Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 32
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR32
Aflið sem þig vantar
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Norsku Steady bátarnir hafa slegið í gegn
hjá okkur. Verð frá aðeins 114.000 kr.
Johnson-Evinrude utanborðsmótorar.
Nýja 3-D leiktækið sem er í raun þrjár sæþotur í einni,
RXP 215 hö ofurtækið og GTX Limited sem er lúxus-sæþota
fyrir þrjá, allt mögnuð tæki!
Sea-doo sæþotur.
Frá 2,5 - 250 hestöfl. Mótorar fyrir allar gerðir báta. Verð frá 74.900 kr.
Umboðsmaður á Akureyri:
Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2
Bombardier fjórhjól.
Öflugustu fjórhjólin á markaðnum eru BRP Outlander 800 4x4.
Eins eða tveggja manna með spili og öllu sem prýtt getur yfirburða fjórhjól.
Mér brá í brún þegar ég fletti
sunnudagsmogganum mínum síð-
degis á laugardag. Í ljós kom að
mogginn hafði brugðið sér í gervi
Jóhannesar skírara þegar hann
boðaði komu endurlausnarans,
nema hvað mogginn boðaði endur-
komu Finns í pólitíkina með heil-
opnu viðtali. Þar af breiddi nær-
mynd af Finni sig yfir fjóra dálka.
Það átti ekki að fara framhjá nein-
um að lausnarinn var mættur til
leiks. Það rifjaðist reyndar upp
fyrir mér að þegar þann 7. mars
höfðu Staksteinar sent út ákall til
Finns að snúa heim í pólitíkina á
ný: „Framsóknarmenn standa
frammi fyrir alvarlegri forystu-
kreppu. Þeir ættu að íhuga vand-
lega, hvort Finnur Ingólfsson er
ekki maðurinn til að leysa þann
vanda.“
Og skjótar en mann grunaði
hafði Finnur velt af sér VÍS-reið-
ingnum yfir á breið bök Bakka-
bræðra og Exista og var nú tilbú-
inn í slaginn.
Ég fletti áfram. Nokkrum blað-
síðum aftar breiddi Reykjavíkur-
bréf sig að venju yfir miðopnuna.
Og viti menn helgað Finni Ingólfs-
syni og niðurstigningu hans af
krossi viðskiptalífsins til að end-
urheimta fyrri sess sinn meðal
lærisveinanna. Mogginn tók það
að sér, að eigin sögn, að leka upp-
lýsingum, sem þá voru aðeins á
vitorði örfárra manna í innsta
hring ríkisstjórnarinnar og kunn-
gera afsögn Halldórs Ásgrímsson-
ar bæði sem formanns Framsókn-
arflokksins og forsætisráðherra
og „að líklega muni Guðni Ágústs-
son einnig draga sig í hlé sem
varaformaður flokksins.“ Og bætti
við: „Rökin fyrir því að Finnur
Ingólfsson yrði kallaður aftur til
starfa fyrir Framsóknarflokkinn
hafa alltaf verið sterk.“ Og Mogg-
inn tók ekki bara að sér að skipta
um forystu fyrir „samstarfs“flokk-
inn. Hann myndaði nýja ríkis-
stjórn í beinni útsendingu þessa
Reykjavíkurbréfs: „fyrirhuguð
breyting þýði að Geir H. Haarde
tekur við embætti forsætisráð-
herra.“
Og hver verður fjármálaráð-
herra í þessari nýju ríkisstjórn
Moggans: „Hvert fer Árni Mathie-
sen ef Finnur tekur við embætti
fjármálaráðherra?“ Hann svarar
þeirri spurningu sinni reyndar
ekki en heldur áfram að skipa
fyrir um forystustörf samstarfs-
flokksins: „Hugmyndir um að fá
Siv Friðleifsdóttur heilbrigðisráð-
herra til starfa sem varaformann
Framsóknarflokksins eru til
marks um að flokkurinn vilji sýna
alveg nýtt andlit. Siv .... hefur sýnt
mikla aðlögunarhæfni í stjórn-
málabaráttunni“, sem má til sanns
vegar færa um það afrek að gera
embætti umhverfisráðherra að
handhægu tóli landspjallamanna í
Landsvirkjun og iðnaðarráðu-
neyti.
Hví skyldu Framsóknarmenn
vera að kalla saman fundi og
teygja lopann allt til hausts varð-
andi forystustörfin í flokknum,
þegar mogginn er búinn að skipa í
allar þessar stöður fyrir þá? Stak-
steinar mogga í fyrradag hunds-
kamma líka Framsóknarmenn
fyrir að klúðra plani Reykjavíkur-
bréfsins með eftirminnilegum
hætti. Það hafi líklega verið lykil-
mistök að „kalla saman miðstjórn-
arfund í stað þess að boða einfald-
lega til flokksþings nú í júnímánuði
þannig að nýr formaður og vara-
formaður yrðu kjörnir á flokks-
þingi í stað þess að að kosning
færi fram á miðstjórnarfundi“.
Mogginn vill greinilega athafna-
stjórnmál og ekkert kjaftæði og
fundavesen. „Það gengur ekki að
hika,“ segir moggi.
Með þessari nýju ríkisstjórn
moggans átti ákveðinn hringur að
lokast. Sú vegferð hófst í janúar
2000 þegar Finnur skipaði sig í
embætti seðlabankastjóra án aug-
lýsingar. Í Seðlabankanum sinnti
hann sérverkefnum sem voru
fólgin í því að koma eignum fyrr-
um SÍS og kaupfélaganna í hendur
sona kaupfélagsstjóra og SÍS-for-
stjóra (samvinnufélög erfast ekki
í kvenlegg). Fjórar viðskipta-
blokkir með rætur í samvinnu-
hreyfingunni börðust um hnossin
með kjafti og klóm og Valgerður
og Halldór höfðu varla vinnufrið í
látunum. Viðkvæði þeirra var
jafnan: Talið við Finn. Og Finnur
miðlaði málum, kom S-hópnum á
laggirnar, sem komst yfir Búnað-
arbankann við einkavæðinguna og
sameinaðist samstundis Kaup-
þingi, og endurheimti VÍS úr klóm
Landsbankans og Kjartans Gunn-
arssonar og settist svo sjálfur í
forstjórastól VÍS haustið 2002.
Ugglaust hefur upphaflega verið
meiningin, að þessi öfluga við-
skiptablokk yrði Framsóknar-
flokknum sams konar fjárhags-
legur bakhjarl og SÍS hafði áður
verið og voru þó þegar á þeim
árum uppi raddir um að flokkur-
inn væri til fyrir SÍS en ekki öfugt.
Nú átti greinilega að loka hringn-
um með því að S-hópurinn gleypti
Framsóknarflokkinn.
Davíð Oddsson sagði í kveðju-
ræðu sinni á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins að Samfylkingin væri
orðin „dótturfélag auðhrings“, án
þess að færa fyrir því frekari rök.
Ég hef að undanförnu leitt rök að
því að Framsóknarflokkurinn
væri að ummyndast í slíkt dóttur-
félag. Með þessu hef ég bakað mér
nokkra óvild meðal forystumanna
flokksins. Ég hyggst þó halda
áfram ábendingum mínum um það
sem ég kalla „auðvæðingu stjórn-
málanna“.
Framsóknarflokkurinn átti
fyrir nokkrum áratugum undir
högg að sækja vegna svonefndra
geirfinnsmála. Hann hóf sig þó
upp úr þeim öldudal undir lipurri
forystu Steingríms Hermannsson-
ar. Sagt er að sagan endurtaki sig
og þá í síðara skiptið sem farsi.
Það má mikið vera ef hin nýja
GeirFinnsstjórn moggans hefur
ekki nú þegar verið hlegin út af
borðinu sem ömurlegur farsi.
Þjóðin á betra skilið en guðdóm-
lega gleðileiki af þessari gerð.
Endurkoma GeirFinns
UMRÆÐAN
MOGGINN MYND-
AR RÍKISSTJÓRN
ÓLAFUR HANNIBALSSON
Framsóknarflokkurinn lætur
eins og flokkurinn hafi unnið
sigur með því að fá 6,3% atkvæða
í borgarstjórnarkosningunum í
Reykjavík og 1 borgarfulltrúa
kjörinn! Staðreyndin er hins
vegar sú, að þetta eru verstu
kosningaúrslit Framsóknar í
Reykjavík í langan tíma.
Fengu helming fyrri atkvæða
Í þingkosningunum 2003 fékk
Framsókn 11,3% í Reykjavík
suður en 11,6% í Reykjavík norð-
ur. Útkoman nú er því rétt rúm-
lega helmingur þess atkvæða-
magns, sem Framsókn fékk í
þingkosningunum 2003. Árið 1990
í síðustu borgarstjórnarkosning-
um áður en R-listinn var myndað-
ur fékk Framsókn 8,3%, árið 1986
fékk flokkurinn 7%, árið 1982
fékk flokkurinn 9,5%, 1978 fékk
Framsókn 9,4% og á árunum
1966-1974 var Framsókn með
16,4-17,7% í borgarstjórnarkosn-
ingum í Reykjavík. Fylgi Fram-
sóknar nú í Reykjavík er því í
sögulegu lágmarki. Flokkurinn
hefur ekki fengið svo lítið fylgi í
hálfa öld.
Ef litið er á fylgi Framsóknar
yfir allt landið kemur í ljós, að
Framsókn hefur tapað helmingi
þess fylgis, er flokkurinn hafði í
sveitarstjórnarkosningunum
fyrir 4 árum en þá fékk flokkur-
inn 22,9%. Nú fékk flokkurinn
aðeins 11,8% yfir allt landið.
Framsókn brást
Í R-listanum hafði Framsókn 2
borgarfulltrúa en verður nú að
láta sér nægja einn.
Ef Framsókn hefði haldið sama
fylgi og áður þá hefðu R-lista
flokkarnir fengið samanlagt svip-
að fylgi og áður eða yfir 50% og
haldið meirihluta í Reykjavík.R-
lista flokkarnir fengu 47,2 %. Það
vantaði aðeins 2,81 % upp á hrein-
an meirihluta þessara flokka í
Reykjavík.
Samstarf við íhaldið ákveðið áður
Það tók Sjálfstæðisflokkinn og
Framsókn 1-2 tíma að mynda
meirihluta í borginni. Þetta var
allt ákveðið áður. Viðræður Sjálf-
stæðisflokksins og Frjálslyndra
voru aðeins til málamynda að
því, er Ólafur Magnússon oddviti
þeirra segir. Hann segir að við-
ræðurnar hafi verið sviðsettar
til þess að tefja fyrir myndun
vinstri meirihluta. Ljóst er að
það hefur alltaf verið ætlun
íhalds og Framsóknar að mynda
meirihluta í Reykjavík og senni-
lega hefur það verið ákveðið af
forustumönnum flokkanna.Ekki
er búið að semja um nein mál-
efni. Þau eru aukaatriði!
Framsókn hækja íhaldsins í borg-
arstjórn
Hið eina, sem búið er að semja
um er hver verði borgarstjóri og
hver formaður borgarráðs. Íhald-
ið fær borgarstjórann en Björn
Ingi fær að stýra fundum borg-
arráðs. Hann verður fundarstjóri
borgarráðs á sama hátt og Hall-
dór er fundarstjóri í ríkisstjórn-
inni. Fundarstjóri eða formaður
borgarráðs ræður engu, þegar
pólitískur borgarstjóri situr við
hlið hans og tekur allar ákvarð-
anir. Eðlilegt hefði verið í tveggja
flokka samstarfi, að annar flokk-
urinn fengi borgarstjórann en
hinn flokkurinn forseta borgar-
stjórnar. Þetta eru tvö helstu
embættin. En svo verður grein-
lega ekki. Einhverjum nefndum
verður sjálfsagt fleygt í Fram-
sókn en íhaldið mun fara með öll
völd í hinu nýja samstarfi.
Framsókn verður aðeins
valdalaus hækja í þessum nýja
meirihlutai, ein hækjan í viðbót
undir íhaldinu sem ræður nú öllu
bæði í landsstjórn og borgar-
stjórn.
Verstu kosningaúrslit Framsóknar í Reykjavík
UMRÆÐAN
GENGI FRAM-
SÓKNARFLOKKS-
INS
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
Eðlilegt hefði verið í tveggja
flokka samstarfi, að annar
flokkurinn fengi borgarstjór-
ann en hinn flokkurinn forseta
borgarstjórnar. Þetta eru tvö
helstu embættin. En svo verður
greinlega ekki.