Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 68
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
Á þessum degi árið
1504 er talið að stytta
Michalangelos, Davíð,
hafi verið sett upp í
Flórens. Michalangelo
hafði þá unnið að
styttunni frá árinu 1501
en endurnýtti reyndar
stein sem hafði verið
byrjað að höggva fjöru-
tíu árum áður.
Davíð er talinn eitt
af mikilfenglegustu
listaverkum endur-
reisnarinnar á Ítalíu.
Skúlptúrinn er rúmir
fimm metrar á hæð og úr marm-
ara. Hann sýnir konunginn Davíð
á þeirri stundu sem
hann ákveður að
halda í bardaga við
risann Golíat eins og
segir Biblíunni. Margir
listamenn höfðu áður
túlkað þessa stund en
Michalangelo fór eigin
leiðir.
Upprunalega styttan
er nú geymdi í
Accademia-safninu
í Flórens og sækja
þangað margir
ferðamenn til að berja
hana augum. Eftirgerð
af henni hefur staðið á Piazza della
Signoria torginu síðan árið 1910. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Guðbrandur K. Sörensson
Fífumóa 1b, Njarðvík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudag-
inn 1. júní verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
laugardaginn 10. júní kl. 13.00.
Sigurður Guðbrandsson Elín Pálsdóttir
Jón Guðbrandsson Helena Alfreðsdóttir
Vigdís Guðbrandsdóttir Benedikt Hreinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför okkar elskaða
Páls Jónssonar
Hóli, Hvítársíðu,
fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 10. júní
kl 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Borgarfjarðar.
Edda Magnúsdóttir
Jón Magnús Pálsson Hrafnhildur Hróarsdóttir
Finnbogi Pálsson Hrönn Vigfúsdóttir
Páll Bjarki Pálsson Eyrún Anna Sigurðardóttir
Erlendur Pálsson Guðrún Harpa Bjarnadóttir
Þorbjörg Pálsdóttir Ragnar Páll Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Unnur Agnarsdóttir
Sóltúni 5, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 3. júní.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju, Reykjavík, föstu-
daginn 9. júní kl. 15.00.
Óskar H. Gunnarsson
Gunnhildur Óskarsdóttir Arnór Þ. Sigfússon
Agnar Óskarsson Margrét Ásgeirsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín , móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Margrét Einarsdóttir
Maddý, Barðastöðum 7,
sem lést fimmtudaginn 31. maí , verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. júní kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi, minning í síma 543-1159.
Jón Árnason
Ásta Gunnarsdóttir Oddur Halldórsson
Jóna Gunnarsdóttir
Valdís Gunnarsdóttir
Eyrún Gunnarsdóttir
Trausti Kristjánsson Therese Grahn
og ömmustrákarnir.
Innilegar þakkir sendum við öllum, nær og
fjær, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar
Stefáns Karlssonar
handritafræðings.
Stuðningur ykkar hefur verið fjölskyldunni
ómetanlegur.
Steinunn Stefánsdóttir og fjölskylda.
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Einars Ögmundssonar
fyrrverandi formanns Landssambands
vörubifreiðastjóra, Grímshaga 3, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítala við Hringbraut föstudaginn
2. júní fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 13. júní
kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktar- og
minningarsjóð Félags nýrnasjúkra s.: 568 1865.
Ögmundur Einarsson Magdalena Jónsdóttir
Ingibjörg Einarsdóttir Júlíus Sigurbjörnsson
Ingveldur Einarsdóttir Trausti Sveinbjörnsson
Þórunn Einarsdóttir Frank Jenssen
afa- og langafabörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
DAVÍÐSSTYTTA
MICHALANGELO
ÞETTA GERÐIST: 8. JÚNÍ 1504
Davíð rís í FlórensGEORGE SAND (1804-1876),
LÉST ÞENNAN DAG.
„Köllun listamannsins
er að senda ljós inn í
mannsins hjarta.“
Raunverulegt nafn franska
rithöfundundarins George Sand
var Amantine-Lucile-Aurore
Dupin en hún var ein fárra
kvenna á hennar tímum sem
reyktu pípu.
Í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði
gefur að líta skemmtilega sýningu. Þar
sýnir myndlistarkonan Brynja Árna-
dóttir eigin verk í bland við myndir
sem gamlir nemendur í Lækjarskóla
hafa gefið henni í gegn um árin.
„Ég er nýhætt að kenna í Lækjar-
skóla þar sem ég var að vinna í tuttugu
ár. Þar sá ég um svanga maga, hugg-
aði, snýtti, setti plástra og stillti til
friðar,“ segir Brynja. Börnin í skólan-
um sáu hana teikna myndir og gáfu
henni oft myndir sem þau teiknuðu
sjálf. Brynja hefur geymt myndirnar
og leyfir sýningargestum að sjá afrask-
turinn. Þær eru rúmlega 350 talsins, af
öllum stærðum og gerðum og eftir
unga listamenn allt niður í sex ára
gamla.
„Hugmyndin að sýningunni vaknaði
þegar ég flutti í minna húsnæði fyrir
um tveimur árum. Þá þurfti ég að losa
mig við alls konar drasl sem hafði fylgt
mér. Í vetur var ég að taka aðeins betur
til og fannst ég einhvern veginn þurfa
að gera eitthvað við allar þessar mynd-
ir.“ Brynja fór þá með hugmyndina að
sýningunni til forsvarsmanna Bjartra
daga í Hafnarfirði sem tóku umsvifa-
laust vel í hana. „Mér er mikil ánægja
að fá fólk til að koma og skoða myndir
barnanna. Ég er líka dálítið stolt yfir
því að hafa geymt svo margar af þeim,
pressað þær og sett í karton. Fólkið
sem kemur talar líka um hvað það sé
merkilegt að ég hafi geymt allar þess-
ar myndir.“
Margir hafa skoðað sig um á sýn-
ingunni og nokkrir gestanna hafa
meira að segja fundið myndir eftir
sjálfa sig á veggjunum. „Ungar konur
sem voru í Lækjarskóla öll árin sem ég
var þar hafa komið hingað á sýninguna
með börnin sín. Börnin sem koma hing-
að eru líka yfir sig hamingjusöm og
vilja oft fá að vera með. Ein lítil sem
var hérna um síðustu helgi hljóp bara
heim og kom með eina mynd. Ég tók
við myndinni, setti kennaratyggjó á
hana og fann pláss á veggnum.“ Brynja
segir að fólk sem kemur á sýninguna
og finnur myndir eftir sig eða börnin
sín megi gjarnan taka þær með sér
heim. „Ég hef ekki pláss til að hengja
allar myndirnar upp heima hjá mér.
Nú eru þær allar orðnar fínar og komn-
ar á karton. Mér finnst líka sjálfri svo
skemmtilegt þegar ég kem á heimili og
sé myndir eftir krakkana hanga upp á
vegg með öllum hinum listaverkunum
því krakkar gera oft svo fallegar og
smellnar myndir.“
Brynja sýnir líka eigin verk með
barnamyndunum en hún hefur verið
virk í sýningarhaldi alla tíð, og er þetta
sautjánda sýningin hennar. „Við röðuð-
um þessu upp þannig að barnamynd-
irnar eru í anddyrinu og upp alla stig-
ana en ég er með myndirnar mínar í
miðhæðinni.“ Hver fer að verða síðast-
ur að leggja leið sína í gamla Lækjar-
skólann því síðasti sýningardagur er á
sunnudaginn, 11. júní.
BRYNJA ÁRNADÓTTIR: SÝNIR Í GAMLA LÆKJARSKÓLA
Börnin gera smellnar myndir
BRYNJA ÁRNADÓTTIR LISTAKONA Verk Brynju eru til sýnis í gamla Lækjarskólanum í Hafnarfirði en þar
á veggjum hangir einnig safn barnamynda sem margar hverjar eru tileinkaðar Brynju.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JARÐARFARIR
13.00 Steingrímur Sigvaldason
vélstjóri verður jarðsunginn
frá Neskirkju.
13.30 Hafþór Sigurgeirsson,
til heimilis á Holtateigi 2,
Akureyri, verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju.
14.00 Gróa Eyjólfsdóttir, Víkur-
braut 26, Hornafirði, verður
jarðsungin frá Hafnarkirkju.
15.00 Hörður Þorgeirsson húsa-
smíðameistari, Stigahlíð 88,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju.
ANDLÁT
Fanney Sigurðardóttir, áður til
heimilis í Írabakka 4, lést á Land-
spítalanum Fossvogi fimmtudag-
inn 1. júní.
Guðmundur M. Jóhannesson
læknir, Jórsölum 3, varð bráð-
kvaddur á heimili sínu mánudag-
inn 5. júní.
Michael Ross, Miami, Florida
USA, lést á heimili sínu laugardag-
inn 3. júní. Útför hefur farið fram.
Tómas Hreggviðsson frá Hlíð,
Vestmanneyjum, andaðist á
heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
mánudaginn 5. júní.
Sigurður Narfi Jakobsson,
Reykjadal 2, Mosfellsbæ, lést á
heimili sínu sunnudaginn 4. júní.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Bára Steindórsdóttir
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 6.júní. Útförin fer
fram frá Selfosskirkju laugardaginn 10. júní kl. 13.30.
Jón Hallgrímsson
Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir Magnús Baldur Bergsson
Steindór Sverrisson Hjördís Ásgeirsdóttir
Ríkharður Sverrisson Valgerður Hansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.