Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 83
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 51
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nektarmyndir af fyrirsætunni og fyrr-verandi eiginkonu Paul McCartney,
Heather
Mills, voru
birtar í The
Sun fyrr í
vikunni.
Myndirnar
munu vera úr
þýskri bók frá
árinu 1988
og þar sést
fyrirsætan
nakin og
olíuborin
í alls kyns
stellingum.
Maðurinn sem birtist með henni á
myndunum segist hafa sofið hjá Mills
eftir myndatökuna en hann er ónafn-
greindur. Fyrrverandi bítillinn er æfur út
í Mills vegna athæfisins og sér eftir því
að hafa gifst henni og dregið börnin sín
inn í þessa vitleysu. Mills og McCartney
standa nú í skilnaði en þau voru gift í
þrjú ár og eiga saman eina dóttur.
Hótelerfinginn Paris Hilton lenti í því furðu-
lega atviki um daginn að
vera neitað um aðgang
að skemmtistað í Los
Angeles. Ástæðan var
einföld en dyraverðirnir
sögðu henni að hún
væri þegar komin inn
á staðinn. Síðar kom
í ljós að um tvífara
Hilton væri að ræða
og mistökin réttilega
leiðrétt. Tvífarar Paris
Hilton eru fjölmargir og
vilja margar stelpur líta
út eins og hún. Paris er
þekkt partíljón og lætur
sig sjaldan vanta á rauða
dregilinn.
Leikkonan Jennifer Garner mun hafa afþakkað hlutverk í
endurgerð Dallas-þáttanna
þegar hún uppgötvaði
að Jennifer Lopez væri
meðal leikara í þáttun-
um. Garner er núverandi
kærasta og barnsmóðir
leikarans Ben Affleck
en hann var eins
og kunnugt er
með söngdívunni
Lopez fyrir
nokkrum árum.
Garner átti að
leika Pamelu
Ewing í þáttaröð-
inni vinsælu en
Lopez mun vera
búin að taka að sér
að leika Sue Ellen.
ITALY ́ 90
8. JÚNÍ
ÞESSI EGILS GULL VARÐ TIL 8. JÚNÍ, SAMA MÁNAÐARDAG OG HM ´90 HÓFST. ÞETTA ER KEPPNIN ÞEGAR ÞÝSKALAND
SIGRAÐI, EN ÞAÐ SEM STENDUR HINS VEGAR UPP ÚR ER ÞEGAR GASCOIGNE BRAST Í GRÁT Í UNDANÚRSLITUNUM.
HANN FÉKK Á SIG GULT SPJALD SEM ÞÝDDI ÚTILOKUN HANS FRÁ ÚRSLITALEIKNUM KÆMIST LIÐ HANS ÁFRAM
– SEM ÞAÐ GERÐI REYNDAR EKKI. KÍKTU UNDIR GULLDÓSINA ÞÍNA OG SJÁÐU HVAÐA MERKISDAG ÞINN VAR
FRAMLEIDDUR ÞVÍ FERSKLEIKINN SKIPTIR MIKLU MÁLI ÞEGAR BJÓR ER ANNARS VEGAR. EGILS GULL ER NÚ
BRUGGAÐUR ÚR ÍSLENSKU BYGGI TIL AÐ GEFA ENN BETRA BRAGÐ. NJÓTTU HM MEÐ EGILS GULLI.
KÍKTU UNDIR GULLDÓSINA OG SJÁÐU HVERSU FERSKUR ÞINN ER.LÉTTÖL
G
O
T
T
F
Ó
L
K
M
cC
A
N
N
·
3
1
3
8
1
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Rafm.sláttuvélar
Vandaðar vélar
og öflugir
mótorar
„Ég var að koma hingað í dag, er
búinn að fara á skrifstofuna og líst
bara vel á,“ sagði Þorfinnur Ómars-
son þegar Fréttablaðið náði tali af
honum í gær. Hann var þá nýlent-
ur á Srí Lanka, þar sem hann mun
starfa sem upplýsingafulltrúi og
talsmaður alþjóðlega friðareftir-
litsins næstu sex mánuði.
„Þetta er tímabundið og ég býst
við því að snúa aftur á skjáinn að
sex mánuðum liðnum,“ segir Þor-
finnur, sem síðustu mánuði hefur
starfað á NFS. Hann segir að nýja
starfið sé í eðli sínu fjölmiðlatengt
og því sé þetta ekki alveg nýtt
fyrir hann. Þorfinnur tekur við
starfinu af Helen Ólafsdóttur, sem
hefur greinilega sett hann vel inn
í málin. „Ég veit að þetta starf er
mjög krefjandi. Maður þarf að
svara fyrirspurnum fjölmiðla um
allan heim og síminn hringir víst
dag og nótt.“
Þorfinnur hélt upp á fertugsaf-
mæli sitt um síðustu helgi og bauð
vinum og samstarfsmönnum til
veglegrar veislu. Hann vill ekki
meina að nýja starfið tengist þess-
um merku tímamótum hjá sér.
„Þetta er bara tilviljun. Ég átti
afmæli fyrr í vetur en náði aldrei
að halda veislu. Það hentaði svo
bara ágætlega að slá saman síðbú-
inni afmælisveislu og kveðju-
partíi,“ segir Þorfinnur, sem dvelst
einn á Srí Lanka, fjölskyldan er
heima á Íslandi.
„Ég held að það verði gott að
víkka sjóndeildarhringinn aðeins.
Þetta er auðvitað allt öðruvísi
umhverfi en heima en það hafa
allir gott af því að skipta um
umhverfi,“ segir Þorfinnur
Ómarsson á Srí Lanka. - hdm
Þorfinnur til Srí Lanka
ÞORFINNUR ÓMARSSON Starfar á Srí Lanka
næstu sex mánuðina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELMMyndir af barni Angelinu Jolie og
Brads Pitt láku á netið í fyrrinótt
og reyna lögfræðingar þeirra að
elta uppi þessar myndir. Eins og
kunnugt er munu Pitt og Jolie hafa
selt myndirnar og mun ágóðinn
renna til góðgerðarmála. Bæði
breska tímaritið Hello og banda-
ríska People-tímaritið telja sig
eiga rétt á myndunum og er mikil
reiði innan herbúða þeirra vegna
málsins. Stúlkubarnið nefnist
Shiloh Nouvell Jolie-Pitt og fædd-
ist hún í Namibíu.
Myndirnar leka á netið
ANGELINA JOLIE OG BRAD PITT
Barn þeirra er orðið einn eftir-
sóttasti einstaklingur veraldar
og rifist er um myndir af því.