Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 29
Urð og grjót - Upp í mót ...
göngu-
sumarsins
garpa
Fyrir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
82
59
05
/2
00
5
Meindl Island Pro GTX
Flokkun BC
Heil tunga og vandaður frágangur
Ótrúlega léttir! Þyngd: 830 g (stærð 42)
Gore Tex vatnsvörn
MFS fóður lagar sig að fætinum
MultigriffVibram veltisóli með fjöðrun
Mjög góður stuðningur við ökklann
Einnig fáanlegir í dömustærðum (gráir)
Verð 24.990 kr.
Meindl Air Revolution 2
GTX Lady
Flokkun B
Hönnun sem miðar að hámarks öndun
Ótrúlega léttir! Þyngd: 630 g (Stærð 37)
Gore Tex vatnsvörn
MultigriffVibram veltisóli með fjöðrun
Einnig fáanlegur í herrastærðum, flokkun BC
Verð 21.990 kr.
Meindl Colorado Lady
Flokkun B
Nubuk leður
Gore Tex vatnsvörn
Vibram Multigriff sóli
Þyngd: 750 g (stærð 42)
Einnig til í herraútfærslu
Tilboð 16.990 kr.
Verð áður 19.990 kr.
Meindl Main Mid GTX
Flokkun AB
Mjúkir og léttir
Nubuk leður
Gore Tex vatnsvörn
Litur: Grár
Þyngd: 520 g (stærð 42)
Einng til í dömuútfærslu
Verð 15.990 kr.
TNF Adrenaline
Gore Tex XCR
Flokkun A
Strigaskór á sterum!!
Gore Tex XCR vatnsvörn
Súperléttur gönguskór í léttari notkun
Nubuk leður og nylon
Til í dömuútfærslu
Verð 11.990 kr.
TNF Esker Ridge Mid
Flokkun A
Súperléttur gönguskór í léttari notkun
Nubuk leður og nylon
Til í dömuútfærslu
Verð 8.990 kr.
Við skiptum skónum hjá okkur í flokka eftir því í hvaða notkun þeir eru hugsaðir. A: Fyrir auðvelda göngu og daglega notkun • AB: Fyrir göngu á slóðum og láglendi • B: Fyrir lengri göngur og bakpokaferðalög • BC: Fyrir erfiðari göngur og fjallabrölt • C: Fyrir alpagöngur, kletta, ís og brodda
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Söðlasmíði er fámenn
en áhugaverð iðngrein á
Íslandi. Skeggi Guðmunds-
son er eldri en tvævetur í
bransanum, en hann segir
að brýna verði fyrir fólki að
hirða vel um reiðtygin.
Skeggi lærði á sínum tíma hjá
söðlasmíðameistara og sinnir nú
aðallega viðgerðum á hnökkum,
en hann er mjög handlaginn og
sérstaklega góður í að vinna með
leður. Að hans sögn eru hnakkar
að mestu fluttir inn til landsins,
meðal annars frá Argentínu, en
þar er framleiðslan ódýrari og
bundin við verksmiðjur. Verðið
á góðum hnakk getur verið hátt
í 200.000 krónur, en Skeggi segir
að að minnsta kosti hálf vika fari
í smíðina og efniskostnaðurinn
einn sé hátt í helmingur verðsins.
Íslenskir hnakkar eru þó víst vin-
sælir hjá útlendingum, sem láta
sér ekki nægja að aðeins hestur-
inn sé íslenskur.
Hnakkar eru mismunandi eftir
því í hvað þeir eru notaðir og á
Íslandi má finna fjölbreytta fram-
leiðslu, og jafnvel fyrirfinnast
hnakkar með fiskroði. Eitt er þó
einkennandi fyrir íslenska hnakk-
inn, en það er dýnuskrúfan svo-
kallaða, sem heldur undirdýnunni
við hnakkinn, en í öðrum löndum
er hún oftast saumuð við. Svo er
hnakkurinn nær alltaf fylltur með
ull af íslensku sauðkindinni.
Skeggi segir að hægt sé að
komast hjá miklum óþægindum
með réttri umhirðu reiðtygjanna.
Ef óhreinindi eða annað safnast
fyrir á undirdýnunni getur það
valdið hestinum miklum kvöl-
um. Spurður hvort betri umhirða
hnakka minnki ekki eftirspurn
eftir söðlasmiðum eins og honum,
sagði Skeggi að hesturinn skilaði
ekki sjálfur inn kvörtun, og það
væri algjör óþarfi að hann þyrfti
að þjást vegna slæmrar meðferð-
ar á hnakknum. Mismunandi
hnakkar passa líka hverjum og
einum og vanda þarf valið þegar
maður kaupir sér reiðtygi.
Söðlasmíði er kennd í Fjöl-
brautaskólanum á Suðurlandi,
en á Íslandi starfa varla meira
en um tugur lærðra söðlasmiða.
Skeggi segir að eins og annað iðn-
nám byggist söðlasmíði á þeim
hæfileika að vera laginn og hafa
metnað til að skila sínu starfi
vel.
steindor@frettabladid.is
Umhirða hnakksins skiptir
miklu máli fyrir hestinn
HANDLAGINN SÖÐLASMIÐUR Skeggi er hér við vinnu á verkstæði sínu, en hnakkur eru dýr vara og því mikilvægt að hirða vel um gripinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hin viðkunnanlega Brynja Þor-
geirsdóttir mun í sumar hafa
umsjón með þættinum Kóngur
um stund þar sem hún sækir
heim lífsglaða og uppátækjasama
hestamenn, landsþekkta sem lítt
þekkta.
Í fyrsta þætti sumarsins sem
sýndur verður á stöð 1 klukkan
20.05 á mánudaginn hittir Brynja
fyrir hinn áttræða stórleikara og
hestamann Gunnar Eyjólfsson,
sem ásamt dætrunum, Karítas og
Þorgerði Katrínu menntamálaráð-
herra, heldur hross í einu flottasta
hesthúsi landsins. Litið verður í
heimsókn til myndlistarmannsins
Baltasars sem er kunnur fyrir
málverk sín af meðal annars
hestum, sem hann segist mála af
því hann elskar þá og vegna þess
að allir litir heimsins finnist í
íslenska hestinum – nema grænn.
Á sumrin flytja hann og kona
hans, Kristjana, hestana í garðinn
til sín í Kópavoginum.
Þetta og margt annað verður
í boði í fyrsta þætti sumarsins af
Kóngur um stund.
Þáttur um hestamennsku:
Kóngur um
stund á RÚV
HESTAKONA Brynja Þorgeirsdóttir upplýsir
landann um hesta og hestamenn í sumar.