Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 71
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 39
�������������������
���������������������
�������������������������
�����������������������������������
�������������������������������������������
������������������������������������������
�������������������������������� �������������������������������������
��������������������������������������������������������������������
����� �������������������������������� ���������������������
�������������������������������������������
��������������������������������
�������������
����������������
������������������
�������������
�� �������������
��� ��������� ��������
������������������
����������������������������������
�������������������������������������
������������������������������������������
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Hin nýafstaðna Reykjavík Trópík
tónleikahátíð var með eindæmum
skemmtileg og virkilega góð ára
yfir hátíðinni. Hálf fasískir til-
burðir lögreglunnar í Reykjavík
til þess að bæla hana niður voru
hins vegar skammarlegir, tilllits-
lausir og hrokafullir. Nemar í
Háskóla Íslands voru búnir að
vinna frábært starf til þess að
gera þessa hátíð sem veglegasta
og allt hafði farið vel fram. Ég
held því að fáir skilji þá ákvörðun
lögreglunnar að veita hátíðinni
ekki skemmtanaleyfi fyrir þriðja
deginum á þeim forsendum að
hún vildi ekkert sukk. Reyndar
varð þessi ákvörðun lögreglunnar
til þess að einn eftirminnilegasti
tónlistarviðburður seinni ára átti
sér stað á sunnudagskvöldið á
Nasa.
Íslensku hljómsveitirnar voru
allar pottþéttar og spiluðu spenn-
andi efni. Áhugaverðust var án
efa Skakkamanage enda kannski
sú sveit sem flestir þekktu minnst
til, skemmtilegt slowcore-indí-
popp sem var fagmannlega flutt.
Á undan Skakkamanage hafði
hinn ofur breski Kid Karpet komið
fram og var þar á ferð mikill stuð-
bolti og flippari sem fékk flesta til
þess að brosa, svolítið eins og
Mugison á eiturlyfjum.
Stelpusveitirnar tvær, ESG og
Sleater-Kinney, voru þó án efa
hápunktar kvöldsins. Fyrst kom
ESG fram og þegar fimm smá-
vaxnar konur, og flestar í meira
en góðum holdum, stigu á sviðið
og byrjuðu að spila taktfasta tóna
sína varð salurinn nær agndofa.
Vissulega er hljómsveitin goð-
sögn en hún var þó á hátindi feril
síns rétt upp úr 1980. Scroggins-
stelpurnur sýndu sko heldur betur
hvað í þeim bjó með einn rosaleg-
asta trommara sem sést hefur í
fararbroddi. Áhorfendur voru
líka í brjáluðu stuði enda ekki
annað hægt þegar á sviðinu stend-
ur íturvaxin kona í hálf dónalega
fleginni blússu og hristir sig eins
og hún eigi lífið að leysa. Einhver
almagnasta tónlistarupplifun
seinni ára, æðisgengið í einu orði
sagt.
Sleater-Kinney var heldur ekk-
ert slor þó svo að erfitt sé að bera
tónleika þeirra saman við ESG
enda tónlist hljómsveitanna of
ólík. Stelpurnar í Sleater-Kinney
voru ofurþéttar og gáfu áhorfend-
um varla tækifæri til að klappa
fyrir sér, nema þá helst þegar þær
þurftu að stilla gítarana. Lögin
voru keyrð áfram af frábærum
gítarleik Carrie Brownstein sem
var óhrædd við að beita gítarnum.
Lögin voru spiluð af bæði einbeit-
ingu og krafti sem hefur hingað
til verið vænlegt til vinsælda. Ein-
faldlega frábærir rokktónleikar á
heimsmælikvarða, með líklegast
einni af bestu stelpurokkhljóm-
sveit sögunnar, takk fyrir. Yfir-
höfuð var kvöldið einstakt og allir
sem tónleikana sóttu hljóta að
hafa farið meira en ánægðir
heim. Steinþór Helgi Arnsteinsson
Mögnuð tónlistarveisla í Reykjavík
REYKJAVÍK TRÓPÍK/SLEATER-KINNEY
TÓNLEIKAR Á NASA
Niðurstaða: Frábær tónlistarupplifun þar sem
stelpuhljómsveitirnar tvær, ESG og Sleater-
Kinney stóðu upp úr. Stemningin hefur sjaldan
eða aldrei verið eins mikil á Nasa og meðan
á tónleikum ESG stóð og voru þær sjálfar
einstakar. Íslensku hljómsveitirnar komu líka
flestar mjög vel út.
Hljómsveitirnar Amiina og Benni
Hemm Hemm og tónlistarmennirnir
Paul Lydon og Illi Vill koma fram á
útgáfutónleikum Tilraunaeldhúss-
ins í Iðnó í kvöld.
Tónleikarnir eru haldnir vegna
útgáfu safnplötunnar Fjölskyldu-
albúm Tilraunaeldhússins sem
hefur að geyma lög eftir flesta þá
tónlistarmenn sem hafa tengst
Eldhúsinu síðan það var stofnað
fyrir um það bil sjö árum. Meðal
annars eru þar lög eftir Mugison,
Slowblow, múm, Apparat Organ
Kvartett, Benna Hemm Hemm,
Kira Kira og Stilluppsteypu. Í flestum
tilfellum voru lögin sérstaklega
samin fyrir þessa safnplötu.
„Þessi plata er búin að vera í
pípunum í tvö ár. Hugmyndin kvikn-
aði á afmælishátíð Tilraunaeldhúss-
ins. Þá sáum við svo sterkt hversu
mikilvægt það er að gera svona
plötu sem fangar svolítið stemning-
una sem er í íslenskri tónlist núna,
sem er rosalega dýrmætt,“ segir
Kristín Björk, betur þekkt sem Kira
Kira. „Við héldum líka hátíð sem
stóð yfir í átta tíma þar sem hinir og
þessir tónlistarmenn færðu okkur
afmælisgjafir í formi hljóðinnsetn-
inga og barnakórverka meðal
annars og enn og aftur blöskraði
okkur þessi sköpunartryllingur í
mannskapnum. Það þurfti bara að
gera svona sterka safnplötu með
tónlistarmönnum frá þessum
ævintýralega kanti,“ segir hún.
Platan er gefin út á Íslandi og í
Skandinavíu af 12 Tónum, í Japan af
P-Vine Records og í Bandaríkjunum
af Bubblecore Records.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 22.
Skapandi
tryllingur
BENNI HEMM HEMM Hljómsveitin Benni
Hemm Hemm spilar á útgáfutónleikunum í
kvöld. MYND/BILLI
Örfáir miðar
eru eftir á
Hróarskeldu-
hátíðina í Dan-
mörku sem
hefst þann 29.
júní og stendur
yfir í fjóra
daga.
Miðarnir
hjá Stúdenta-
ferðum eru
uppseldir en
enn er hægt að
nálgast miða á
heimasíðunni www.billetnet.dk.
Á meðal hljómsveita sem munu
troða upp á hátíðinni eru Tool,
Franz Ferdinand, Kanye West,
Artic Monkeys, Morrissey, Sigur
Rós og Deftones.
Örfáir
miðar eftir
TOOL Rokksveitin
Tool mun troða upp á
Hróarskelduhátíðinni
sem hefst 29. júní.