Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 3
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
www.66north.is
REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12
GARÐABÆR: Miðhraun 11 - AKUREYRI: Glerárgata 32
Vel klædd í
Regnbuxur
margir litir
2.750 kr.
Regnjakki
margar litasamsetningar
3.250 kr.
Stígvél
ófóðruð
2.400 kr.
fóðruð
2.900 kr
pollana
Ef marka má hitamælinn er vorið
loksins komið til að vera hér í
landi en svo lengi höfum við
beðið eftir því að sumarvörurnar
seljast ekki sem skyldi og bera
kaupmenn sig illa. Reyndar má
segja það sama um grænmetis-
og ávaxtabændur því hver vill
borða ferskt sumarsalat þegar
hitinn rétt nær fjórtán gráðum
en ætti að vera nær 20-25 gráð-
um. Sumarfrí nálgast en það var
fyrir 70 árum sem fyrstu lög um
launað leyfi voru samþykkt og
stóð fríið aðeins í eina viku. Þá
voru það bara sundbolir fyrir
ströndina því að bikiníið var
fundið upp af Bandaríkjamönn-
um við Kyrrahafsströndina tíu
árum síðar og á bikiníið því 60
ára afmæli um þessar mundir.
Í sumar eru í sundfatatísk-
unni, líkt og í tískunni almennt,
sterk áhrif frá sjöunda og átt-
unda áratugnum og þó að bikiníið
lifi góðu lífi þá er það endurkoma
sundbolanna sem vekur athygli.
En hér er ekki rætt um gamla
sundbolinn sem hylur allt. Í ár
eru þeir flegnir niður að nafla,
opnir á hliðunum og með bakið
bert, minna óneitanlega á sund-
boli James Bond-stúlknanna eins
og Ursulu Andress í frægri sjáv-
armálssenu. Bolirnir eru gjarnan
með hringjum og festum.
Annað sem bikiní og sundbolir
eiga sammerkt með fatnaði
almennt þetta sumar er að víða
má finna fjörlegt ofskynjunar-
munstur í anda hippatímans.
Hluti ágóðans af sundfatasölu
H&M er sendur til þróunarland-
anna og er notaður til þess að
leita að hreinum vatnslindum
handa þeim sem ekki hafa haft á
slíku völ. Gott málefni og um leið
spillir ekki fyrir að saman fer
gott verð og topptískuhönnun
enda sextíu hönnuðir sem vinna í
,,hvíta herberginu“ í aðalstöðv-
um H&M í Stokkhólmi við að
leggja tískulínur þessa tískurisa.
Þeim sem vilja eitthvað fínna er
ráðlagt að fá sér hvítan sundbol
frá Chanel með perlufesti á hlið-
unum þar sem holdið er bert og
nælu úr kristöllum undir brjóst-
unum. Hins vegar er verðið ekki
það sama. Og af hverju ekki að fá
sér sjóbrettajakka við sem finna
má í sportlínu Chanel og er góð
hlífðarflík í bátsferð eða til að
hafa á sjóskíðum, aðeins 1380
evrur jakkinn (um 125 þúsund
íslenskar).
Ekki duga sundfötin ein fyrir
fríið, eitthvað þarf til að fara í á
ströndina eða til að skreppa út á
kvöldin. Í fyrra voru það pilsung-
arnir víðu sem allar konur voru í,
einstaklega heppilegir fyrir
frjálslega vaxnar. Nú er þessi
klæðnaður algerlega úti í kuldan-
um. En ekki er nú öll von úti því í
sumar gildir að vera í blúndu-
kjólum með enskum blúndum
sem víkka út frá brjóstmáli og
geta falið heilmikið ummál. Sum-
arskórnir eru sömuleiðis þægi-
legir, meira eða minna flatbotna
eins og ballerínurskór eða hinir
ómissandi þvengskór (tongs).
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Sundbolir enn og aftur
og bikiníið 60 ára
����������
Mildir en áhrifaríkir andlitsdjúphreinsi-
klútar sem fjarlægja andlitsfarða og
eru góðir fyrir húðina.
Náttúrulegir ávaxtakjarnar (AHA) djúp-
hreinsa húðina, B5 próvítamín vernda
hana og næra og Kamillukjarni róar húð-
ina. Klútarnir innihalda enga olíu og stífla
þar af leiðandi ekki svitaholurnar. Of-
næmisprófaðir.
Andlitshreinsiklútar sem innihalda sér-
staka blöndu af andoxunarefnum til
þess að hægja á öldrun húðarinnar:
Coensím Q10, beta glucan, vínberjakjarna-
olía, kjarni úr grænu te og E vítamín. Sæt
möndluolía og B5 próvítamín gefa húð-
inni raka og vernda hana. Klútarnir eru
mildir en áhrifaríkir og henta sérstaklega
til hreinsunar á augnfarða.
Frískandi skrúbbandlitshreinsiklútar.
Klútarnir fjarlægja dauðar húðfrumur
og hreinsa húðina án þess að þurrka
hana. Kjarni úr greipávöxtum frískar
upp á húðina og kjarni úr sítrónugrasi
tónar og örvar húðina. Klútarnir inni-
halda einnig B5 próvítamín og kamillu-
kjarna sem gefa húðinni raka og róa
hana. Húðsjúkdómafræðilega prófaðar.
Age DefyingDeep CleansingGentle Exfoliating Herbal Cleansing
Andlitshreinsiklútar sem innihalda
blöndu af lækningajurtum og vítamín-
um til þess að hreinsa, fjarlægja farða
og vernda húðina.
B5 próvítamín verndar og gefur húðinni
raka, kamillukjarni róar hana. Húðin verð-
ur fersk og heilbrigð útlits. Ofnæmispróf-
aðir.
Fást í öllum helstu apótekum landsins
������������
��������������
��������������
�������
����������
����