan, talsmaður Global
Witness sem berst gegn spilltum
demantasölum, leyfði sér að efast
um þessa yfirlýsingu og sagði að
allir gætu reynt að sýnast heilagir.
„Við höfum hins vegar ekki séð
neinar vísbendingar um breytta
viðskiptahætti.“
Demantar valda titringi
DICAPRIO Leikur í kvikmyndinni
Blood Diamonds sem þegar
hefur valdið nokkrum titringi
meðal demantssala.
Jennifer Aniston virðist hafa lært
ýmislegt af fyrrum eiginmanni
sínum Brad Pitt. Nýjasta mynd
hennar, The Break Up, trónir nú
efst á vinsældalistum þar vestra
og vafalítið skemmir ekki fyrir
aðsókninni að Aniston á nú í ástar-
sambandi við mótleikara sinn
Vince Vaughn. Margir muna
eflaust eftir því fári sem greip
fjölmiðla þegar kvisaðist út að
Angelina Jolie og Brad Pitt tækju
hlutverk sín í Mr. & Mrs. Smith
full alvarlega en þar léku þau hjón
sem voru ráðin til að drepa hvort
annað. Lengi vel var talið að þessi
orðrómur væri ekkert annað en
markaðsbrella til að vekja athygli
á myndinni en annað kom í ljós.
Sama virtist vera uppi á tening-
inum þegar fréttist að Vince
Vaughn og Jennifer Aniston væru
að skjóta saman nefjum á tökustað
en annað hefur komið á daginn því
parið er flutt til heimabæjar
Vince, Chicago. The Break Up
skaut meðal annars X-Men ref
fyrir rass og verður forvitnilegt
að fylgjast með framvindunni í
næstu viku þegar í ljós kemur
hvort Aniston standi uppi sem
sigurvegari í óvæntum smelli.
Óvænt frá Aniston
ANISTON OG VAUGHN Tóku saman við gerð
myndarinnar The Break Up sem nú er á
toppnum í Bandaríkjunum.
Viola Hastings er efnileg knatt-
spyrnukona sem dreymir um
frægð og frama á hinum græna
grasvelli. Henni til mikillar skelf-
ingar kemst hún þó í raun um að
kvennalið skólans hennar hefur
verið lagt niður og allt kapp verð-
ur lagt á velgengni strákanna.
Hastings reynir að sannfæra alla
um hún geti vel plummað sig innan
strákaliðsins en allir taka heldur
dræmt í óskir hennar, meðal ann-
ars kærastinn hennar.
Hastings fær þó gullið tæki-
færi upp í hendurnar þegar tví-
burabróðir hennar Sebastian
hringir frá London og tilkynnir
henni að hann komist ekki í tæka
tíð fyrir undirbúningstímabilið.
Stúlkan fær því góðan vin sinn
sem er förðunarmeistari sér til
aðstoðar og lætur umbreyta sér í
bróður sinn. Eins og gefur að skilja
reynist þetta ráðabrugg ekki alveg
eins auðvelt og það leit út fyrir í
fyrstu. Viola verður nefnilega
hrifin af herbergisfélaga sínum
Duke sem áður var hrifin af hinni
undurfögru Oliviu en hún er orðin
ástfangin af hinum ofurviðkvæma
Sebastian.
Fjöldi ungra og upprendandi
leikara kemur við sögu í She’s the
Man og má þar nefna Amöndu
Bynes sem er hvað þekktust fyrir
leik sinn í sjónvarpsþáttaröðunum
What I Like About You. Laura
Ramsey fer með hlutverk Oliviu
en hún lék á móti Heath Ledger í
Lords of the Dogtown. Myndin er
sögð vera byggð á leikriti William
Shakespeare, Twelfth Night, en
leikstjóri hennar er Andy Fick-
man.
Knattspyrnan hefur verið að
ryðja sér til rúms í Bandaríkjun-
um að undanförnu eftir að heims-
meistarakeppnin var haldin þar í
landi árið 1994. Markaðurinn er
reyndar mjög erfiður því hafna-
bolti og amerískur ruðningur tróna
þar yfir aðrar íþróttagreinar.
Kvikmyndir um knattspyrnu eru
einnig fáséðar en vinsældir Bend
It Like Beckham hafa opnað augu
kvikmyndagerðarmanna fyrir
þeirra staðreynd að hægt er að
færa hana yfir á hvíta tjaldið.
Þegar kona verður
knattspyrnumaður
VIOLA HASTINGS Dulbýr sig sem tvíburabróður sinn til að komast að hjá knattspyrnuliði
skólans.
> Ekki missa af...
Stórslysamyndinni Poseidon með
Kurt Russell og Richard Dreyfuss
í aðalhlutverkum. Myndin þykir
prýðisgóð skemmtun fyrir þá sem
gera ekki miklar kröfur til handrits-
gerðar heldur kjósa frekar hasar
og hraða. Tæknibrellurnar ættu
ekki að svíkja neinn og Wolfgang
Petersen er í miklu stuði. Ekta
sumarhasar sem reynir ekki um of
á heilasellurnar.
In this country, you gotta make
the money first. Then when
you get the money, you get
the power. Then when you get
the power, then you get the
women.
Tony Montana útskýrir fyrir félögum sínum af hverju
hann sé á lausu í hinni frábæru kvikmynd Scarface eftir
Brian De Palma. Al Pacino í sínu allra besta formi.
Margir hafa eflaust rekið upp stór
augu þegar Guy Ritchie réð harð-
hausinn Vinnie Jones til starfa
fyrir sig í kvikmyndinni Lock,
Stock and Two Smoking Barrels.
Jones hafði vakið mikla athygli
fyrir frammistöðu sína með knatt-
spyrnuliðinu Wimbledon þar sem
hann átti það til að „slátra“ fræg-
um leikmönnum inni á vellinum
með hvers kyns óþverrabrögðum.
Jones varð frægur fyrir að vera
leiðtogi ólátabelgjanna í Wimble-
don sem gátu gert allt brjálað og
villimannsleg framkoma hans á
vellinum varð til þess að gefið var
út myndband með öllum helstu
tæklingum hörkutólanna í ensku
úrvalsdeildinni. Jones var þulur
en enska knattspyrnusambandinu
fannst athæfið ekki fyndið og
Vinnie fékk himinháa sekt.
Markaður hafði opnast fyrir
enskumælandi hörkutól í Holly-
wood og því reyndist það létt verk
fyrir Jones að koma sér á fram-
færi. Hann fékk hlutverk í hinni
misheppnuðu Gone in Sixty Sec-
onds þar sem Angelina Jolie og
Nicholas Cage áttu að vera nægj-
anlegt aðdráttarafl. Jones sneri
aftur heim og fékk inni hjá Ritchie
fyrir hina ofurvinsælu Snatch en
þar fór Brad Pitt hamförum í hlut-
verki sígaunans Mickey O’Neil.
Jones lét síðan lítið fyrir sér
fara en birtist með miklum hvelli í
X-Men þar sem hann var í kunn-
uglegu hlutverki því persónu hans,
Juggernaut, finnst fátt skemmti-
legra en að hlaupa niður andstæð-
inga sína, sem Jones þekkir vel af
græna vellinum.
Slátrarinn frá Wimbledon
VINNIE JONES Var harður í horn að taka á
knattspyrnuvellinum en hefur einbeitt sér
að kvikmyndaleik eftir að ferlinum lauk.